16.02.1945
Sameinað þing: 94. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 624 í D-deild Alþingistíðinda. (5781)

284. mál, leiga á færeyskum skipum o.fl.

Garðar Þorsteinsson:

Herra forseti. — Það, að ég kvaddi mér hljóðs, er ekki vegna þess, að ég muni greiða atkv. móti því, að þessi samningur hafi verið gerður um færeysku skipin, heldur í tilefni setningar, sem er í texta till., þar sem farið er fram á að heimila hæstv. ríkisstj. að leigja skip þessi öðrum. Hefur það komið fram í ræuu hæstv. ráðh. og fleiri hv. þm., að það sé ætlunin að leigja þau samlögum útvegsmanna og þá með sérstökum kjörum.

Það er kunnugt, að hæstv. ríkisstj. hefur leigt brezk skip til fiskflutninga til Bretlands, og eins hefur hún leigt tvö skip af Eimskipafélagi Íslands. Hljóta þessir samningar að ganga nokkuð út yfir þá aðila aðra, sem einnig flytja fisk til Bretlands, þar sem ákvæðin í þessum samningum, sem hæstv. ríkisstj. hefur gert við áðurnefnd skip, veita þeim forgangsréttindi fram yfir önnur skip til þess að ganga fyrir um fiskkaup, þannig að þá liggja svo og svo mörg önnur skip og bíða eftir fiski til útflutnings, en þar eru þessi útlendu skip tekin fram yfir og fá fiskinn til útflutnings á undan. Ég skal viðurkenna, að brezku skipin eru öll stór og fara í skipalest til Bretlands og verða því að hraða ferðum sínum. Nú er mér hins vegar kunnugt um, að komið hefur til mála í vissum tilfellum, að fisksölusamlögin íslenzku taki á leigu íslenzk skip og hafa farið fram á það, að þessi íslenzku skip fengju einhver forgangsréttindi. Þau hafa hins vegar ekki verið veitt, og er mér persónulega kunnugt um það, að íslenzk stjórnarvöld eru ekki sammála um þetta, þannig að sumir íslenzku ráðh. vildu ekki ganga inn á það, að vissum íslenzkum skipum, jafnvel þótt þau væru tekin á leigu af fisksölusamlögum, væru veitt forkaupsréttindi, vegna þess að afleiðingin yrði sú, ef inn á þessa braut væri gengið, að þau skip, sem tekin væru á leigu af fisksölusamlögunum, fengju alltaf að vera í ferðum og fengju skjótari afgreiðslu, en aðrir aðilar, sem ættu skip og vildu kaupa fisk og flytja út, fengju ekki fiskinn nema í vissum tilfellum og aðeins, þegar hinum, sem hafa forkaupsréttindin, hefur verið fullnægt. Vitanlega er þetta það sama og að útiloka þessa aðila frá fiskflutningum til Bretlands, því að það er vitað, að sum íslenzk skip hafa þá tonnatölu, að þau geta í raun og veru ekki aflað sér tekna með fiskútflutningi nema á þeim tíma ársins, sem vertíð stendur yfir, þ. e. frá áramótum og fram til maíloka, en ef farið yrði inn á þá braut að veita skipum fisksölusamlagsins forkaupsréttindi á fiski úti um land, væru hin skipin, sem ég hef þegar minnzt á, útilokuð frá sínum atvinnurekstri, og er mér persónulega kunnugt um, að hæstv. ríkisstj. hefur ekki viljað heimila fisksölusamlögunum forkaupsréttindi á fiski.

Í þessari þáltill. er farið fram á að samþ. heimild til ríkisstj., þannig að hún geti leigt skip þessi öðrum. Það er sjálfsagt ekkert við þetta að athuga, og þess vegna er engin ástæða til þess fyrir hv. síðasta ræðumann að minnast á, að engin andmæli hafi komið gegn þessu á þeim fundum, sem þetta mál var til umr. Það getur verið afráðið, að fisksölusamlögin fái hin færeysku skip á leigu, en ég vil hins vegar, að það komi fram í þessu sambandi, að þessi leigutaki hafi ekki rétt til þess að láta sín skip ganga fyrir öðrum skipum, sem mæta á staðnum og vilja kaupa fisk. Hæstv. ríkisstj. tilkynnti ekki fyrir löngu 15% hækkun á fiskverði, og var jafnframt tekið fram, að fiskflutningum til Bretlands yrði hagað þannig, að sérstökum aðila, Landssambandi íslenzkra útvegsmanna, yrði falið að ráðstafa skipum til fiskútflutnings, þar sem fiskur væri mestur. Voru þau rök fyrir þessu færð, að með þessu væri útilokað, að fiskurinn hrúgaðist upp á einum stað, því að enginn getur vitað, hvar mest veiðist. T. d. hefur það nú sýnt sig, að á Ísafirði og við Hornafjörð eru sífelldar ógæftir, en hér við Faxaflóann hrúgast fiskur á land, og skil ég því þau rök, að nota beri þann flota, sem til er, til þess að flytja fiskinn í til Bretlands. Er vel hægt að sætta sig við þetta, með því að nota flotann betur og ef þeir, sem hafa á hendi fiskflutninga, gætu treyst því að fá fiskinn í skipin eins fljótt og unnt væri. En þetta trufluðu brezku skipin, þar eð þau höfðu forkaupsréttindi. Ég hef því innt hæstv. ríkisstj. eftir því, hvort færeysku skipin ættu einnig að hafa forkaupsréttindi, en hef ekki fengið annað en loðin svör við þessu. Hef ég það á tilfínningunni, að íslenzka ríkisstj. leggi ríka áherzlu á að leigja skipin út og heiti fisksölusamlögunum forkaupsréttindum. Þetta þýðir það, að þau íslenzku skip, sem ekki eru leigð með sömu kjörum og hin útlendu skip og hafa því engin forkaupsréttindi, verða að bíða eftir, að brezku og færeysku skipin, sem koma á staðinn, fái í sig fisk, áður en þau fá sjálf afgreiðslu. Afleiðingin af þessu verður sú. að engum íslenzkum útvegsmönnum dettur í hug að senda sín skip á staðinn til þess að fá fisk til útflutnings í þeirri óvissu um að þurfa að bíða fyrst eftir því, að hin útlendu skip verði afgreidd. Við getum tekið sem dæmi, að ein verstöð hafi fengið 7 færeysk skip á leigu og aðeins eitt færeyskt skip bíði eftir að fá í sig fisk. Í þeirri góðu von um, að nú gefist tækifæri til þess að fá fisk í fleiri skip, eru íslenzk skip send á staðinn til þess að fá fisk keyptan. Síðan gerir þrjá óveðursdaga, og ekki er hægt að róa, en á þessum þrem dögum geta hin færeysku skipin komið til Íslands; þau koma á staðinn, og íslenzku skipin eru rekin á brott, því að útlenzku skipin sitja fyrir, þar eð þau hafa forkaupsréttindi. Ég ætla ekki að áfellast hæstv. ríkisstj. fyrir, að hún hefur tekið þessi brezku, færeysku og tvö skip Eimskipafélagsins á leigu, en hins vegar kann svo að fara, að þessi floti nægi til þess að annast alla fiskflutninga til Bretlands, en afleiðingin af þessu verður að sjálfsögðu sú, að íslenzku skipin verða útundan, þar eð þau hafa ekki komizt að sömu samningum. — Enn er eitt atriði, sem við þetta bætist. Áður en vitað var, að brezku samningunum yrði sagt upp, voru gerðir samningar um fiskflutningaskip í okt.–nóv.mánuði s. l., en í þeim samningi ákváðu fisksölusamlögin, að tiltekinn fjöldi skipa skyldi sitja fyrir um fisk í hinum ýmsu verstöðvum. Þetta hélzt þannig, þar til hæstv. ríkisstj. greip fram í fyrir og bætti við skipum, sem að vissu leyti var eðlilegt, af því að á suma staðina barst meiri fiskur en hægt var að afgreiða til útflutnings. Afleiðingin af þessu varð aftur á móti sú, að sum þeirra skipa, sem bundin voru samningum við fisksölusamlögin, urðu að víkja fyrir skipum þeim, sem bundin voru samningum af ríkisstj.

Ég get sætt mig við þá aðferð, sem hefur verið við höfð í sambandi við brezku skipin, og mun greiða atkv. með þáltill. þeirri, sem hér liggur fyrir, ef hæstv. ráðh. vill lýsa því yfir, að færeysku skipin muni ekki fá forkaupsréttindi á fiski til útflutnings, þannig að hvert það færeyskt skip, sem mætir á hinum ýmsu stöðum til fiskkaupa, skuli þar fara eftir reglum, er nú gilda fyrir útvegsmenn um fiskkaup. Ég mun því greiða atkv. með þessari þáltill., ef hæstv. ríkisstj. vill lýsa því yfir hér á Alþ., að íslenzk skip hafi að þessu leyti jafnan rétt til fiskkaupa á við aðra og færeysku skipunum verði ekki veitt nein sérstök forkaupsréttindi; annars mun ég bera fram brtt. um, að forkaupsrétt að fiski hafi færeysku skipin ekki, en fari eftir reglum, sem hingað til hafa gilt í þessum efnum.