24.01.1945
Sameinað þing: 87. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 589 í D-deild Alþingistíðinda. (5733)
242. mál, vinnuhæli berklasjúklinga
Flm. (Jóhann Jósefsson):
Herra forseti. — Vegna þeirra ummæla, sem fallið hafa, vil ég láta þess getið, að áfellisdómur hv. 2. þm. N.-M. er nú svona bæði í garð þeirra, sem eiga sæti í fjvn., og annarra hv. þm., sem gerzt hafa flm. þáltill., sem hér liggur fyrir, og er ekki sérlega sanngjarn. Því að tilmæli til Alþ. um þetta efni komu ekki fram fyrr en nú fyrir mjög skömmu og meira og minna eftir að fjárl. voru afgr., svo að ég bið hv. þm. að taka flm. þáltill. það til inntekta á þann skuldareikning, sem hann var að benda á í sambandi við flm. þessa máls. Það er ekki verið að fara hér bak við fjárl., því að að sjálfsögðu mundi til þess ætlazt, að slík laun yrðu tekin á fjárl., þegar til kemur. Hitt er svo annað mál, að bygging og aðrar framkvæmdir í sambandi við þetta vinnuheimili hefur allt gengið með meiri hraða heldur en menn bjuggust við, sem er bein afleiðing af því, hversu þjóðin hefur fundið nauðsynina á því, að heimilið kæmist upp. Það má því virða forgöngumönnum þessa máls það til vorkunnar, að þeir hafa séð nú, að þeir hafa þurft að taka fyrr til starfa í þessu efni heldur en þeir höfðu búizt við. En það er beint fyrir áhrif þjóðarinnar sjálfrar, að vinnuheimilið verður tilbúið svona snemma. — Og viðvíkjandi því, að það sé rétt og nauðsynlegt, af því að hér sé um einkastofnun að ræða, að sú einkastofnun launi þennan yfirlækni, en það heiti ekki svo, að ríkið geri það, vil ég segja þetta: Þetta vinnuheimili á að hafa það verkefni með höndum að gera að vinnufærum mönnum þá, sem hafa verið sjúklingar, og það er ætlazt til, að þeir smátt og smátt fái einhverja umbun fyrir vinnu sína. Það er líka nauðsynlegt, því að frá heilsufarslegu sjónarmiði skoðað væri það hin mesta fásinna að hugsa ekki fyrir því, að afköst manna yrðu umbunuð. Að því leyti til yrði hér um sjálfstæða fjárhagslega stofnun að ræða. Nú á yfirlæknirinn á heimilinu að vera sá leiðandi maður og húsbóndi þessara vistmanna, sem á vinnuheimilinu dveljast. Og að minni hyggju er það ekki heppilegt fyrirkomulag, að hann sé launaður af sjúklingunum sjálfum. Þetta munu menn skilja, ef menn athuga, að það hefur siðferðislega þýðinga fyrir góðan ávöxt þess starfs, sem þarna verður af hendi leyst.
Ég skal ekki fara út í meting um launakjör, eins og hv. 1. Rang. gaf þó nokkurt tilefni til. Ég hygg, að hér muni ekki vera að ræða um það ferlíki í þeim efnum, að ekki sé eins gott að bíða betri tíma um að tala um það, þar sem líka hægt er að sýna fram á miklu meiri mismun launakjara manna heldur en í sambandi við þennan eina mann.
Vonast ég svo til, að málið geti farið fljótlega í n.