27.01.1944
Sameinað þing: 10. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 2041 í B-deild Alþingistíðinda. (5756)

Þormóðsslysið

Atvmrh. (Vilhjálmur Þór):

Ég vil aðeins bæta því við það, sem ég sagði áður, að sjódómur ræður því, hvaða vitni hann kallar, en ekki ég. Það er á valdi sjódóms að kalla fyrir sig ný vitni, ef einhver hafa fram komið og hann telur þess þörf.

Um hitt, að ég sem atvmrh. og þar með yfirmaður skipaskoðunarinnar hafi ekki gert ráðstafanir gegn þeim sérstöku ásökunum, sem nýlega hafa komið fram í hennar garð, er það að segja, að það er nýbúið að leggja fyrir sjódóm Rvíkur að athuga þetta atriði, að ekki sé nægilegt eftirlit með hleðslu skipa. Þar til þeirri rannsókn er lokið, mun ég halda að mér höndum.

Viðvíkjandi rannsókninni út af Þormóðsslysinu, þá vil ég taka fram, að þegar ráðuneytið hefur athugað sjódómsskýrsluna, þá verða niðurstöður rannsóknarinnar birtar, en ekki fyrr.