16.12.1944
Sameinað þing: 77. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 672 í D-deild Alþingistíðinda. (5846)
224. mál, virkjun Fljótaár
Eysteinn Jónsson:
Herra forseti. — Hæstv. atvmrh. eða kannske réttara sagt hæstv. ráðh. sjútvm. talaði hér í gær og vildi afsaka þessa till. og þá meðferð, sem málið hefði hlotið hér á Alþ. áður. Það var auðheyrt, að talsverður beygur var í hæstv. ráðh. út af því, hvernig þessum málum væri komið, en jafnframt reyndi hæstv. ráðh. á talsvert ísmeygilegan hátt að bera af forgöngumönnum málsins þann orðróm, að þeir hefðu farið á bak við Alþ., hvað snertir meðferð þessa máls, en ég hef haldið því fram, að það hafi átt sér stað a. m. k. tvívegis áður. — Ég hlýt að svara þessu nokkrum orðum að gefnu tilefni frá hæstv. ráðh.
Ég skal þá fyrst víkja að því atriði, sem gerðist í upphafi málsins hér á Alþ., þegar það var ákveðið, að Alþ. ábyrgðist 6 millj. kr. ríkisábyrgð fyrir Siglufjarðarkaupstað vegna virkjunar Fljótaár. Ég held því fram, að þessi ákvörðun hafi verið gerð á þeim tíma, þegar forgöngumönnum málsins hlaut að vera það ljóst, að virkjunin kostaði ekki 6 millj. kr., heldur miklu meira. Ég færði þau rök fyrir þessu, að samkv. áætluninni, sem gerir ráð fyrir 6 millj. kr. kostnaði og gerð er af Steingrími Jónssyni rafmagnsstjóra, og eftir því, sem hann lýsir sjálfur yfir á því fskj., sem nú fylgir málinu, er þessi ályktun miðuð við kostnað við framkvæmdir eins og hann var hér á landi framan af árinu 1942. Hann segir, að þessi áætlun sé miðuð við verkamannakaup kr. 2,33 á klst. árið 1942, en þegar þál. var samþ, um það hér á Alþ., að ríkið tækist á hendur þessa ábyrgð, er enn þá miðað við þessa sömu áætlun og miðað við 6 millj. kr. kostnað við framkvæmdir, enda þótt verkamannakaup þá væri orðið meira en tvöfalt eða næstum þrefalt við það, sem byggt er á í áætluninni. Eins og ég gat um, miðaði Steingrímur Jónsson við verkamannakaup kr. 2,33 á klst., og hef ég spurzt fyrir um það hjá Alþýðusambandi Íslands, hvað verkamannakaup hafi verið á Siglufirði veturinn 1942–1943, þegar verið var að ganga frá þessum málum hér, og mundi það svara til kr. 3,00 grunnkaups eða kr. 7,00 verkamannakaups, eða næstum þrefalt við það, sem byggt var á í 6 millj. kr. áætluninni, sem hæstv. ráðh. ber enn þá fyrir sig. Nú þarf enginn maður mér að segja, enda liggur það glöggt fyrir af skýrslum, sem liggja fyrir, að þessi hækkun verkamannakaups úr kr. 2,33 upp í meira en kr. 7,00 hefur í för með sér hækkun, sem getur ekki numið 750 þús. kr., eins og hæstv. ráðh. vildi gefa í skyn, heldur hlýtur þetta að nema svo að millj. kr. skiptir á virkjuninni. Þessi hækkun hafði þegar átt sér stað, þannig að það er alveg augljóst, hvernig sem nú er reynt að breiða yfir þetta, að í upphafi hefur verið farið fram á ábyrgð fyrir þeirri fjárhæð, sem öllum greinargóðum mönnum hlaut að vera ljóst, að væri of lág, miðað við þann kostnað, sem þegar var orðinn. Það er alveg rétt, að þegar málið kom fyrst fyrir Alþ. um sumarið 1942, þá mun þessi áætlun hafa átt rétt á sér, en vegna verðbólgunnar síðast á árinu 1942 á þessi áætlun engan rétt á sér, og sýnist mér augljóst, að því fari fjarri, að hún hafi verið endurskoðuð eins og vera þurfti, hvað þá heldur að hv. Alþ. hafi gert sér grein fyrir því, að svona mikil hækkun var fram komin. Þetta er þó ekki nema byrjunin í málinu og ekki nema eitt atriðið af mörgum, sem sýnir, á hvern hátt hefur verið haldið á þessum málum af hálfu forráðamanna Siglufjarðar hér á Alþ., en það er vitað mál, að þeir, sem fluttu málið hér á Alþ. og stóðu fyrir því, áttu að hafa með sér og leggja fram öll þau gögn og skilríki, sem þeir gátu frekast aflað sér, til þess að hv. Alþ. gæti fengið sem allra réttasta hugmynd um málið. — Nú, þegar virkjuninni er undið nokkuð fram í ársbyrjun 1944, þá er komið til Alþ. og farið fram á 2 millj. kr. til viðbótar í þessu skyni. — Ég hef nú sýnt fram á það, að það hefur verið mjög mikill misbrestur á, hvernig haldið hefur verið á þessum málum af hendi flm. þess frá öndverðu, þótt það séu smámunir hjá þeirri framkomu flm., er þeir nú leggja málið fyrir í síðara skiptið, — þegar komið er með málið fyrir Alþ. í febrúar s. l., þá er flutt þáltill., sem ég las hér upp um daginn með leyfi hæstv. forseta, þegar málið var til umr. Henni fylgdi engin grg. um það, hvernig horfur væru um afköst við virkjunina, engin grg. um það, hversu mikið fé væri búið að leggja í virkjunina, og engin endurskoðun um áætlun yfir verkið. Þar er aðeins farið fram á 2 millj. kr. til viðbótar og talað um, að mönnum sé málið svo kunnugt, að frekari grg. sé ekki þörf á, og sagt, að það verði skýrt nánar í framsögu. Ég hef athugað umr., sem fram fóru um þetta mál í febrúar s. l. hér á Alþ., og ætla að lofa hv. þm. að heyra, í hverju þessi „nánari grg. í framsögu“ var fólgin af hendi þeirra manna, sem fluttu málið; fyrir málinu talaði Þóroddur Guðmundsson í forföllum hv. þm. Siglf., hæstv. núv. atvmrh., og fórust honum orð á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:
„Bæjarstjórn Siglufjarðarkaupstaðar hefur tilbúin ýmis gögn varðandi þetta mál, og var gert ráð fyrir, að þau gögn lægju hér frammi, þegar málið kæmi til umr., en það hefur nú farið svo, að þau eru ekki komin. Málið er þó svo skýrt, að ég býst ekki við, að til langra umræðna komi, held því, að það muni koma að fullu gagni, að þessi gögn verði send beint til þeirrar n., sem fær málið til meðferðar.“
Þetta er nær öll framsagan, sem fyrir málinu er höfð hér á Alþ., og vísað til skjala, sem munu verða lögð fyrir n., og má segja, að lítt nánar hafi verið tekið fram í framsögu en gert var í grg. Síðan fer málið til fjvn., og þegar það kemur aftur úr n., mælir meiri hl. með því, að till. verði samþ., með þeim forsendum, að búið sé að leggja fé í þetta og það verði að segja b, úr því að búið sé að segja a. Við þessar umr. upplýsist það af hv. 1. þm. Rang., að fyrir n. hafi engin plögg verið lögð og engar upplýsingar af neinu tagi og þangað hafi aðeins einn maður verið kvaddur til viðtals, sem var forstöðumaður Rafmagnseftirlits ríkisins. Lýsti hann því yfir, eftir því sem hv. 1. þm. Rang. hefur upplýst, að hann hafi ekkert haft að gera með framkvæmdir þessa máls og geti því engar upplýsingar um það gefið. — Þetta er þá málflutningurinn af hendi flm., þegar þeir koma hér í febrúar s. l. til þess að fá þessa 2 millj. kr. ábyrgð til viðbótar. Og öll þessi vinnubrögð, þegar talað er um, að mönnum sé málið svo kunnugt, að óþarfi sé að gefa miklar upplýsingar um það, — enn fremur þegar talað er um plögg, sem verða lögð fram, — plögg, sem séu til, en aldrei sjást, — á hvaða aðferð minnir þetta? Þetta minnir á aðferð hjá mönnum, sem eru að reyna að sjá sér út peninga, er langflestir menn telja sér alls ekki vera samboðna. Ég er sannfærður um það, eftir því sem ég hef meira kynnt mér þetta mál, að það er engin tilviljun, að þannig er farið með málið í febrúar s. l., og það er beinlínis ekki hægt að komast hjá þeirri hugsun, að þetta hafi verið gert af ásettu ráði, — að það hafi átt að koma með málið smátt og smátt fyrir Alþ. og reyna að smeygja þessu í gegn eins hljóðalaust og unnt var. — Eins og ég gat um daginn, benda þær aðferðir, sem nú eru við hafðar, eindregið í sömu átt. Hvernig stendur á því, að forráðamenn málsins flytja málið ekki fyrr á þessu þingi heldur en þegar því er alveg að verða lokið, — aðeins nokkrir dagar til jóla? Er það ekki gert í trausti þess, að málið renni áfram athugunarlaust í gegnum þingið vegna annríkis þm. í þinglokin? Það er ómögulegt annað en að láta sér detta þetta í hug, þegar maður veit, hvernig áður hefur verið á þessum málum haldið. Ég vil og benda á það, að Þóroddur Guðmundsson veik að því í umr. um þetta mál í febrúar s. l., að þessar framkvæmdir væru mjög langt komnar áleiðis og það vantaði í raun og veru aðeins herzlumuninn, til þess að unnt yrði að ljúka þeim. Enn fremur vil ég benda á það. að í febr. s. l. var kaupgjaldið í landinu orðið það sama á þessum stað og það var s. l. sumar og er nú, þegar verið er að ljúka virkjuninni; það þarf þess vegna enginn maður mér að segja, að það séu slíkir sauðir, sem standa fyrir þessum framkvæmdum á Siglufirði, að þeir hafi ekki haft einhverja hugmynd um það í febrúar s. l., þegar málið var lagt fyrir Alþ., hvort endanlegur kostnaður við verkið yrði 8 millj. kr. eða 13 millj. kr. Mér dettur ekki í hug að halda þetta, heldur álít, að þetta hafi verið miðað þannig, að þeim hafi þótt hyggilegra að láta Alþ. kingja þessum bita í mörgu lagi, af því að hann hafi verið of stór til þess að láta kingja honum í einu lagi, og að þeir hafi talið réttara að skera hann í sundur, — taka fyrst 2 millj. kr. og síðar 4–5 millj., eftir því sem á þyrfti að halda. — Þetta kallaði ég að fara á bak við Alþ. í þessum málum, og ég fyrir mitt leyti legg ríka áherzlu á, að þetta mál verði athugað miklu gaumgæfilegar en gert hefur verið, áður en það verður afgr. frá Alþ. Ég hef ekki haft aðstæður til þess að athuga þetta mál á annan hátt en þann, sem ég hef lýst, — aðeins með því að athuga skjöl, sem hafa komið fyrir Alþ., en eins og gefur að skilja, eru það aðeins mjög litlar og takmarkaðar upplýsingar, sem hingað hafa borizt; hins vegar gefa þær allar bendingar um það, að þessi ákæra mín á hendur forráðamönnum Siglufjarðarkaupstaðar hér á Alþ. hafi við rök að styðjast. Það var auðheyrt, að hæstv. ráðh. hafði áhuga á að koma því inn hjá þm., að meginkostnaður virkjunarinnar væri sökum óhappa, sem komið hefðu fyrir á s. l. sumri. En þó er reyndin sú, að óhöpp eru miklu minni en hægt var að gera ráð fyrir. Það er því algerlega ótækt af hæstv. ráðh. að kasta öllu svaði á þá verkfræðinga, sem hér voru að verki, þótt þeim hafi yfirsézt. Mér skilst það, að forráðamönnum þessa verks hafi verið það ljóst þegar í upphafi, að þetta kostaði meira en gert var ráð fyrir, og hafi verið reynt að fara á bak við þingið með það og þá sérstaklega á öndverðu þessu ári. Mér þykir svo alvarlegir hlutir hafi gerzt í sambandi við þetta mál, sérstaklega hér á þingi, að nauðsynlegt sé að athuga það nánar. Ég legg svo til, að mál þetta verði rannsakað og þá fremur öðru flutningur þess hér á þingi. Ég tek ekki nærri mér svigurmæli hæstv. ráðh. í minn garð, — átti eigi von á öðru úr þeirri átt. En ég vil endurtaka það, að mér finnst eitthvað bogið við þá málsmeðferð hér á þingi, að Alþ. skuli lýsa yfir fullri ábyrgð á mannvirkjum, án þess að eftirlit sé haft með framkvæmd þeirra. Með þeim hætti er miklu minni trygging fyrir því, að hlutaðeigandi yfirvöld láti sig skipta, hvernig verkið er unnið og það verði sem ódýrast. Ég beitti mér fyrir því hér á árunum, að ríkissjóður ábyrgðist ekkert verk að fullu og aldrei meira en 90%, en með því var fengin trygging fyrir því, að þeir, sem hlut ættu að máli heima fyrir, gætu ekki látið sér algerlega í léttu rúmi liggja framkvæmd verksins eða að fé ríkissjóðs væri sóað í vafasöm fyrirtæki. Þetta er hin eðlilega leið. Hins vegar er sjálfsagt, að ríkið styrki slíkar framkvæmdir sem þessar, en það er einnig rétt, að einhver aðstoð komi heiman frá, svo að menn hugsi um það, sem er heppilegast fyrir framtíðina, en eigi um augnablikshag. Það verður loks að gera þá kröfu, ef ríkissjóður tekur fulla ábyrgð á einhverju verki, að ríkið hafi eftirlit með framkvæmd þess eða, ef um mál sem þetta er að ræða, að Rafmagnseftirlit ríkisins sjái um það. Þá kemur þinghliðin á þessum málum. Sá háttur hefur tíðkazt, að menn hafa snúið sér til flokkanna í kosningabaráttunni og fengið þá jafnvel til að lofa ábyrgð og segja álit sitt um framkvæmdir, þó að upplýsingar um það, sem á að gera, séu ekki fyrir hendi. Mér finnst, að flokkarnir ættu að hafa samtök um að hætta þessu. En þó er annað verra, og það er, að nefndin skuli láta mál frá sér fara, án þess að nægileg gögn séu fyrir hendi, en svo er það t. d. með þetta mál. Það ættu að vera samtök um, að ekkert mál sé afgreitt, nema nægilegar upplýsingar séu til staðar. Hv. þm. Siglf. sagði, að ég væri að ráðast á þetta sökum þess, að ég bæri óvildarhug til þeirra manna, sem með málið hafa farið. Þetta er ekki rétt. En þegar ég fór að athuga þetta mál og meðferð þess hér á þingi, þá gekk alveg fram af mér, og ég ákvað að leitast við að sýna fram á, hvert hér væri stefnt, ef það gæti orðið til þess, að þingmenn hefðu betri samtök með afgreiðslu mála en verið hefur nú um sinn.