10.03.1944
Sameinað þing: 29. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 2045 í B-deild Alþingistíðinda. (5786)
Þormóðsslysið
Forseti (GSv):
Ég verð að gera athugasemd um það, hvernig þessi fyrirspurn er hér fram komin nú. Ég varaði mig ekki á, að hún væri svona veigamikil og líkleg til að valda umræðum, og að sá ráðh. er ekki viðstaddur, sem einkanlega virðist ráðizt á. Það má vel vera, að ríkisstj. geti svarað henni strax. En hefði ég fyrirfram vitað, hvaða mál átti hér að taka upp, þá hefði ég ekki leyft fyrirspurnina á þessu stigi málsins. Ég hefði viljað, að dómsmrh. væri aðvaraður áður um þetta. Fyrirspurnir í þvílíkum málum ber að gera að degi til, en ekki að nóttu og það þegar þingstörfum er alveg að ljúka. Hv. fyrirspyrjandi spurði mig, hvort hann gæti komið með fyrirspurn sína á morgun, en ég sagði það ekki vera, og væri þá bezt að koma fram með hana nú, ef tími ynnist til. En ég gáði ekki að spyrja, um hvað hún væri.
Ég vænti þess, að ekki verði þó langar umræður um þetta, en svar ríkisstj. verði látið nægja, þótt ég geri mér ekki háar vonir um svo stuttar umræður.