13.12.1944
Sameinað þing: 75. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 658 í D-deild Alþingistíðinda. (5842)
224. mál, virkjun Fljótaár
Jónas Jónsson:
Herra forseti. — Það eru ekki liðnir nema fáir dagar síðan ég gerði flm. þessarar þáltill., sem hér liggur fyrir, þann greiða að boða komu þessa máls hingað; vona ég, að hann virði þann stuðning á erfiðri braut, sem hann nú er á. Þegar verið var að ljúka við Rauðkumálið, var mér kunnugt um, að ráðandi menn Siglufjarðar sögðust ekki vilja sýna þetta mál hér á Alþ., fyrr en Alþ. hefði gengið frá ábyrgð fyrir Rauðku. Þess vegna drap ég á, að heppilegast væri fyrir alla aðila að ljúka þessu fyrra máli, til þess að unnt yrði að bera fram hið síðara mál Siglufjarðar. Það var ekki minnzt á eitt atriði í ræðum þeirra tveggja hv. þm., sem töluðu hér næst á undan mér, — þrátt fyrir að öll rök þeirra væru góð og gild —, en þeir hafa mátt vita það, að Siglufjörður er á dálítið öðru „plani“ heldur en Ísland hefur verið hingað til, og að lifa á þessu „Siglufjarðarplani“ er nákvæmlega í samræmi við Rauðku og þessi mál. Ég vil því segja það strax, að ég þykist vita það, að það Alþ., sem leit af mikilli mildi á síldarbræðsluna, þótt þar væri ástæða til þess að stinga við fótum, mun einnig ganga í ábyrgð fyrir þessar framkvæmdir, og svo mun það og gera fyrir þær ábyrgðir, sem eftir eiga að koma. Þetta er að vísu ekki álitlegt, og þeir útreikningar, sem hv. þm. Barð. gerði hér áðan, eru mjög skiljanlegir og leiddu fullkomnar sönnur að því, að hér er um að ræða ófyrirsjáanlegan taprekstur fyrir ríkissjóð. En það, sem mér finnst mega athuga nú og virða 1. flm. þessarar þáltill. til afsökunar, það er, að sú fjármálastefna, sem hans flokkur fylgir, er einmitt fólgin í því að nota sér hið borgaralega mannfélag út í yztu æsar og telur sjálfsagt að sóa fjármununum. Það er þess vegna ekki sprottið af neinni illri ósk í garð Siglfirðinga, sem ég verð að spá því, að Siglufjörður hlýtur að fara á höfuðið undir þeirri stjórn, sem hann nú hefur haft; það hlýtur að fara þannig fyrir Siglufirði, þar sem ætlazt er til með þessum framkvæmdum, að hverjir 100 menn á öllum aldri eiga að bera 1 millj. kr., fyrir utan allt annað. Ég er þess vegna ekki alveg eins bölsýnn og þessir tveir hv. þm., sem töluðu hér á undan mér. Að því þarf að koma, að Siglufjörður renni sína braut á enda, þótt það verði nokkuð dýrkeypt fyrir þjóðina, en af þessari reynslu munu landsmenn læra það, að hin kommúnistiska stefna er ekki hæf í okkar þjóðfélagi, og af þessum framkvæmdum á Siglufirði á kommúnisminn að fá sinn banabita á Íslandi. Það er ekkert eins vel fallið og Rauðkumálið og þetta mál til þess að kenna þeim vesalings, auma borgaralega landslýð, sem hefur látið glepjast af þessari stefnu, hvernig þessir ágætu ungar eru, sem hún elur við brjóst sér.
Ég vil nú, þrátt fyrir að mér er ljós hin ógurlega nauðsyn þess, að þróunin á Siglufirði nái sinni fullkomnun, benda á fáein atriði til viðbótar við það, sem gert var af tveim hv. þm., sem ræddu þetta mál hér á undan mér. — Í fyrsta lagi er það, að íbúar Siglufjarðar virðast ekki hafa verulega löngun til þess að koma þessum fyrirtækjum á. Þetta hefur komið í ljós, þegar verið er að bjóða út lán fyrir Siglufjörð, — og er Siglufjörður nú talsvert vel stæður —, að hann hefur ekkert fé látið af hendi í þessu skyni. Nú nýlega, þegar hæstv. atvmrh. var á sinni vegferðarleysu með Svíþjóðarbátana, hafði hann útdeilt tveim bátum handa Siglufjarðarbæ, sem ekki virðist of mikið handa þeim, en þegar til kom, virðast Siglfirðingar ekki hafa óskað eftir að eignast þessa báta, jafnvel með þeim ágætu kjörum, sem Þjóðviljinn lofaði svo mjög um daginn. Niðurstaðan varð svo sú, að ekki var hægt að ganga frá kaupum um þessa tvo 80 tonna báta, á ½ millj. kr. hvorn bát, fyrr en búið var að þrautreyna borgarana, hvort þeir vildu ekki vera með í þessum kaupum. Það er þess vegna mála sannast, að Siglfirðingar virðast ekki svo áfjáðir í að ráðast í framkvæmdir, þar sem þeir voru svo tregir til að ráðast í þessi bátakaup, er þeim voru boðin af sínum ágæta hæstv. ráðh. og hv. alþm. — Ég vil skjóta því til 1. flm. og fulltrúa Siglfirðinga hér, að hann mundi sýna af sér mikinn manndóm, ef hann safnaði þessum 5 millj. kr. heima fyrir og sýndi þar með, hvaða hugur fylgdi máli hjá bæjarbúum. — Þá get ég ekki gengið fram hjá þeim afsökunum, sem 1. flm. bar hér fram fyrir máli sínu, en þær eru þess eðlis, að ég held, að nauðsynlegt verði að setja ekki minna en sex prófessora við hina tilvonandi verkfræðingadeild, til þess að við getum fengið hæfari menn heldur en nú hafa verið valdir til þess að standa fyrir þessum framkvæmdum, en 1. flm. lýsti yfir því, að undirbúningur allur hefði verið óeðlilegur. Annaðhvort hafa þeir menn, sem þetta hefur verið falið, framkvæmt þessa rannsókn illa eða þeim hefur verið bannað að rannsaka það. Aðalatriðið er viðvíkjandi stíflunni og leiðslunni, en það, sem undir þessum kringumstæðum þarf að rannsaka, er ekki aðeins yfirborðið, heldur einnig dýptin og jarðvegurinn, en þetta hefur hins vegar ekki verið gert. Það er því ekki hægt að neita því, að Siglufjarðarkaupstaður verður að líða fyrir það að hafa kosið sér svona heimska þjóna eins og hér um ræðir, og ekkert sanngjarnara heldur en íbúar þessa bæjar leggi sjálfir fram fé til þeirra framkvæmda, sem þeirra lélegu ráðunautar hafa lagt þeim á herðar með sinni ófullkomnu rannsókn. Ég er einnig hræddur um, að það sé eitthvað bogið við þær ásakanir, sem 1. flm. bar fram gegn fyrrv. ríkisstj. viðvíkjandi því, að hún hefði tafið málið, þar sem hann telur fram svo margar yfirsjónir, sem beinlínis eru hans starfsmönnum að kenna og hægara hefði verið að sjá við heldur en um flutninga á vörum frá öðrum heimsálfum á þessum tímum. — Ég get ekki komizt hjá því að minna 1. flm. á, hvernig vinnubrögð hafa verið við þetta verk, sem hann fór þó ekki mikið út í. Mér er t. d. kunnugt um, að einn hópur bifreiðastjóra, sem vann við þetta fyrirtæki, gerði eins konar verkfall og kom sér saman um að keyra eins hægt og unnt var. Eftir þessu er svo fundinn grundvöllur að samningsvinnu, þannig að kaup við þetta fyrirtæki verður þrefalt hærra en hjá vegamálastjóra, og þótt þetta sé auðvitað fjarstæða, er það í samræmi við allt annað í þessum málum. Það virðist og allt útlit fyrir, að þeir menn, sem að þessum framkvæmdum standa fyrir Siglufjörð, ætli sér aldrei að borga þær, heldur ætli að fá fé til þeirra úr ríkissjóði og láta hann borga fyrir sig.
Ég heyri, að hæstv. forseti vill knýja málið áfram, enda komið að fundarlokum, en ég hygg, að þetta mál sé þess eðlis, að það sé betra fyrir Alþ. eftir því sem það dregst lengur, og bezt væri, að ekki yrði greitt meira til þessara framkvæmda heldur en þegar hefur verið gert.