04.12.1944
Sameinað þing: 69. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 416 í B-deild Alþingistíðinda. (586)

143. mál, fjárlög 1945

Hermann Jónasson:

Herra forseti, góðir hlustendur. — Það er föst venja á Alþingi, að við framhald 1. umr. fjárl. séu eldhúsdagsumræður. Í þingsköpum Alþ. er ákveðið, að útvarpsumr. skuli þá fara fram, og þarf afbrigði frá þingsköpum til að víkja frá því.

Ástæðan til þessa er sú, — að þau málin á Alþ., sem þjóðina skiptir mestu að fá glögga vitneskju um, eru að jafnaði fjármálin: hvernig tekna er aflað með álögum á þegnana, hvernig þeim er varið og fjármálastefna ríkisins að öðru leyti. Venjulega er þetta ljóst orðið við þessa umr. um fjárlfrv. Nú er það eigi svo. Enn þá vantar í fjárlfrv. útgjöld, er nema tugum millj. kr. Þingfundum var frestað, til þess að stj. gæti fengið næði til að sjá fyrir tekjuöflun. Enn þá hefur Alþ. ekki fengið að vita, hvaða álög verða á þegnana lögð til þess að jafna að minnsta kosti um 40 millj. fyrirsjáanlegan tekjuhalla á fjárl.

Af þessum sökum fór Framsfl. þess á leit við ríkisstj., að frávik yrði gert og þessi útvarpsumr. færi fram við 3. umr. Þá var hægt að gefa ljóst yfirlit yfir málið, sem þingsköp Alþ. vilja tryggja landsmönnum og þeir eiga kröfu til.

Ríkisstj. neitaði þessu. Hún vill umfram allt hafa þessar útvarpsumr., áður en meira af verkum hennar sér dagsins ljós.

En þótt svo sé, er þegar margt vitað um stefnu stj. þannig vaxið, að mönnum er nauðsynlegt að gera sér þess grein.

Mönnum verður skiljanlegri stefna núv. stj., ef þeir gera sér það ljóst, að hún er framhald af stj. þeirri (sem flestir nefna nú raunar óstjórn), er ríkti frá vordögum 1942 og þangað til seint á því ári. Stjórnarstefnan er hin sama og þá var og breyt. á stj. þær einar, að þeir, sem þeirri stj. veittu stuðning, hafa nú lagt til menn í ráðherrastólana, og stj. hefur lagt sér til dulargerfi, er hún kallar „nýsköpun“. Mun ég nú reyna að gera tilheyrendum mínum þetta ljóst.

Fjármál hverrar þjóðar skipta einatt miklu. Á styrjaldartímum er fjármálakerfið í alveg sérstakri hættu. Aukin dýrtíð í ýmsum þjóðlöndum í og eftir seinustu styrjöld sannaði mönnum, svo að minnisstætt varð, ógnir þess að láta dýrtíðina lausa. Sérhver þroskuð þjóð hefur nú í þessari styrjöld, svo sem skylt var, hagað fjármálum sínum samkv. þessari reynslu.

Við framsóknarmenn höfum miðað fjármálastefnu okkar við þetta. Þegar dýrtíðarl. fengust ekki framkvæmd 1941, bárum við fram frv. um stöðvun um haustið 1941 og vorum reiðubúnir til að vinna með þeim mönnum, sem því máli vildu fylgja. En hinir flokkarnir felldu frv. En þegar Sjálfstfl. um seinan vildi reyna stöðvun með gerðardómsl., vorum við og reiðubúnir til að vinna með Sjálfstfl. einum vegna þessa máls. Við gerðum okkur ljóst, að þetta var orðið erfitt og seint, en við vissum, að það var ekki hægt að stjórna fjármálum ríkisins nema með því að stöðva dýrtíðina.

En vorið 1942 gengur Sjálfstfl. á gerða samninga, svo sem kunnugt er. Hann gerði þá samninga um stjórn við andstöðuflokka stöðvunarinnar. Sameiginleg framkvæmd þeirra flokka, er að stöðvuninni stóðu, Framsfl. og Sjálfstfl., var því aldrei reynd til þrautar.

Ég minnist þess, að þegar ég heyrði og sá endurtekið af núv. forsrh. við öll möguleg og ómöguleg tækifæri, að gerðardómsl. yrðu framkvæmd þrátt fyrir allt og dýrtíðinni haldið .í skefjum, að ég þóttist vita, hvers kyns var.

Í fornsögum okkar er sumum mönnum og starfsaðferðum þeirra þannig lýst, að það væri til marks um þá, ef þeir mæltu vel, að þeir væru ráðnir til að gera illa. Höfundarnir gerðu sér þess grein, að þessi starfsaðferð var til. Í dag er hún algeng, og færi margt betur, ef almenningur skildi það. Menn, sem nota þessa vinnuaðferð, lofa því mjög áberandi og oft, sem þeir ætla sér ekki að halda. Hávaðinn um nýsköpunina væri ekki eins og raun ber vitni, ef þeir, sem að henni standa, tryðu því sjálfir, að hún yrði framkvæmd, svo sem lofað er. Þakklætið er heimtað fyrir fram fyrir loforðin. Þeir vita, að það kemur aldrei fyrir verkin.

Hér er sama vinnuaðferðin endurtekin og um framkvæmd gerðardómsl. Sömu dagana og því var lofað, að þau yrðu framkvæmd og móttekið lof fyrir það, voru raunverulega gerðir samningar við kommúnista um afnám þeirra. Um þetta mál segir núv. forsrh. í febr. 1943 orðrétt: „Stuðningsflokkar stj. (þ.e. kommúnistar og Alþfl.) settu ríkisstj. þau beinu skilyrði fyrir að firra hana vantrausti, meðan nefndum málum (kjördæmamálinu). var siglt heilum í höfn, að hún vekti ekki ágreining og allra sízt í þeim málum, er viðkvæmust höfðu reynzt, dýrtíðarmálunum.“ — Hann endurtekur það hvað eftir annað, að hann hefði sem forsrh. orðið að gefa þetta loforð til þess að fá að sitja í stólnum. — Hér var örlagasporið stigið í íslenzkum fjármálum og atvinnumálum og raunar stjórnmálum. Hvernig mundi landsmönnum hafa litizt á blikuna vorið 1942, hefði þáv. forsrh., í stað þess að lofa hvað eftir annað framkvæmd gerðardómslaganna og stöðvun dýrtíðarinnar, sagt þeim, eins og var — og hann gerði eftir á, eins og ég hef orðrétt lesið? Hefði hann sagt: „Ég hef fengið stuðning kommúnista til að vera forsrh., meðan breytt er um kjördæmaskipun, gegn því, að þeir ráði dýrtíðarmálunum“. — Nú vita menn eftir á, að núv. forsrh. var, eins og hann sjálfur lýsir, ekki ráðh. nema að nafninu til. Hans var ríkið, — en hvorki mátturinn né dýrðin, eins og eitt sinn var sagt. — Aftur er nú 1944 setzt í ráðherrastólana með sömu skilyrðum um þetta mál og vorið 1942, svo sem síðar verður rakið.

Haustið 1942 var óstjórnin orðin svo gegndarlaus, að jafnaðarmenn og kommúnistar þorðu ekki að láta bendla sig við ríkisstj. Stj. sagði af sér og var síðan sett af, sem fáheyrt er. Höfðu kommúnistar þá tvöfaldað dýrtíðina á þessu tímabili með aðstoð núv. forsrh., sem ekki mátti gera ágreining, eins og hann sjálfur sagði. Það var þetta óstjórnartímabil, sem kom fjármálakerfi okkar í algert ósamræmi við fjármálakerfi þeirra þjóða, sem við skiptum við, og þar með í varanlegar ógöngur.

Ég ræði hér ekki um stjórn dr. Björns Þórðarsonar. Hún lagði stjórnarskútunni í dýrtíðarmálunum og skilaði dýrtíðinni í hendur núv. stjórnarformanns svipaðri og hún var, er hann var settur frá haustið 1942. Hann tekur því við sínu eigin verki eins og . hann skildi við það og sjálfur bjó sér það í hendur.

Það er og stofnað til þessarar stjórnar á sama hátt og vorið 1942 að því leyti, að nýtt kjördæmamál er aðalatriðið. Þetta er eina málið eins og þá, sem stj. lofar að standa saman um, einnig eftir nýjar kosningar. Kosningarrétturinn á að verða „jafn“. En um það segir í stjórnmálaályktun Alþfl. í Alþýðublaðinu 1. des. s.l. „Jafn kosningaréttur verður ekki fulltryggður með því einu, að flokkarnir fái hver um sig þingmannafjölda í samræmi við atkvæðamagn“, — enn fremur: „Ein leiðin að því marki sé að gera landið að einu kjördæmi.“ — Það er ekki dult með það farið, hvert stefnt er í þessu máli. En um þau grundvallaratriði, sem marka þarf fyrst af öllu í stefnu hverrar stjórnar, ef ekki á illa að fara, er ekkert samkomulag í þessari stjórn frekar en 1942. Þar er nákvæmlega sama einkennið. Skulu nú leidd rök að því.

Þegar byrjað var á umr. um stjórnarmyndun fjögurra flokka í sept. s.l., bentum við framsóknarmenn á, að allt að 25 millj. kr. væru nú greiddar úr fjárþrota ríkissjóði til að halda dýrtíðinni niðri, svo að framleiðslan stöðvaðist ekki. Þó væru ýmsar framleiðslugreinar, svo sem bátaútvegurinn og frystihúsin, mjög aðþrengdar. Við lögðum fram þá spurningu í 12 manna n., hvort nokkur flokkur treysti sér til að mynda ríkisstj., nema dýrtíðin væri að minnsta kosti þegar stöðvuð. Skoðun okkar var sú, að þegar þyrfti að lækka hana, og létum það í ljós. Það treysti sér enginn í 12 manna n. til að mótmæla því, að stöðvun dýrtíðarinnar væri lágmark. Að mynda stjórn án þess að stöðva dýrtíðina væri sams konar fásinna og að hlaupa út í áralausan bát, sem væri að reka fram af fossbrún. Þessi líking gilti um ráðherrastólana. Ríkið og framleiðslan væri fjármálalega statt á barmi glötunar, ef dýrtíðin yrði ekki stöðvuð. Og menn spurðu: „Hvernig á að gera þetta?“ Svörin voru augljós. Það var verðlag landbúnaðarafurðanna og kaupgjaldið: Hvorugt mátti hækka.

Eftir nokkurt þóf um þetta atriði kemur Sjálfstfl. með þá skriflegu tillögu, „að samið verði um núgildandi kaupgjald óbreytt. Þó verði einstakar breytingar gerðar til samræmingar“. En bændur falli frá hækkuninni 9,4%. Á þessum grundvallaratriðum höfðu allar samningsumleitanir verið reistar. Engin hækkun á kaupgjaldi nema þar, sem var áberandi ósamræmi, svo sem í Iðju til samræmis við Dagsbrún.

Bændur samþ. að hækka ekki þrátt fyrir 6 manna nefndar álitið og beindu þeirri áskorun til verkamanna að gera hið sama. Framsóknarmenn gengu ríkt eftir þeim svörum í 12 manna n., hvort verkamannaflokkarnir vildu stöðva kaupgjaldskröfurnar með öllu. Sjálfstæðismenn virtust í fyrstu standa fast við hina skriflegu yfirlýsingu, er ég las áðan. Núv. forsrh. kom m.a. með þá till., að samið yrði um lítils háttar samræmingu á kaupi Iðjufélaga til samræmis við kaup Dagsbrúnarmanna, en öll önnur verkföll yrðu undantekningarlaust látin falla niður; án þess að kaupgjald hækkaði.

En kommúnistar drógu svörin á langinn, og það virtist draga af Sjálfstfl. Við framsóknarmenn kröfðumst svars á þrem fundum hvað eftir annað. Svörin voru ýmist loðin eða neikvæð. Við framsóknarmenn lýstum þá yfir, að við tækjum ekki þátt í 12 manna n. að óbreyttu, þar sem verkamannaflokkarnir neituðu meira að segja að stíga það byrjunarskref að stöðva dýrtíðina með því að stöðva kauphækkun, eins og bændur höfðu stöðvað verðlagið.

Framsóknarfl. bauð svo Sjálfstfl. samstarf, eins og skýrt hefur verið frá, með hlutlausum forsrh. Gerðum við jafnframt að skilyrði, svo sem birt hefur verið, að samið yrði um fjárl. og tekjuöflun þannig, að fjárl. yrðu hallalaus. Enn fremur um nokkur undirbúin framfaramál. Þetta fékkst ekki rætt, með því að Sjálfstfl. sleit viðræðum á byrjunarstigi.

Endirinn varð sá, svo sem kunnugt er, að núv. forsrh. samdi við kommúnista og síðar við jafnaðarmenn. Það er mál Sjálfstfl. En hvernig samið er og um hvað ósamið, það er mál þjóðarinnar. Eftir að bændur höfðu lækkað verðlagið, semur hann um hækkun, svo að skiptir þúsundum, á kaupi hæstlaunuðu iðnaðarmannanna og þvingar atvinnurekendur, a.m.k. prentsmiðjueigendur, til að gera það. Allt er þetta gert ofan í yfirlýsingu Sjálfstfl. í 12 manna n. allan septembermánuð. Hér er gefizt upp eins og 1942.

Auðvitað var okkur framsóknarmönnum ljóst, að stöðvun var aðeins fyrsta skrefið, — næsta var niðurfærsla.

Það verður fyrst að stöðva óðan mann, sem er á leið til vatns til að drekkja sér eða ætlar að hlaupa fyrir björg. Næsta skrefið er að koma honum til baka. En þetta hefur nú ekki verið gert, heldur hið gagnstæða, og kommúnistum virðist vera það alveg sérstakt áhugamál, að svo megi verða.

Afleiðingarnar ættu að vera núv. stj. augljósar. Árið 1942, þegar prentarar og járnsmiðir gerðu kröfur til kauphækkunar, hélt núv. forsrh. ræðu 8. jan. og sagði orðrétt það, sem nú skal greina: „Þeir verkamenn, sem nú hafa gert verkfall (prentarar og járnsmiðir), bera það mikið úr býtum, að óhugsandi er, að þeir fái stórhækkað grunnkaup. Fái þeir kröfum sínum framgengt, munu allir aðrir fylgja í kjölfarið, þótt síðar sé. Gegn því getur enginn sanngjarn maður barizt. En afleiðingin er alveg óhjákvæmilega sú, að dýrtíðaraldan flæðir yfir landið.“

Þessi rök eru jafngild nú. En eins og fyrr segir, hóf þessi stj. nú göngu sína með því að hækka kaup þessara manna. Afleiðingarnar eru ljósar samkv. rökum núv. forsrh.

Af þessu mætti það verða landsmönnum ljóst, að núv. ríkisstj. er einnig í þessu ekkert annað en óstjórnin frá 1942 afturgengin. Óstjórnin 1942 hljóp frá lausn dýrtíðarmálanna og lét kommúnista ráða, sem fyrr er sýnt. Nákvæmlega á sama hátt er til þessarar stj. stofnað. Af þessum ástæðum mistókst stj. 1942. Þessi stj. er dæmd til að fara sömu leiðina og af sömu ástæðum. Núv. stj. er fædd undir sama ólánsmerkinu: Undanhaldi og uppgjöf í kaupgjalds-, dýrtíðar- og fjármálum þjóðarinnar. Kvíði landsmanna nær langt inn í raðir stjórnarflokkanna. Blað Sjálfstfl. á Akureyri segir m.a.: „Og enn skal það játað, að kauphækkanir þær, sem orðið hafa nýlega í nokkrum iðnfélögum, eru síður en svo til samræmingar á kjörum launafólksins.“ — Víst er þetta rétt. Það er síður en svo til samræmingar. Það er þvert á móti til að skapa ósamræmi með þeim afleiðingum, sem það hlýtur að hafa, svo sem núv. forsrh. benti á 1942.

En stjórnin segir: Nú höfum við nýsköpun á stefnuskrá okkar. Rétt er það, að ríkisstj. hefur reynt að fela stefnuleysi sitt í talsverðum hávaða og skrumauglýsingum, sem gert er vaxandi gys að, um svokallaða nýsköpun. En stefna stj. í dýrtíðar- og fjármálum vinnur sjálfkrafa gegn því, að þessi nýsköpun verði framkvæmd. Skulu nú leidd rök að því.

Nýsköpun atvinnulífsins með ýmsu móti er nauðsyn. Við verðum ásamt öðru að hafa opin augun fyrir nýrri tækni og notfæra hana. Að þessu ber sérhverri ríkisstj. að vinna og ekki sízt í lok styrjaldar, þegar framleiðslan hefur gengið úr sér og ýmis ný tækni kemur til sögunnar.

Framsfl. hefur flokka fyrstur gert sér þetta ljóst. Það var Framsfl., sem bar fram til sigurs þingsályktanir um það, að skipaðar yrðu nefndir til að rannsaka og gera tillögur um skipun atvinnumála og um stór og mörg framfaramál næstu ára. Þessar n. hafa starfað. Rafveitumálan. hefur þegar skilað merku áliti til ríkisstj. um rafmagnsmálin. — Framsfl. studdi að því allra flokka mest, að 45 nýir bátar voru keyptir frá Svíþjóð, og þeir hafa til þessa svarað til eftirspurnar. Járnskip hafa verið lítt fáanleg, en verða það sennilega alveg á næstunni. — Eftirspurn eftir jarðvinnsluvélum, landbúnaðarvélum ýmiss konar, vélum til vegagerðar o.fl. er þrisvar til fjórum sinnum meiri en við höfum getað fengið útflutningsleyfi fyrir hjá viðskiptaþjóðum okkar. Þó hafa sendiherrar okkar í Bandaríkjunum og Englandi unnið að þessum málum eftir fremstu getu, og fyrrv. atvmrh. sendi sérfróðan duglegan mann vestur um haf, til þess að allt væri gert, er í okkar valdi stóð. En lítið hefur orðið ágengt. Þetta kann að lagast innan skamms. En núv. ríkisstj. er ekki að uppgötva neitt spánnýtt, þótt hún láti greiða fyrir kaupum á atvinnutækjum.

En það er líka nauðsynlegt að hafa það í huga, vegna reynslu þeirra, er nota hin nýju tæki, sem nú eru keypt, að þetta er stríðsframleiðsla, seld með stríðsverði í ofanálag. Sumt af þeim skipum, sem framleidd eru í styrjöldinni og hafa skemmzt, er nú verið að rífa, vegna þess að það borgar sig ekki að gera við þau, sökum þess að þau eru svo léleg framleiðsla. Framleiðsla góðra vopna situr enn í fyrirrúmi með bezta efni og beztu starfskrafta. Ný tæki verður vissulega að kaupa, en með forsjá verður að gera það eins og annað.

En það er um þessa nýsköpun eins og allt annað hjá þessari hæstv. ríkisstj.: stefnuleysið. Um það er ekkert ákveðið í l. um nýsköpun, hvernig eigi að koma henni í framkvæmd, og af umræðum stjórnarliðsins verður það eitt ráðið, að um þetta ríki fullkominn glundroði. Við framsóknarmenn bárum fram þá brtt.; að eitt af verkefnum nýbyggingarráðs yrði að athuga þetta og gera tillögur um það. Stjórnarliðið felldi það. Við framsóknarmenn gerðum og þá brtt. við frv. ríkisstj., að nýbyggingarráði yrði fyrst og fremst falið að rannsaka og gera till. um fjárhagsgrundvöll framleiðslunnar. Við það mátti ekki koma. Það var fellt. Þó ætti það ekki að geta dulizt mönnum, að þetta tvennt er frumskilyrði þess, að eitthvað verði í málinu gert. — Eina leiðin til þess, að framleiðslutækin verði keypt og notuð, er, að unnt sé að reka framleiðsluna með sæmilegri fjárhagsafkomu.

Og nú er ástandið þó þannig, hvar sem stjórnarherrarnir leita fyrir sér: — á Ströndum, við Eyjafjörð, við Austurland, Suðurland og annars staðar, að mokafla þarf með því fiskverði, sem nú er, til þess að sjómenn hafi viðlíka kaup og landmenn. Það má ekkert út af bera um afla. Mjög víða hafa sjómenn 3/4 og niður í 2/3 af kaupi landmanna. Óteljandi auglýsingar á bátum mánuð eftir mánuð segja sina sögu. Bátaeigandi hér sunnanlands bauð bezta formanni sínum bát til kaups nýlega. Bátsformaðurinn kvaðst ekki vilja þiggja hann með gjafverði, ef hann ætti að gera hann út. Gamall útgerðarmaður auglýsir nú skip sín að kalla á hverjum degi, síðan nýsköpunarl. voru samþ., og hefur þegar losað sig við mörg þeirra. Það selja fleiri skip en Kveldúlfur. — Þannig hugsa margir til nýsköpunar stj., eins og horfir.

Auðvitað segir stj., að með því að segja þennan sannleika séum við stjórnarandstæðingar að vinna illt verk, þeir séu hinir bjartsýnu menn, við hrakspámenn, — við séum að spilla fyrir nýsköpuninni og draga kjark úr mönnum. Þetta eru í senn fánýtar og barnalegar mótbárur. Við framsóknarmenn kvörtuðum aldrei undan því, þótt Sjálfstfl. beitti öllum ráðum og brögðum í andstöðu sinni gegn okkar málum: vökulögunum, verkamannabústöðunum, héraðsskólunum, mjólkurl., kjötl., síldarverksmiðjum ríkisins og óteljandi málum öðrum. — Öll þessi mál eru borin fram til fulls sigurs, urðu sterk og vinsæl við rökræður vegna þess, að þau voru í eðli sínu góð mál og rétt. Eins mundi fara um nýsköpun þá, sem byggð væri á traustum grunni — gagnstætt hinni, sem er hjóm eitt og skrum.

En sagan um afkomuhorfur framleiðslunnar er ekki öll sögð. Til þess að hið bágborna ástand, sem þar ríkir nú, verði ekki enn þá verra, verður að færa stórar fórnir. Bændur gefa eftir 9,4% af framleiðslu sinni í eitt ár, og greiddar eru 20–25 millj. kr. úr ríkissjóði til þess að halda kaupgjaldinu og dýrtíðinni niðri, svo að framleiðslan stöðvist ekki. En þegar þessi 9,4% eftirgjöf hverfur og landbúnaðarvörurnar hækka í verði að hausti vegna vaxandi dýrtíðar og ef ríkissjóður getur ekki borgað niður dýrtíðina vegna fjárskorts, — þá er ástandið svo gerbreytt til hins verra fyrir framleiðsluna, að hún getur ekki staðizt með hæsta stríðsverði, hvað þá heldur, ef verðlækkun á sér stað.

Þetta gera framleiðendur sér ljóst. Það þarf ekki að orðlengja um það. Ég kem nánar að því síðar, að ríkissjóður er nú þegar að komast í algert þrot við það að halda dýrtíðardraugnum niðri.

Og svo stendur forsrh. upp hér á Alþ. talsvert hnakkakertur að vanda og segir: Framleiðslan getur borgað núverandi kaup. Sumt af henni getur borgað hærra kaup, — það skuli að minnsta kosti fyrst reynt til þrautar, áður en talað sé um að færa niður dýrtíðina. En ýmsum virðist nú ekki þurfa að prófa þetta frekar en orðið er, þegar ríkisstj. hefur setið árangurslaust í fleiri vikur til þess að reyna að skrapa saman um 40 millj. kr., er vantar í ríkissjóð, þar af 20–25 millj. kr. til þess að unnt sé að borga niður dýrtíðina, svo að komið verði í veg fyrir, að öll framleiðsla í landinu stöðvist vegna kaupgjalds og dýrtíðar, ef það fær að sýna sig eins og það raunverulega er.

Og hefur landsstj. athugað, hvers konar verk hún er að vinna með því að koma inn hjá landsmönnum þeirri fáránlegu villu og reyna að svæfa þjóðina með því, að ný tækni geti lagfært þetta allt? — Ætli aðrar þjóðir fái ekki svipaða tækni og við? Ég held, að hyggilegast sé fyrir okkur að ganga út frá því, að við fáum ekki neinn einkarétt á tækninni. Og hvernig eigum við þá að fiska á sömu fiskislóðum og nágrannaþjóðirnar, selja á sama markaði og þær fyrir sama verð og þær, en hafa þó tvöfaldan framleiðslukostnað á við þær? Og ætli það verði ekki eitthvað svipað um framleiðslu landbúnaðarafurðanna?

Sú nýsköpun, sem á svona grundvelli er reist, er fyrir fram dæmd. Og það er nú þegar kominn nokkur prófsteinn á hana á Alþ. Sú framkvæmd, sem hefur verið lengst og bezt undirbúin, er áburðarverksmiðja. Nákvæm rannsókn sérfræðings sýnir, að framleiðsla áburðar er hér fjárhagslega hagstæðari en flest annað. Málið er hið mesta áhuga- og nauðsynjamál bænda og íbúa kauptúna og kaupstaða, þar sem ræktun margs konar vex ört, en skortur er á góðum áburði. Stjórnarflokkarnir létu mikið yfir áhuga sínum á þessu máli og alveg sérstaklega Morgunblaðið. Þetta mál var tekið inn á nýsköpunarplötuna sem ein allra fyrsta framkvæmdin. Málið hefur verið í n. í þinginu. Stjórnarsinnar urðu vandræðalegri með hverjum fundi. Síðast var aðferðin ráðin. Málið var of vinsælt til að ganga beint til verks og fella það. En því var búin gröf. Því er vísað til ríkisstj. til frekari rannsókna — og frestað. Í umr. sögðu stjórnarsinnar, að rannsókn sýndi, að áburðarverksmiðja gæti ekki borið sig, — eins og komið væri. Hér eru þó skilyrði til framkvæmda einna bezt.

Það má með sanni segja um þessa svokölluðu „nýsköpun“ stjórnarinnar: „Ill var þín fyrsta ganga“.

Öll rök liggja til þess, svo sem ég hef sýnt, að framhaldið verði upphafinu líkt.

Og ekki verða vonirnar bjartari, ef framleiðslan og „nýsköpunin“ yfirleitt lítur til ríkissjóðs sem öryggis fyrir afkomu sína, — sem að vísu getur aldrei orðið neitt öryggi til langframa. Allt bendir til þess, eins og farið hefur verið með fjárhag ríkissjóðs, að Alþ. verði að leggja þung álög á framleiðsluna í stað þess að styrkja hana.

Sjálfstfl. hefur nú stýrt fjárhag ríkisins síðan 1939. Aldrei hefur nokkur flokkur á Íslandi fengið annað eins tækifæri og Sjálfstfl. til að gera fjárhag ríkissjóðs glæsilegri en dæmi voru til áður og afkomu framleiðslunnar örugga. Aldrei hefur annað eins fjárhagslegt góðæri verið í landinu um lengri tíma. Og þjóðin setti sér það mark að greiða allar skuldir sínar. En stjórn Sjálfstfl. spilaði þessum möguleikum úr höndum sér og úr höndum þjóðarinnar með óstjórninni 1942. — Af tvöföldun dýrtíðarinnar leiddi það, að orðið hefur að greiða úr ríkissjóði miklar uppbætur á útfluttar landbúnaðarvörur og stórfé til að halda niðri kaupgjaldi og dýrtíð til þess að halda framleiðslunni á floti. En samtímis gerist annað, sem fylgir aukinni dýrtíð eins og skuggi. Útgjaldahlið fjárl. eykst hraðar en framfærsluvísitalan. Hins vegar fóru tekjumöguleikar ríkissjóðs þverrandi sökum erfiðleika framleiðslunnar, sökum vaxandi dýrtíðar. Nú er svo komið fyrir þessar sakir, að þingmeirihluti sá, er Sjálfstfl. hefur forustu fyrir; er að heykjast á því að láta tekjurnar svara til nauðsynlegra rekstrarútgjalda ríkissjóðs og það í allra mesta góðærinu. Fyrirsjáanlegt er og vitað, að þetta verður enn verra að ári og alveg óviðráðanlegt, þegar verðfallið kemur eftir styrjöldina, og það þótt ekkert sé ætlað til nýsköpunar. Ástandið er nú í góðærinu þegar þannig, að er fjárlfrv. kemur frá fjvn. og eftir að ráðherrarnir hafa hver fyrir sitt rn. óskað eftir hækkun, svo sem nál. greinir, eru útgjöldin komin talsvert yfir 100 millj., hallinn um 51/2 millj. Tekjuáætlunin hefur þó verið hækkuð um 13 millj. frá því, sem var í frv. upphaflega, þar af hátt á 7. millj. fyrir áfengissölu. Útgjaldamegin vantar þó enn í frv. 4–6 millj. vegna hækkunar á launum embættismanna, er stj. hefur samið um, Enn fremur 20–30 millj. vegna dýrtíðarráðstafana, auk margra annarra greiðslna. Hallinn á fjárl. verður því, er öll kurl koma til grafar, ekki undir 40 millj. kr. — Er hallinn einn því meira en tvöfalt hærri en fjárl. fyrir stríð, þegar núv. forsrh. blés mest um það, hvað þau væru há. Fyrir stríðið, þegar útflutningsverzlun var einna minnst, voru fjárl. rúm 30% af útflutningsverzluninni, nú 66%, þótt miðað sé við hinn mikla útflutning síðasta ár, um 232 millj. kr.

Enn þó er ekki öll sagan sögð enn. Þeir Pétur Ottesen og Þorsteinn Þorsteinsson skrifa undir frv. með þeim fyrirvara, að þeir telji „fjárhag ríkissjóðs á næsta ári teflt í tvísýnu með hækkun á tekjuáætluninni.“ Helgi Jónasson og Jónas Jónsson skrifa og undir frv. allt með fyrirvara, eftir því m.a., hvernig ræðst um tekjuöflun. Þóroddur Guðmundsson, Lúðvík Jósefsson og Guðmundur Í. Guðmundsson skrifa undir frv. með þeim fyrirvara, að stj. verði að bera fram frv. um tekjuöflun handa ríkissjóði, og Guðm. tekur fram, að það verði að vera í samræmi við gerða samninga.

Það eru því aðeins tveir nm., sem skrifa undir frv. án fyrirvara. Og í raun og veru má lesa það milli línanna, að enginn vill bera ,ábyrgð á frv. Þar er allt rakið til ráðherranna. Á einni blaðsíðu er sex sinnum um það getið, að þetta og hitt sé hækkað eftir kröfu þessa ráðherra eða hins.

Eitt er ljóst af þessu nú þegar, og á því lék grunur áður. Þrátt fyrir gum stj. um samstarf hefur henni ekki tekizt það fyrsta og nauðsynlegasta, ef samkomulag á að geta tekizt um stjórn: samkomulag um fjármál ríkisins og framleiðslunnar. Stj. hafði ekki í byrjun og hefur ekki enn neina sameiginlega fjármálastefnu. Hún lætur reka. Það er ekki stefna, heldur stefnuleysi. Hér kemur enn fram nákvæmlega sama einkenni stj. og 1942.

Ég leyfi mér nú að spyrja hæstv. fjmrh.: Hvernig ætlar hæstv. ríkisstj. að afla þeirra 40 millj., er á skortir, að fjárl. verði hallalaus? Ég tel, að þjóðin eigi nokkra kröfu til þess að fá um það að vita sem fyrst, hvernig leggja á henni á herðar 40 millj. kr. ofan á öll þau gjöld, sem hún nú greiðir. Tekjuhalli á fjárl. þarf ekki að vera óeðlilegur í slæmu árferði eða þegar stórfé er lagt í arðbærar framkvæmdir. En hugsar stj. sér raunverulega að afgreiða fjárl. með tekjuhalla, án þess að lagt sé í óvenjulegar framkvæmdir, og í mesta góðæri? Auðsætt er, að afkoman verður verri að ári. Á þá enn að taka ný lán? Og ölum er ljóst, að erfiðleikar byrja þó fyrst fyrir alvöru, þegar verðfallið kemur eftir stríð. Hvað á þá að gera, ef við söfnum til tugmilljónaskulda í mesta góðæri?

Ég held, að það sé sízt of hart til orða tekið, þó að notuð séu orð Morgunblaðsins fyrir hálfum mánuði: Halli á fjárl. nú mundi „hefna sín grimmilega“, er versnar í ári. „Hin grimmilega hefnd“, sem Morgunblaðið kallar svo, væri fyrirsjáanlegt algert fjárhagslegt öngþveiti.

Ég hef nú leitt rök að því, að stefna núv. stj. er framhald stjórnarstefnunnar 1942: kjördæmamál enn á ný, undanhald í kaupgjaldsmálum, sama ráðleysi í dýrtíðarmálinu, algert stefnuleysi í fjármálum. Stj. með slíka stjórnarstefnu hindrar vitanlega alla nýsköpun atvinnulífsins eins rækilega og nokkur stj. getur gert. Stefnan sjálf hlítir því lögmáli að koma hér öllu í fjárhagslega sjálfheldu, áður en varir.

En einingin í stjórnarflokkunum er bágborin um fleira en fjármálastefnuna. Það er að vísu misklíð í öllum flokkum og nokkur metingur. Ég tel hér alls ekki þann meting og þær orðahnippingar, sem oft eiga sér stað milli flokksmanna, svo sem milli Björns Ólafssonar fyrrv. ráðh. og núv. forsrh. eða skrif Árna frá Múla um núv. forsrh., þó að þar sé af mörgu að taka. Það er ekki svo alvarlegt út af fyrir sig, þó að slíkt eigi sér stað í flokkum. — En ágreiningur, sem nú er í Sjálfstfl., er um mál, sem markar meginstefnu hvers flokks, stefnuna í fjármálum ríkisins og framleiðslunnar. Þetta eru málin, sem skipta mönnum í flokka. 1/4 af Sjálfstfl. neitar að styðja stj., fimmmenningarnir. Ég get upplýst, að nokkrir af þeim hafa þegar sent dreifibréf út um kjördæmin, væntanlega vegna þess, að þeir eiga ekki of greiðan aðgang að málgögnum flokksins. Þeir skýra þar afstöðu sína til stjórnarmyndunarinnar. Þeir eru ekki myrkir í máli um það, sem er að gerast, og eru næsta harðorðir í áliti sínu á stjórnarsamvinnunni og stefnunni. Margt í bréfum þessum á sannarlega erindi til manna um land allt. Það verða síðar tækifæri til að skýra nánar frá þessum bréfum. Þau ganga nú manna á milli, það vitið þið, hlustendur, um öll þau héruð, sem þau hafa verið send í. Og Morgunblaðið sagði nýlega, að þetta væru greindustu og heiðarlegustu mennirnir í flokknum.

Sama er að segja um afstöðu annars sjálfstæðisblaðsins, Vísis. Þar er einnig djúptækur ágreiningur um meginstefnuna, og flytur blaðið að heita má daglega árásir á stefnu stjórnarinnar.

Og svo er það framkoma kommúnista og sjálfstæðismanna á þingi Alþýðusambandsins. Þingið hefst á því, að uppvíst verður um leynibréf formanns kommúnistaflokksstjórnar, Brynjólfs Bjarnasonar, til trúrra félagsmanna víðs vegar um land. Bréf þetta hefur vakið almenna undrun. Í samræmi við áætlun bréfsins neyta svo kommúnistar og sjálfstæðismenn meirihlutavalds til að bægja nokkrum fulltrúum Alþfl. frá þátttöku í þinginu, þótt kosnir væru með sama hætti og fulltrúar, er kommúnistar vissu sér trúa. Landsmenn rekur minni til, að 1937 hófst samstarf sjálfstæðismanna og kommúnista um stjórnarkosningu í verkamannafélaginu Hlíf í Hafnarfirði. Maður að nafni Hermann Guðmundsson var kosinn formaður þess. Hann var flokksbundinn sjálfstæðismaður, sem Alþýðublaðið sagði, að hefði verið í nazistadeild flokksins. Kommúnistar og sjálfstæðismenn ráku nú nokkra þekktustu verkamannaleiðtoga Alþfl. úr félaginu Hlíf til þess að tryggja sér meiri hl. Hermann Guðmundsson var svo sendur út af örkinni um allt land sem pólitískur verkamannaleiðtogi Sjálfstfl. Síðan segir Hermann Guðmundsson sig úr Sjálfstfl. Enginn veit, hvaða flokki hann tilheyrir. En staðreynd er það, að nú er Hermann Guðmundsson kosinn formaður Alþýðusambandsins með atkvæðum kommúnista og sjálfstæðismanna.

Kommúnistar og sjálfstæðismenn hlutu fjögurra atkvæða meiri hluta, eftir að þeir höfðu, eins og fyrr segir, neitað nokkrum löglega kosnum Alþýðuflokksmönnum um aðgang að þinginu. Þannig kusu þeir einlita kommúnistastjórn, 9 manna, fyrir Alþýðusambandið.

Alþýðublaðið 28. f.m. segir um þetta: „Þessi meiri hluti var fenginn með svikum og ofbeldi og stuðningi sjálfstæðismanna.“

Það má svo sem nærri geta, með hvað miklum heilindum samstarfið er í ríkisstj. milli þessara manna um almenn mál ofan á stefnuleysið, sem áður er rakið.

Ég sný mér að lokum að nýju að fjármálunum. Ég tala til þeirra, fjær og nær, sem styðja þessa stjórn. Ég er undrandi yfir því, að ýmsir þm. í stjórnarflokkunum skuli ekki viðurkenna það nú þegar, hvernig fjárhag þjóðarinnar og framleiðslunnar er komið. Ég fullyrði; að mörgum þessara hv. þm: er það ljóst, að með því að láta meinsemdina halda áfram að grafa um sig er augljóst, að hún verður lítt læknandi, áður en varir. Þeir, sem að þessum stuðningi standa, taka á sig mikla ábyrgð.

Ég geri mér það ljóst, að það er nú þegar miklum annmörkum háð að ráða fram úr fjármálum íslenzka ríkisins og framleiðslunnar. En það er augljóst, að það fer enn ört versnandi; því lengur sem haldið er áfram á þessari braut. Ég hef enga trú á því, að fjármálaástandið verði lagfært nema með algerðri stöðvun og síðan niðurfærslu dýrtíðarinnar og að leiðréttar verði nokkrar af þeim yfirsjónum, sem gerðar voru aðallega 1942. Án þess verður á næstunni ekki unnt að semja fjárl. með viðunandi móti, og án þess er framleiðslan dauðadæmd, ef nokkuð ber út af, sem fyrirsjáanlegt er.

Ég efast mjög mikið um, að kjör verkamanna séu hér betri en þau voru 1941–1942. Hækkað verð til bænda hefur horfið í hækkað kaup og tilkostnað. Ég efast um, að verkamenn á Íslandi séu nokkuð betur settir en verkamenn í Englandi, Svíþjóð og öðrum löndum, þar sem þeir hafa þrisvar sinnum lægra kaup en hér. Dýrtíðarpólitík okkar hefur verið sú að láta undan áróðri, sem skapað hefur þá trú, að það væri betra að fá 10 kr. í kaup en 5 kr., þó að dýrtíðin vaxi þannig, að maður kaupi sömu nauðsynjar fyrir 10 krónur og greiddar voru með 5 kr. áður. En afleiðingarnar hafa orðið þær fyrir ríkissjóð, sem við nú sjáum, og fyrir framleiðslu landsmanna, en að lokum fyrir alla landsmenn.

Þegar hinar þroskuðu nágrannaþjóðir okkar ræða um nýskipun sinnar framleiðslu, sér maður fljótt, að það, sem þær hugsa um fyrst og fremst, er það, hvernig framleiðsla þeirra geti orðið samkeppnisfær við framleiðslu annarra þ jóða. Við verðum að fara að hugsa fjármál okkar á svipaðan hátt, þótt seint sé. Í þessu landi eru óþrotlegir möguleikar. Hvar sem við lítum, er þörf fyrir nýtt framtak og nýjar framfarir. Þeir menn, sem taka á sig ábyrgðina á því að halda áfram fjármálastefnunni frá 1942, verða að gera sér það ljóst, að þeir taka jafnframt á sig þá ábyrgð að koma í veg fyrir þessar framfarir í bráð, og ef þessari fjármálastefnu verður haldið áfram enn um skeið, þá einnig í lengd.

Þessi fjármálastefna er að koma öllum þjóðarbúskapnum í algera sjálfheldu.