16.02.1945
Sameinað þing: 94. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 596 í D-deild Alþingistíðinda. (5749)

242. mál, vinnuhæli berklasjúklinga

Þorsteinn Þorsteinsson:

Ég get tekið undir það með hæstv. dómsmrh. hvað fjárhæðina snertir, að það sýnist ekki skipta miklu, hvort brtt. er samþ. eða sú till., sem fyrir lá, úr því að hann er búinn að lýsa því yfir, að hann ætli sér að greiða þá upphæð, sem er í brtt. Annað, sem kom mér til þess að standa upp, er það, að ég sé, að í brtt. er talað um greiðslu til yfirlæknis við hælið. Ég veit ekki, hvað það á að merkja, — við eigum að festa hér á þál. þetta nafn, yfirlæknir; þá veit ég ekki, hvort orðið yfirlæknir er haft þar, sem enginn undirlæknir er. Nú skilst mér á hv. þm. Vestm., að yfirvöldin væru búin að samþ. þessi nöfn. En ég vildi gjarnan vita, hvort þarna ætti að vera yfirlæknir og undirlæknir, þegar til kemur.

Annað kom mér í hug út af þessu með lækni þarna við hælið. Við vitum allir, að þeir, sem eru teknir á þetta hæli, eru vinnufærir; það er ætlazt til, að hver vistmaður geti unnið 3 stundir á dag. Nú liggur hælið í miðju Álafosslæknishéraði, mér hefur því dottið í hug, hvort heilbrmrn. og landlæknir vildu ekki athuga, hvort ekki mætti fella þetta saman og gera það ódýrara, þannig að héraðslæknir Álafosshéraðs væri einnig læknir við þetta hæli. Mér hrýs hugur við yfirlæknisnafninu og vildi gjarnan fá frekari skýringu á því, hvernig því mundi verða hagað, þegar til kemur.