15.12.1944
Sameinað þing: 76. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 660 í D-deild Alþingistíðinda. (5844)

224. mál, virkjun Fljótaár

Atvmrh. (Áki Jakobsson):

Mál það, sem hér liggur fyrir, hefur nú komið til þingsins áður, í öðru formi að vísu, og má segja sem svo, að þetta sé sá hörmulegasti þáttur þessa máls hér á þingi. Svo er mál með vexti, að Siglufjarðarkaupstaður leggur út í að virkja Fljótaá, fallvatn, sem talið var af sérfræðingum bezt fallið til virkjunar af þeim fallvötnum, sem eru í nánd við Siglufjörð. Samkvæmt áætlunum, sem fyrir lágu, skyldi virkjunin kosta 6 millj. kr. Á þeim grundvelli voru framkvæmdir hafnar. Ríkisábyrgð var samþ., bæjarstj. keypti vélar, gerði samninga um verkið, og síðan var því hrundið af stað, sem þarna er búið að gera. En það hefur komið á daginn, að þessi áætlun fór svo gersamlega út um þúfur, að verkið mun kosta 13 millj. kr. í staðinn fyrir 6. Það eru náttúrlega engir hryggari yfir þessu en Siglfirðingar sjálfir. Sama get ég og sagt um mig sjálfan, sem hef mikið staðið að þessu máli á þingi ásamt ýmsum öðrum. Og ég veit, að slíkt tilfelli sem þetta hlýtur að vera áhyggjuefni jafnvel þjóðarinnar í heild.

Það er náttúrlega óskaplega einfalt mál að standa upp og segja: Það á bara að hætta við þetta. — En þetta er ekki hægt að gera. Það er búið að verja til þessara framkvæmda millj. kr., sem ríkissjóður ber ábyrgð á, og auk þess nokkrum millj., sem Siglufjarðarkaupstaður ber ábyrgð á. Og að segja nú, að við eigum ekki að bæta við nokkrum millj. til þess að komast úr öngþveitinu, heldur láta þessar millj. verða að engu, slíkt er engin leið. Og ég veit, að þeim, sem láta sér þetta um munn fara, dettur ekki í hug sjálfum, að slíkt nái nokkurri átt.

En það var hv. 2. þm. S-M., sem beindi þeirri aðdróttun fyrst og fremst að mér, sem hef haft eðlilega mest þingmanna með þetta mál að gera, að það hafi legið fyrir í upphafi málsins, að verkið mundi verða allmiklu dýrara en áætlað var, jafnvel kannske eins dýrt og það nú er orðið, en þingið hafi verið leynt þessu og þannig framin bein svik og borinn fram loginn málstaður. Þetta er náttúrlega gersamlega óforsvaranleg röksemdafærsla, og gegnir furðu, að nokkur hv. þm. skuli leyfa sér annað eins. Hins vegar þarf að vísu ekki að kippa sér upp, þó að úr hópi þeirra þm., sem þessi hv. þm. tilheyrir, komi önnur eins ósvífni og felst í þessu. Hv. þm. las upp eina þál. um málið. og sagði, að það hefði alltaf komið fram fyrir þingið skýringalaust. En hann er nákunnugur öllum þskj., sem lögð hafa verið fram, öllum umr. um málið allt frá fyrstu byrjun, og efast ég ekki um, að hann hafi glöggvað sig á þeim áður en hann tók til máls. Hann hefur þess vegna vísvitandi valið þessa þál., sem ekki er grg. með, til þess að geta fengið orðum sínum stað, ef vera kynni, að hann yrði látinn sleppa í gegn með þessar fullyrðingar.

Ég vil þá rekja þskj. í þessu máli frá byrjun. Í fyrsta lagi var þetta mál borið fram á sumarþinginu 1942 í þál.formi, og flm. voru Garðar Þorsteinsson, Einar Árnason, Finnur Jónsson og ég. Með þeirri þáltill. fylgdi grg. Á eftir grg. var prentaður nokkuð langur útdráttur úr álitsgerð rafmagnseftirlits ríkisins, undirritaður af forstöðumanni þess, Jakobi Gíslasyni rafmagnsverkfræðing, og ýtarleg umsögn Steingríms Jónssonar, undirrituð af honum. Auk þess fylgdi þáltill. útdráttur úr gerðabók bæjarstjórnar Siglufjarðar, þar sem samþ. er gerð um að fara fram á þessa ríkisábyrgð. Þá er farið fram á 6 millj., og er það byggt á þeim áætlunum, sem þá höfðu farið fram, sem vegamálastjóri f. h. ríkisstj. og á vegum hennar hafði farið yfir og viðurkennt að sínu leyti, sem leiddi til þess, að ríkisstj. samþ. að ráðast í verkið. Þarna eru dregnar saman í stuttu máli niðurstöður færustu sérfræðinga á sviði rafmagnsmálanna, sem við eigum völ á hér á landi, og látnar fylgja þáltill.

Þessi till. var ekki afgr. á sumarþinginu 1942; vegna anna varð ekki af því. Málið kom svo aftur fyrir á þinginu, sem kom saman eftir kosningar í október 1942. Var það þá í frv.formi og flutt af mér, Finni Jónssyni og Garðari Þorsteinssyni. Því frv. fylgdi grg. Reyndar er í byrjun vísað til þeirrar grg., sem fylgt hafi till. til þál., sem áður var lögð fyrir. En auk þess var birt nýtt álit Steingríms Jónssonar um málið, þar sem gerð var grein fyrir hinum breyttu viðhorfum.

Hv. 2. þm. S-M. hélt fram, að kostnaður verksins hefði verið miðaður við allt annað verðlag heldur en hefði átt sér stað, meðan þetta var samþ., og að við flm. hefðum vitað þetta. Hér er líka farið með algerlega rangt mál, vegna þess að það er beinlínis tekið fram í álitsgerð Steingríms Jónssonar, sem fylgdi frv., sem lagt var fram í nóvemberlok eða desemberbyrjun 1942, að kostnaðaráætlun vegna virkjunar Skeiðsfoss í Fljótum hafi verið endurskoðuð 1942 og leiðrétt samkv. breyttum aðstæðum. Þetta gerðist í okt. 1942, sem sagt nokkrum vikum áður en málið var lagt fyrir þingið. Þá höfðu menn komizt að raun um, að virkjunarkostnaður mundi hækka um 750 þús. kr. Hins vegar kvað Steingrímur ekki hafa fengizt leyfi hjá Bandaríkjastjórn nema fyrir annarri vélasamstæðunni, 750 þús. kr., sem lækkaði kostnaðinn um þá upphæð. Þegar því frv. var lagt fram, hafði verðlag breytzt, þannig að kostnaðurinn hækkaði að mun. Þannig vantar á hverjum tíma áætlun í sambandi við ríkisábyrgðarheimildina, miðað við það, sem allir aðilar og verkfræðingar þar með vinna sannast og réttast á hverjum tíma. Það er því algerlega rangt, að það hafi verið gerð nokkur tilraun til þess að halda fyrir hv. þm. upplýsingum um málið. Hins vegar hefur frv. dregizt nokkuð lengi, því að það var lagt fram í nóv. eða des. 1942, en ekki samþ. fyrr en í febrúar 1943, að mig minnir, og ekki staðfest af ríkisstj. fyrr en 2. apríl, og þessi mikla töf hér í þinginu orsakaðist af því, að fjhn. sendi málið til mþn. í raforkumálum, sem samdi langt álit, sem hún svo sendi þinginu, og tók það hana svona langan tíma að semja álitið.

Meiri hluti fjhn, lagði til, að ríkisábyrgðin yrði ekki veitt, og vildi gefa Siglfirðingum ávísun á rafveitu Akureyrar; hins vegar lagði minni hl. til að frv. yrði samþ. og ríkisábyrgðin veitt. En þessar umr. leiddu í ljós margt af þeim upplýsingum, sem fyrir lágu um þessa virkjun, og ég efast ekki um, að þeir, sem töldu rangt að veita þessa ábyrgð, hefðu vafalaust bent á, hefði það legið fyrir, að hún yrði sýnilega helmingi hærri. Þeir gizkuðu á, að hún mundi geta hækkað allverulega, og er það einfalt mál. Það fór eftir því, hve framkvæmdir gengju fljótt og hve verðhækkun yrði mikil. En ef maður ætti aldrei að leggja í framkvæmdir, sem maður væri ekki viss um að færu aldrei fram úr áætlun, þá væri lítið gert. Þó virðist það vera skoðun hv. þm., að á verðbólgutímum eins og nú sé réttast að leggja árar í bát og gera ekki nokkurn hlut. Ég skil ekki, hvað liggur á bak við slíka skoðun og hvernig fólk eigi yfirleitt að lifa, því að það verður að borða á sama tíma og verðbólga gengur yfir ekki síður en á öðrum tímum.

Þetta frv. er síðan samþ. og ríkisábyrgðin veitt. Meiri hluti þm. komst að þeirri niðurstöðu eftir ýtarlegar umr. og eftir að hafa kynnt sér álitsgerð okkar færustu manna, að rétt sé, að Siglfirðingar virki Fljótaá til raforkuframleiðslu fyrir sig. En þá bregður svo einkennilega við, að fyrrv. ríkisstj. telur sér ekki skylt að framkvæma málið. Samkvæmt venju var þetta frv. orðað á þá leið, að ríkisstj. sé heimilt gegn þeim tryggingum, er hún metur gildar, að veita þessa ríkisábyrgð. Og fyrrv. ríkisstj. vildi leggja í þessi orð þann skilning, að hún þyrfti ekki að gera þetta, né heldur að gefa ákveðna yfirlýsingu. Og hún neitaði að láta ríkisábyrgðina, en lét um síðir til leiðast með fyrri helminginn, 3 millj. kr., en sat við sama keip fram á haust 1943, og þá fyrir beiðni bæjarstjórnar Siglufjarðarkaupstaðar var það, að formenn 3 flokkanna, Sjálfstfl., Sósfl. og Alþfl., fluttu hér þáltill. um að fela ríkisstj. að gefa út þessa ríkisábyrgð. Sú þáltill. var ekki annað en yfirlýsing um það, hvað þingið átti við, þegar það samþ. lögin um vorið. Þessi þáltill. var skýringarlaus, af því að hún þurfti engrar skýringar við, — það var aðeins verið að taka af öll tvímæli um það, að þeir vildu, að þessi ríkisábyrgð yrði veitt.

Þannig liggur málið fyrir, og síðan er, eins og þm. er kunnugt, búið að samþ. þál. um 2 millj. kr. hækkun á ríkisábyrgðinni. Og þá var fullyrt af þeim, sem báðu mig um að flytja málið og með stuðning þeirra fagmanna, sem þeir höfðu sér við hlið, að það mundi verða nægilegt til þess að ljúka við verkið. Ég get fyllilega sagt, að það var mér ekki minna undrunarefni en hverjum öðrum þm., að svo hörmulega skyldi til takast, að þessar 2 millj. kr. skyldu ekki nægja, heldur þyrfti 5 millj. í viðbót. Þess vegna er engin ástæða að vera með dylgjur um, að maður hafi verið að halda upplýsingum fyrir þm.

Það er óhjákvæmilegt að rifja upp nánar sögu þessa virkjunarmáls Siglfirðinga. Frá því 1927–28 hefur staðið yfir rannsókn meira og minna á hverju ári fram að þeim tíma, að virkjunin hófst, og allir sérfræðingar, sem þar hafa komið nærri, sem eru Steingrímur Jónsson, sem gerði fyrstu áætlunina 1929, vegamálastjóri og Jakob Gíslason, sem gerðu aðra áætlun 1937, og síðan Kay Langvad, sem gerði breytingu á þeirri áætlun 1941–42, töldu, að Fljótaá væri sjálfsagt fljót fyrir Siglfirðinga til að virkja. Þær breytingar, sem gerðar voru hjá Kay Langvad verkfr. frá áætlun vegamálastjóra og Rafmagnseftirlits ríkisins, voru, að stíflan var færð niður um 330 metra, en þar með þurfti stíflan að hækka um meira en helming til þess að halda sömu vatnsborðshæð. Þetta var byggt á því, að grundvöllurinn undir stífluna væri betri, þegar komið væri þangað niður eftir, heldur en var á upphaflega staðnum og átti þess vegna að geta sparað Siglufjarðarkaupstað kostnað. Það hefur hins vegar komið á daginn, þótt ekki sé hægt að segja fyrir víst, hvort þetta hafi sparað, því að við vitum ekki, hvað það hefði kostað á upphaflega staðnum, að bergið, sem byggt var á, var ekki nógu sterkt til að bera stífluna, því að stíflan er gífurlega há, 25 metrar, mjög miklu hærri en nokkur önnur stífla hér á landi, og hefur sennilega ekki verið tekið nægilegt tillit til þess kostnaðar, sem fór í að styrkja bergið undir stíflunni, áður en hægt væri að reikna með því, að það gæti borið þessa stíflu. En sem sagt, þessi áætlun var send ríkisstj., sem svo sendi hana til vegamálastjóra, og hann fór, eftir því sem ég veit bezt, mjög ýtarlega yfir áætlunina og sendi það álit til ríkisstj., að hann teldi rétt að ráðast í þessa framkvæmd. Hann hafði að vísu tekið fram, að hann drægi í efa, en vildi þó ekki fullyrða neitt um það, að stíflan yrði hentugri og ódýrari á þeim stað, sem gert var ráð fyrir á áætlun Kay Langvad, heldur en á þeim stað, sem gert var ráð fyrir á upphaflegri áætlun vegamálastjóra. En hann var þó ekki það ákveðinn, að hann teldi, að stöðva ætti framkvæmdir af þeim sökum og gera ýtarlega rannsókn, þannig að það varð til þess, að ríkisstj. samþ., að út í verkið yrði farið. Það má segja sem svo, að það sé óleyst spurning enn þá, hvort rétt hafi verið að fara út í þessa breytingu og byggja stífluna eina og hún er nú. En það þýðir ekki að sakast um það úr því sem komið er. Hún verður að notast þar, sem hún er, og enda þótt hún sé dýr, er hún að áliti verkfræðinga orðin það traust, að ekki þarf að óttast, að hún bili.

Kostnaðurinn við verkið hefur hækkað gífurlega. Í grg., sem fylgir þáltill., er fskj. frá rafmagnsstjóranum í Reykjavík, þar sem hann gerir grein fyrir þessari hækkun og bendir á, að verkamannskaup hafi á þessum tíma hækkað úr kr. 2,37 upp í kr. 7,05 á klst. og trésmiðakaup úr kr. 3,64 upp í 11,40 á klst. Það er óþarfi að draga inn í umræður um þetta mál ástæðuna fyrir þessari hækkun. Við vitum, að verðlag hluta er af þessum ástæðum ekki kauphækkun, heldur dýrtíðarvísitalan, sem orsakast af hinni almennu dýrtíð, sem er í landinu. Ég ætla að leiða deilur um orsakir fyrir dýrtíðinni, sem svo oft hafa komið inn í ýmsar umr., framhjá mér í þessu sambandi. En það sér hver einasti maður, að það er ekki óeðlilegt, þó að þarna verði nokkur stækkun upp á við, en þessi hækkun á kaupgjaldinu skýrir engan veginn þessa gífurlegu hækkun.

Lítils háttar hækkun, um nokkur hundruð þús., orsakast af hækkun á farmgjöldum, en töluvert mikil hækkun stafar af því, að timbur var látið liggja í marga mánuði í Ameríku og fékkst ekki flutt hingað, þannig að ekki var hægt að hefja vinnu fyrr en síðar, eftir að kaupgjaldið var orðið allmiklu hærra.

Ég tel, að langveigamesta orsök hækkunarinnar sé sú, að verkfræðingarnir hafi ekki getað séð fyllilega rétt fyrir, hvað þetta var mikið verk, sem verið var að ráðast í, og að stíflan hafi verið stórbrotnara verk en þeir gerðu sér í hugarlund.

T. d. aðeins eitt atriði af mörgum, að gera ráð fyrir árbotninum. Ég fyrir mitt leyti gat ekki hugsað annað en búið væri að gera rannsókn á því fyrirfram, en það er verkefni verkfræðinganna að rannsaka, hve langt sé á fastan botn í ánni, og það kemur fram, þegar verkið hefst, að það er 6 metra gljúfur, sem fullt var af sandi og möl, sem þurfti að ná burtu. Það segir sig sjálft, að kostnaðurinn eykst geysilega, þegar þarf að koma vatninu frá sér í gegnum rás, sem höggvin var í þessi gljúfur, og þegar þarf að stífla ána fyrir ofan og neðan virkjunarstaðinn, og vegna þess, hve jarðvegurinn var gljúpur, þá rann nærri stöðugt í holuna, svo að vélar urðu að vera í gangi til þess að dæla vatninu úr holunni.

Þetta var vandamál, sem verkfræðingunum sást yfir. Vitanlega segir sig sjálft, að það er engin afsökun fyrir fagmenn að sjá ekki út svona hluti, og er þetta byggt á því, að þeir hafi ekki framkvæmt þá undirbúningsrannsókn, sem nauðsynlegt var að framkvæma, til þess að þær fullyrðingar, sem þeir gáfu út um kostnaðinn, væru ábyggilegar. En það er ekki hægt að gera kröfu til þess, að þeir hafi varað sig á þessu, þegar þeir fylgdust ekki með í einstökum þáttum í rannsókninni. Í sambandi við þessa virkjun Fljótaár hafa komið fram ýmis vatnavirkjunarvandamál, sem við höfum ekki áður orðið að horfast í augu við hér á landi. Það er t. d. hæð stíflunnar og þungi. Við höfum ekki áður þurft að horfast á augu við það vandamál, að það þyrfti að gera stórfelldar ráðstafanir til þess að styrkja bergið undir stífluna, svo að það haldi uppi stíflunni. Þetta er hæsta stífla hér á landi. Það hafa orðið mistök við hana, en það er enginn vafi á því, að þessi mistök verða til þess að leiðbeina við virkjun hér á landi. Það er vitanlega skellur, sem Siglfirðingar verða að taka á sig, en þó hefur málið þá jákvæðu hlið fyrir þjóðina í heild, að það má í framtíðinni varast þá skelli, sem skollið hafa yfir Siglfirðinga. Þá er vert að gera sér ljóst, hvað hefði mátt gera til þess að fyrirbyggja þau mistök, sem hér hafa orðið. Ég álít, að það hafi verið mistök í undirbúningi málsins að láta ekki trúnaðarmenn ríkisstj., rafmagnsstjórann og vegamálastjórann, fylgjast nákvæmlega með í hverjum einstökum lið áætlunarinnar og þeirri breytingu, sem Kay Langvad framkvæmdi.

Það sýnir sig, að það er ekki nóg að afhenda þeim áætlunina eftir á og ætlast til þess, að þeir gætu á tiltölulega skömmum tíma, með því að athuga staðinn, gefið fullnægjandi umsögn í þá átt, að á því sé byggjandi. Það væri nauðsynlegt, að þeir gætu fylgzt nákvæmlega með og sjálfir gert áætlunina upp aftur.

Ég býst við, að þetta kenni okkur, að ekki sé rétt að ráðast út í nein verk, fyrr en búið er að gera slíka ýtarlega áætlun af trúnaðarmönnum ríkisstj. og þeim, sem Alþ. treystir bezt í þessum efnum.

Ég hef orðið var við það, að ýmsir þeirra manna, sem virtust andvígir því, að Siglfirðingum væri gert kleift að halda áfram við þessa virkjun, hafi haldið því fram, að Kay Langvad verkfr., sem er framkvæmdastjóri fyrir Høgaard og Schultz, hafi haft tilhneigingu til að láta áætlunina vera lægri, til þess að meiri líkur væru til, að lagt væri út í verkið og þar með, að hans félag fengi þá starfrækslu, sem því var samfara.

Ég vil ekki halda þessu fram, og ég tel enga ástæðu til þess, og það liggja engin rök fyrir því. Ég álít, að það væri Siglfirðingum fyrir beztu, að látin væri fara fram á Siglufirði og hjá okkur hér á þingi, sem höfum mestan áhuga fyrir þessu máli og höfum mest starfað að því, og enn fremur þeim verkfræðingum, sem starfað hafa við það, ýtarleg rannsókn á öllum liðum, á efni og verkfræðilegum undirbúningi verksins allt frá byrjun og hvort nauðsynlegt er, að það komi fram við rannsóknina, hvort málinu sé þannig farið, að einhver eigi sök á þeim mistökum, sem orðið hafa, og láta ýtarlega rannsókn á gangi málsins hér á þinginu og hvað lagt hafi verið fyrir þingið og hvort orðrómur og staðhæfingar þm. hafi við rök að styðjast, að við stuðningsmenn þessa máls hér á þingi höfum verið að leyna fyrir þm. upplýsingum um málið, og að lokum að láta fara fram fjárhagslega rannsókn á verkfræðilegum framkvæmdum verksins. Ég álít líka rétt, að ríkisstj. beinlínis skipi eftirlitsmann til þess að hafa eftirlit með framkvæmdum, sem eftir er að framkvæma við virkjunina. Ég býst við því, að af þeim mistökum, sem þessi mál hafa leitt í ljós, sé rétt af ríkisstj. og Alþingi, að í hvert skipti, sem lagt er í verk, þá verði beinlínis tilnefndur ákveðinn trúnaðarmaður, sem Alþingi og stjórnin bera traust til, til þess að fylgjast með í framkvæmd verksins. Það segir sig sjálft, að þegar lagt er í stór verk, þá er ekki hægt að hætta í miðju kafi, hvað þá þegar 20% eru eftir. Það vita allir, sem vilja æsingalaust tala um svona mál, að þegar búið er að festa svona mikla peninga, þá er ekki hægt að snúa við, og því þarf að gera kröfu til þess, að undirbúningur sé góður og fulltrúi ríkissjóðs fylgist með í framkvæmd frá byrjun til enda.

Eins og nú er, þá hafa forstöðumaður Rafmagnseftirlits ríkisins, ráðunautur ríkisstjórnarinnar í vatnavirkjunarmálum og vegamálastjóri ekki fylgzt neitt með framkvæmdum verksins og þess vegna ekki heldur gert aðvart og lagfært í tæka tíð, þegar á hefði þurft að halda, og ég tel, að það sé ein ástæðan til þess, að svo illa hefur nú til tekizt og raun hefur á orðið. Ég álít þess vegna fulla ástæðu til þess að taka þetta Siglufjarðardæmi til aðvörunar framvegis og koma því lagi á, að slíkt eftirlit verði haft með stórvirkjun eins og ég hef nú lýst.

Það hefur verið ráðizt í tvær stórvirkjanir, sem hægt er að bera saman við þessa virkjun, sem hér er um að ræða; það er virkjunin hér í Reykjavík og á Akureyri. Það er svo, að Reykjavík hafði mjög góðan undirbúning, enda svo stór bær, að hann hafði ráð á því að ráða í þjónustu sína verkfræðinga og framkvæma mjög ýtarlega og fullkomna undirbúningsrannsókn. Hann hafði þess vegna líka aðstöðu til þess að fylgjast vel með allri framkvæmd verksins hjá sér, en það var látið í akkorði til sama félags og nú hefur starfað að virkjun fyrir Siglufjarðarkaupstað.

Á Akureyri mun það hafa verið svo, að Rafmagnseftirlit ríkisins og vatnavirkjunarráðunautur ríkisins höfðu allnáið samstarf og eftirlit með framkvæmd virkjunarinnar frá byrjun, enda voru þeir þá svo heppnir, að þeir gátu séð þetta miklu greinilegar fyrir, og má segja, að það hafi líka átt sér stað í Soginu, sem var miklu einfaldara verk, eftir því sem verkfræðingarnir telja, og miklu þekktara vandamál við þá virkjun heldur en þau, sem leysa þurfti við virkjunina á Skeiðsárfossi, enda kom ekki til, að önnur eins mistök yrðu þar, að virkjunarkostnaðurinn færi svo fram úr áætlun. Vitanlega er það að athuga, að þetta var gert á allt öðrum tímum og töluvert mikill þáttur í hækkun virkjunarkostnaðarins orsakaðist að talsvert miklu leyti af breytingu á verðgildi peninga, breytingum á kaupgjaldi og öðrum tilkostnaði. Hv. þm. S.-Þ. var að segja sögu af því, hvernig þessi virkjun hafi verið framkvæmd, og skildist mér, að það hafi verið samtök hjá bifreiðastjórum, sem keyrðu efni, að vera svo lengi og hafa eins lítið á hverjum bíl og hægt væri. Svona sögur eru búnar til, og það getur ekki verið, að tilgangurinn hjá hv. þm. sé, að þær séu beinlínis teknar í alvöru. Mér er ókunnugt um, hvernig verkið hefur verið framkvæmt, en ég efast ekki um, að reynt hefur verið að hafa eftirlit með því, hvort bifreiðastjórar sem aðrir hafi framið svik á ráðningarsamningi sínum og reynt að afla sér peninga fyrir enga vinnu. Annars er þetta það, sem verkamenn verða oft að þola, að kastað sé á þá, og eru þeir oft látnir gjalda fárra einstaklinga, sem leyfa sér þau vinnubrögð að svíkjast undan þeirri vinnu, sem þeir hafa tekizt á hendur.

Þá kemur það líka til, hvort þessi virkjun geti staðið undir sér. Það atriði liggur fyrir í áliti Steingríms Jónssonar rafmagnsstjóra, þar sem hann telur, að líkur séu til þess, að stöðin geti staðið undir sér með 1600 kw afkastagetu. Þá gerir hann ráð fyrir, að hægt verði að selja rafmagn til síldarverksmiðjunnar fyrir 250 þús. kr. árlega og rafmagn til hita fyrir 250 þús. kr. Við skulum segja, að ekki verði hægt að setja í þessa 2 liði nema sem svarar helming af því, sem gerð er áætlun um, sem sagt, að það verði rúmlega 200 þús. kr. tekjuhalli á fyrsta rekstursári. Þýðir það, að það sé endilega rangt að ráðast í þessa virkjun? Ég veit ekki annað en gert hafi verið ráð fyrir tekjuhalla fyrstu 3 árin af Sogsvirkjuninni. Reyndar varð tekjuhallinn enginn. Þó var ekki hikað við að leggja út í þetta, og þegar athugað er, að hér er lagt út í mannvirki, sem getur því sem næst viðhaldslaust rúllað áfram í 60 til 70 ár, þá sjáum við í hendi okkar, að það er ekki stórt atriði, hvort fyrirtækið ber sig fyrsta árið eða fyrstu árin. Á Siglufirði er túrbína, — með alelztu vatnstúrbínum á landinu —, sem er í jafngóðu standi núna eins og þegar hún var sett niður. Viðhaldið er svo hverfandi, að það er ekki hægt að nefna það neinum tölum, og hún er mörg hundruð sinnum búin að borga sig niður á þessum árum, sem liðin eru.

Vatnsvirkjunin er ekki fyrir 1, 2 eða 3 ár, og þess vegna er nauðsynlegt, að við séum ekki of skammsýnir, þegar við dæmum um hagkvæmi vatnsvirkjunarinnar. Það er ósköp eðlilegt, þó að framsóknarmönnum í þingflokknum, sem eru þekktir að því að vera skammsýnir í skoðunum á atvinnuháttum þjóðarinnar, finnist eðlilegt, að við miðum okkar framkvæmdir í rafveitumálum við, að þetta geti borið sig kannske fyrsta árið. Þó að það komi ekki fram hjá Steingrími Jónssyni, þá höfum við fulla ástæðu til að ætla, að stöðin geti staðið undir sér fyrsta árið, og þótt svo verði ekki, þá er aðeins örskammur tími, þangað til verður svo. Síldarafköst verksmiðjunnar á Siglufirði eru ekki minni en 14 til 15 þús. mál á sólarhring. Það er verið að stækka hana um 5 þús. mál. Það liggur fyrir að stækka hana fyrir vertíð 1946 um 15 þús. mál. Siglufjörður er nú þegar, áður en hin mikla stækkun fer fram, sem búið er að ákveða, stærsti verksmiðjubær á landinu. Ég horfi náttúrlega þarna burt frá Reykjavík, því að það gilda allt önnur lögmál í Reykjavík og vandamálin horfa öðruvísi við, þar sem það er svo miklu stærri borg. En Siglufjörður er stærstur, að undantekinni Reykjavík. Siglufjörður er í sambandi við einn höfuðþátt í atvinnulífi Íslands, hagnýtingu á síldaraflanum, og á kreppuárunum fyrir stríð var það ekki sízt Siglufjörður og atvinnutækin þar, sem átti sinn verulega þátt í að skapa þjóðinni þann gjaldeyri, sem gerði henni þó fært að treina í sér lífið á þeim erfiðu árum.

Nú er hins vegar fyrirsjáanlegt, að Siglufjörður verður miklu þýðingarmeiri, því að síldarverksmiðjan þar verður miðstöð síldarsöltunar, a. m. k. um ófyrirsjáanlega framtíð, og allar frekari verksmiðjur, sem byggðar verða til vinnslu síldarafurða, verða að mestu leyti byggðar á Siglufirði. Eins og sakir stóðu á þeim árum, sem ég var kunnugastur málum Siglufjarðar, þegar ég var bæjarstjóri þar, þá var raforkuþörf síldarverksmiðju ríkisins þúsund hestöfl á sama tíma sem vélar rafveitunnar, sem námu 400 hestöflum, gátu annazt alla neyzlu bæjarbúa.

Þegar svona stendur á, er alls ekki sanngjarnt að miða kostnaðinn eingöngu við höfðatölu íbúanna. Þegar svona stórkostlegur iðnrekstur á sér stað í bænum, verður vitanlega að taka tillit til hans, þegar rætt er um, hve mikill kostnaður sé lagður í svona fyrirtæki. Ef við nú athugum þessa vaxtarmöguleika og hvað þarf að bæta við af verksmiðjum á Siglufirði, þá sjáum við líka í hendi okkar, að fólksfjöldinn þar verður að stóraukast. Það þarf ekki færri en 100 verkamenn í viðbót, þegar verksmiðjan verður byggð. Á árinu 1938 var svo mikil verkafólksekla á Siglufirði, að skipin voru alveg í vandræðum með að fá fólk til að salta síldina, og það tókst ekki að salta svo fljótt, að hún skemmdist ekki. Verði söltun tekin upp, er alveg fyrirsjáanlegt, að Siglufjörður á ekkert fólk til að standa í því verki. Fyrir 10 þús. hestafla verksmiðju þarf 100 verkamenn í viðbót, og ef maður reiknar með, að hver verkamaður sé fjölskyldufaðir, þá er ekki óeðlilegt að margfalda með 4 til að finna þá réttu fólksfjölgun. Þá hefur íbúatala Siglufjarðar aukizt um 400 íbúa. Íbúatalan verður að aukast, ef þessi verksmiðjubygging á að fara fram. Um leið breytir það öllum hlutföllum og allri afstöðu Siglufjarðar til þess að geta staðið undir þeirri virkjun, sem þar er nú verið að framkvæma. Það er vert fyrir menn að gera sér þetta ljóst.

Því hefur verið haldið fram hér af hv. þm. S.-Þ., að það sé ósköp eðlilegur hlutur, að lagt sé út í virkjun, sem kosti 6 millj. kr. og sem kosti svo 13 millj. Þetta sé aðeins vel skipulögð kommúnistastarfsemi og það sé allt þaulhugsað fyrirfram. Sennilega hafi ég og kommúnistar frá Siglufirði átt að setja á fullkomna áætlun um, að þetta mundi kosta 13 millj. og narra svo alla í að leggja út í þetta, svo að algert hrun eigi sér stað. Þetta átti víst að vera sönnun fyrir því, að kommúnistar væru ágætir, ef okkur tækist að skapa hrun á Siglufirði. Það er ekki hægt að taka svona orð nema sem raus, sem ekki er svaravert, en af því að ég veit, að það eru margir, sem ekki hafa fylgzt með í opinberum málum á Siglufirði, þá vil ég gefa nokkra skýringu á aðstöðunni þar.

Fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 1938 gerðu sósíalistar og Alþfl. bandalag og fengu meiri hluta. Ég var ráðinn bæjarstjóri og tók við því starfi í febrúar það ár, en lét af því starfi í jan. 1942, er sameiginlegur listi Alþfl. og Sósfl. fékk minni hluta og náði aðeins 4 mönnum af 9, en meiri hlutinn var myndaður af Framsfl., Sjálfstfl. og óháðum borgaralista, sem hafði engan sérstakan flokk að baki sér, heldur ýmsa menn og sundurleita úr öllum 4 flokkunum, sem til voru í bænum. Sú stjórnarsamvinna, sem varð því upp úr þeim kosningum, var aðallega undir forustu Framsfl. og Sjálfstfl. Þeir gerðu samtök um að leysa mig frá störfum, — það var auðvitað sjálfgert —, og ráða annan bæjarstjóra, Óla Hertervig, sem var einn af bæjarfulltrúum sjálfstæðismanna, og hefur hann gegnt því starfi síðan. Meiri hlutinn í bæjarstjórn Siglufjarðar og sá hluti, sem markaði stefnuna, er því myndaður af 2 bæjarfulltrúum Sjálfstfl., 2 framsóknarmönnum og einum fyrir þennan óháða lista.

Það er alls ekki tilgangur minn með þessu að vera á nokkurn hátt að losa mig eða flokk minn við ábyrgðina af því máli, sem hér liggur fyrir. Ég vil taka fram, að meðan ég var bæjarstjóri, fylgdi ég því mjög eindregið, að hiklaust væri lagt út í virkjunina strax og hægt væri, og ég taldi óhjákvæmilega nauðsyn fyrir bæjarfélagið á Siglufirði og allt fólkið á Siglufirði og atvinnulífið í landinu, að Siglufjörður yrði aðnjótandi rafmagns, sem væri framleitt með vatnsorku. Árið 1942, þegar bæjarstjórn Siglufjarðar ákvað að fara út í þessa virkjun og fá ríkisábyrgð, þá var það samþykkt af öllum bæjarfulltrúunum, sem voru 9 talsins. Ég vil því telja upp þá menn, sem þarna tóku þátt í þessari ákvörðun, sem átti að verða og ég er sannfærður, að á eftir að verða Siglufirði og landinu í heild til mikillar blessunar, þó að það slys hafi orðið, sem nú er komið á daginn, að verkið hafi ekki staðizt áætlun og hækkað um meira en helming.

Mennirnir voru þessir: Bæjarfulltrúar Sjálfstfl., Óli Hertervig bæjarstjóri og Egill Stefánsson kaupmaður. Af hálfu Framsfl. Jóhann Torfason og Þormóður Eyjólfsson. Þormóður mun vera heimildarmaður hv. 2. þm. S.-M., og er það óeðlilegt, vegna þess að hann átti fullan þátt í þessum framkvæmdum og talaði fyrir því, að Siglufjörður legði út í þær á sínum tíma. Ég vil líka taka fram, að þessir menn þarna eru einhverjir beztu baráttumenn Framsfl. á Siglufirði og hafa vafalaust talið sig vera að gera rétt, Framsfl. vegna, þegar þeir ákváðu að vera með í þessu. Þá er fulltrúi fyrir óháða borgaralistann Pétur Bóasson, sem var áður í Sjálfstfl. og stendur nálægt honum að skoðunum. Fulltrúar Alþfl. voru Erlendur Þorsteinsson og Ólafur H. Guðmundsson afgreiðslumaður, en fulltrúar Sósfl. Gunnar Jóhannsson og Otto Jörgensen.

Þarna sameinuðust allir aðalmenn Siglufjarðar í opinberu lífi um þetta, og eru allir með tölu sammála og enginn ágreiningur að neinu leyti. Allir forustumenn Siglufjarðar í opinberu lífi eru sammála um það, að það sé óhjákvæmileg nauðsyn fyrir Siglufjörð að leggja út í þetta verk, virkjun Fljótaár. Það er því alveg tilhæfulaust að vera að tala um það hér, að það sé einhver einn flokkur, kommúnistar, sem séu að leika sér að því að koma Siglufirði út í eitthvert öngþveiti. Ég veit, að þeir menn, sem eru kunnugir þessum málum, leggja ekki eyra að svona hégóma, svona sjúklegu tali, en ég vildi aðeins segja þetta til leiðbeiningar þeim, sem ekki hafa aðstöðu til að fylgjast með opinberum málum á Siglufirði. Ég vil undirstrika það, að ég vil á engan hátt losa sjálfan mig undan neinni ábyrgð í sambandi við þessa virkjun, og ég hefði, ef borið hefði verið undir mig að taka þessa ákvörðun, gert nákvæmlega það sama. Það er hægt að sjá það núna, — og ég býst við, að þessir 9 menn sjái það allir, — að æskilegt hefði verið að láta trúnaðarmenn ríkisstj. framkvæma nákvæma rannsókn frá fyrstu byrjun til enda og láta trúnaðarmenn ríkisstj. fylgjast nákvæmlega með framkvæmd verksins frá byrjun. Ég benti ekki á það á þeim tíma. Mér yfirsást það á nákvæmlega sama hátt og þeim. Þess vegna er ég ekki að áfellast neinn eða losa mig undan þeirri ábyrgð, sem ég hef á því. Ég veit líka, að ég tala fyrir munn flokksbræðra minna, sem tóku þátt í þeirri ákvörðun. Þeir kæra sig ekkert um að skorast á neinn hátt undan þeirri ábyrgð, sem þeir tóku á sig með að samþykkja þetta, og ég býst við, að þannig sé með fleiri.

En svo er eftir eitt atriði. Var rétt að leggja út í þessa virkjun, ef það hefði legið fyrir á árinu 1942, að hún mundi komast upp í febrúar 1944 og kosta 13 millj. kr.? Var rétt að leggja út í þessa virkjun, ef við hefðum vitað á árinu 1942, að hún yrði ekki til fyrr en í febr. 1944 og mundi kosta þetta? Ég vil lýsa því hér yfir, að ég fyrir mitt leyti hefði hiklaust greitt atkv. með því, að lagt yrði út í þessa virkjun, í fyrsta lagi með tilliti til hagsmuna Siglfirðinga sjálfra, og í öðru lagi með tilliti til atvinnulífsins í landinu, til þessa vaxtar, sem er óhjákvæmilegur og nauðsynlegur í síldarverksmiðjuiðnaðinum á Íslandi. Ef ég hefði séð fyrir á árinu 1942, að verksmiðjan færi svona gífurlega hátt, hefði ég samt talið óhjákvæmilega nauðsyn að leggja út í það. Ég vil benda á í þessu sambandi, að það er vissulega stór upphæð, 13 millj. kr., en þegar menn taka tillit til þess, að 13 millj. kr. eru lagðar fram til þess að fullnægja raforkuþörf 3 þús. íbúa í mjög efnilegum kaupstað á Íslandi og þar að auki fullnægja raforkuþörf stórfelldustu síldarverksmiðju á landinu, a. m. k. um nokkurn tíma og sennilega um töluverðan tíma, þá álít ég, að við þurfum ekki að hrökkva við, þegar við erum orðnir því vanir, að séu settar — ekki aðeins ein millj. — heldur tugir millj. í það, sem ekkert skilur eftir sig. Og það er næsta undarlegt, að hörðust skuli vera gagnrýnin yfir þeim ráðstöfunum einmitt úr hópi þeirra manna, sem ekki hika við að samþykkja hér á þ. — og hindra meira að segja, að n. fái að rannsaka málið — að greiða á einu bretti kannske 20 eða 25 millj. kr. til ákveðins atvinnuvegs í landinu. Það er næsta furðulegt, að þessir menn skuli nú þjóta upp til handa og fóta og finnast, að öllu sé stefnt í óefni með fjárhag ríkisins, þegar við erum búnir að borga og skuldbinda okkur til að borga fast að 100 millj. kr., sem ekkert skilur eftir sig. En það er enginn vafi á því, að þetta er allt saman með ráðum gert hjá Framsfl. og þeim mönnum, sem sérstaklega hafa beitt sér gegn því, að þessu máli yrði haldið áfram, og ég tel, að sú tregða stafi af því, að þeir vilji hindra allar þær framkvæmdir, sem geti leitt til atvinnuaukningar í bæjunum, til aukningar á sjávarútvegi okkar og iðnaði í samhandi við sjávarútveginn. Sú tregða, sem m. a. kemur fram í því, að Framsfl. sá sér ekki fært að vera þátttakandi í núv. ríkisstj.

Það er nýbúið að skila áliti til ríkisstj. frá meiri hl. svokallaðrar raforkumálan., og mér hefur dottið í hug að bera saman nokkrar tölur í þessu áliti við þetta gífurlega dýra mannvirki, sem Siglufjörður er að ljúka við að reisa. Það er í þessu áliti gert ráð fyrir, að allir íbúar landsins fái raforku, sem svarar 500 kw á hvern mann, og þær nýju virkjanir, sem þarf ti1 þess að afla 36 þús. mönnum, sem ekki hafa raforku núna, þessarar raforku á mann, eiga að kosta 126 millj. kr. Það eru 4722 kr. á hvern mann. Nú vil ég bera þetta saman við Siglufjörð. Þar eru ætluð 1100–1200 kw á mann. Jakob Gíslason verkfræðingur, sem ég talaði við áðan, sagðist álíta, að ef maður reiknaði með 500 kw á hvert höfuð á Siglufirði, þá samsvaraði það 1969 kr. á móti 4722 kr. á mann. Samkv. áliti þessarar mþn. í raforkumálum ættum við að leggja út í framkvæmdir, sem eru meira en helmingi dýrari en þessi virkjun á Siglufirði verður, sem þeir eru núna að hneykslast yfir. Ég býst við, að þessir menn ætlist til að vera teknir alvarlega og þeir ætlist til, að lagt sé út í þessar framkvæmdir. Ég álít, þó að æskilegt væri, að svona margt fólk gæti fengið raforku, að við höfum ekki ráð á að dreifa orkunni eins mikið og þeir gera ráð fyrir í þessu áliti, en hins vegar efast ég ekki um, að láta má marga fá raforku af þeim, sem ekki hafa raforku núna, og þá gætu ýmis ákvæði í nál. orðið til leiðbeiningar. Svo að ég býst við því, að framsóknarmenn í raforkumálan. hljóti að vera í öðrum hvorum arminum, svoleiðis að skoðanir þeirra um rafveitu Siglufjarðar séu svipaðar, þó að ég viti, að margir framsóknarmenn eru alls ekki á sömu skoðun í þessu máli. Þá vil ég að lokum taka það fram, að ég er því fylgjandi og tek undir það með hv. 2. þm. S.-M. og hv. þm. Barð., að það verði látin fara fram ýtarleg rannsókn á öllum atriðum í sambandi við þetta mál og ríkisstj. hlutist til um það, að sú rannsókn verði framkvæmd undir verkfræðilegu eftirliti ríkisstj.; það væri mér mjög kærkomið, að slík rannsókn færi fram. En ég get ekki fallizt á, að það sé hyggileg ráðstöfun, þegar búið er að binda 11 millj. í þessari framkvæmd, að skirrzt sé við að veita þessa viðbótarábyrgð og stöðva þar með þessar framkvæmdir og baka bæjarfélagi Siglufjarðar og þar með ríkissjóði hundruð þús. kr. skaða. Það verður því ekki snúið til baka, en það, sem ríkisstj. og Alþ. geta gert, er að láta framkvæma undir opinberu eftirliti það, sem þarf að framkvæma úr þessu, en halda verkinu áfram, til þess að fyrirtækið geti farið að gefa eitthvað af sér. Ef verkið verður ekki stöðvað, þá búumst við við því, að rafmagnið verði sett á í febrúarmánuði. Það yrði því hvorki til sparnaðar fyrir ríkissjóð né Siglufjörð eða til gagns fyrir atvinnuvegina, að framkvæmdin verði stöðvuð, enda óþarft til þess að framkvæma rannsókn. Þess vegna styð ég þá till. að fresta umr. og vísa málinu til hv. fjvn. til frekari athugunar.