27.01.1944
Sameinað þing: 10. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 2040 í B-deild Alþingistíðinda. (5755)

Þormóðsslysið

Gísli Jónsson:

Herra forseti. — Ég vil þakka hæstv. atvmrh. fyrir svör hans í þessu máli, þó að þau séu engan veginn tæmandi, og skýtur hann sér einkum undir meðráðh. sinn, hæstv. dómsmrh. En mínum fyrirspurnum er beint til hæstv. ríkisstjórnar allrar. Og vænti ég, að hann sem atvmrh., sem beinlínis hefur haft þetta mál með höndum, láti málið ekki tefjast hjá öðrum ráðh. lengur en þörf er á. Það eitt er ekki frambærileg afsökun, að málið sé búið að liggja hjá ráðuneytinu í 5 mánuði. Þessi rannsókn var látin fram fara til þess að upplýsa tvennt, ef hægt væri. Í fyrsta lagi, hvers vegna slysið hefði skeð, og í öðru lagi, hvort nokkuð væri hægt að læra af því fyrir framtíðina. Það á ekki að þurfa 5 mánuði, eftir að búið er að rannsaka mál, til þess að komast að niðurstöðum um þetta. — Mér virðist hæstv. atvmrh. leggja mest upp úr því, hvort hægt sé að höfða mál gegn einhverjum aðila. En það, sem fólk vill vita, er: Hefur nokkuð skeð í sambandi við þetta, sem hægt sé að setja í beint samband við slysið sjálft, og ef hægt er að vita nokkuð um þetta, hvað þá er hægt að læra af þessu. Ég vil því, að út séu gefin til þjóðarinnar, ef ekki öll þessi skjöl, þá a.m.k. útdráttur úr rannsókninni og niðurstöður dómsins. Mér er persónulega kunnugt um það, að sjódómurinn sjálfur er undrandi yfir þeirri afgreiðslu, sem málið hefur fengið í ráðuneytinu, þ.e.a.s. þeim töfum, sem það hefur orðið fyrir þar, því hér hefur því verið lýst yfir af hálfu hæstv. atvmrh., að þessi skjöl séu ekki komin frá dómsmrn. enn.

Hitt er vitað, að ekki neinn aðili, sem stendur að þessu máli út á við, getur kallað fyrir þetta vitni, sem hefur skrifað í blöðin, til þess að vita, hvaðan hann hefur þessar upplýsingar. Það er þó eðlilegt, að þessi maður sé látinn koma fram, ef hann veit eitthvað meira í málinu en fram hefur komið enn þá, til þess að það verði vitað, hvort hann telur, að þessar upplýsingar, sem hann setur fram í stjórnarblaðinu, standi í sambandi við slysið. Og ég á eftir að fá svarað þeirri fyrirspurn minni, hvort hæstv. atvmrh. ætlast til þess, að sjódómurinn ætli að halda áfram þeirri skyldu sinni að rannsaka allt, sem kemur málinu við, einnig að kalla þetta vitni fyrir, sem þykist mæla af mikilli þekkingu og vissu um þetta mál.

Ég á einnig eftir að heyra svar eða ástæður hæstv. atvmrh. um það, hvers vegna hann yfirleitt hefur leyft, að jafnþungar ásakanir séu bornar á stofnun, sem hann er yfirmaður yfir, og það í sjálfu stjórnarblaðinu, eins og ég benti á í fyrirspurn minni.

Það er ekki lítið atriði, að sjálft ráðuneytið, sjálfur atvmrh. leyfi ekki óábyrgum mönnum að rýra þá tiltrú, sem þjóðin þarf að bera til skipaeftirlitsins, með því dag eftir dag að halda fram þungum, ósómasamlegum og óviðkunnanlegum ásökunum á þessa stofnun.