27.01.1944
Sameinað þing: 10. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 2044 í B-deild Alþingistíðinda. (5766)
Þormóðsslysið
Bjarni Benediktsson:
Ég vildi benda hv. 5. þm. Reykv. á það, að þegar talað er um morð, þá er átt við það, að maður vísvitandi og af ráðnum hug verði öðrum að bana. Og ég er sannfærður um, að hv. 5. þm. Reykv. ætlar engum þann hug ti1 íslenzkra sjómanna.
En þá kem ég að því, sem hæstv. ráðh. sagði. Rannsóknin á Þormóðsslysinu mun hafa leitt það í ljós, að sú breyting, sem gerð hefur verið á íslenzkum skipum, er á þá leið, að jafnvel hin beztu skip má telja lítt sjófær eftir hana. Og sé þetta rétt, þá átti að upplýsa það strax. Það má vera, að ég með þessu geri mig sekan um að ljóstra upp úr leyndarskjölum ríkisstjórnarinnar, en ég tel, að þetta sé mál, sem hefði átt að ræða fyrr.