24.02.1945
Sameinað þing: 96. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 2036 í B-deild Alþingistíðinda. (5748)
Slysfarir á sjó, - minning
forseti (BÁ):
Íslenzku þjóðinni hefur nú borizt ein harmafregnin enn. Eitt bezta skip hins litla íslenzka siglingaflota, gufuskipið Dettifoss, hefur nú farizt af hernaðarvöldum, er það var á heimleið frá erlendum höfnum með farm og farþega. Þrír farþegar — íslenzkar konur — og tólf vaskir fardrengir hafa týnzt þar, til viðbótar öllum þeim, er áður voru frá okkur horfnir af sömu sökum.
Það er ekki lengra en röskir þrír mánuðir síðan við Íslendingar urðum að sjá af öðru skipi flotans, Goðafossi, er fórst með sama hætti, ásamt mörgum íslenzkum mönnum, bæði farmönnum og farþegum, og er því nú skammt látið stórra höggva á milli í garð okkar fámennu þjóðar og stórt skarð höggvið í okkar litla skipastól. Má nú fullyrða, að manntjón íslenzku þjóðarinnar á styrjaldarárunum sé sambærilegt orðið við manntjón margra þeirra þjóða, er heimsstyrjöldina heyja, í hlutfalli við þjóðarstærð. Áfall það, sem hér hefur að höndum borið, er þjóðaráfall, og harmur sá, er hér er kveðinn að vandamönnum og vinum hinna ,átnu landa okkar, er harmur alþjóðar.
Ég vil því biðja þingheim að votta virðingu sína og þakklæti þeim vösku drengjum, sem á styrjaldarárunum hafa hætt lífi sínu til þess að flytja björg í bú okkar, sem heima sátum, og nú hafa fórnað því fyrir þjóð sína — og þeim dætrum þjóðarinnar, sem hér hafa horfið henni, og að votta vandamönnum þeirra innilega samúð með því að rísa úr sætum. — [ Þingheimur reis úr sætum. ]