16.02.1945
Sameinað þing: 94. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 599 í D-deild Alþingistíðinda. (5765)

242. mál, vinnuhæli berklasjúklinga

Þorsteinn Þorsteinsson:

Herra forseti. — Ég skal ekki vera langorður, en ég vildi aðeins láta það koma fram, að það ljón, sem hæstv. dómsmrh. sá á veginum viðvíkjandi því að skipa Álafosslæknishérað með tilliti til þessa starfs, er ekki svo ægilegt sem hann vildi vera láta. Það hefur einatt mátt takast að færa menn á milli embætta í svipuðum tilfellum, og hygg ég, að það gæti komið til athugunar, ef áhugi væri fyrir hendi hjá heilbrigðisstjórninni.