26.02.1945
Sameinað þing: 97. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 693 í D-deild Alþingistíðinda. (5860)

224. mál, virkjun Fljótaár

Skúli Guðmundsson:

Þeir hafa nú verið að rekja raunir sínar í sambandi við þetta mál, ýmsir þeir, sem upphaflega báru hér fram á hv. Alþ. að veita ríkisábyrgð fyrir þessari virkjun Fljótaár. Mér finnst ástæða til í sambandi við þessar umr. að minna á, að það var töluverður ágreiningur um það fyrst, þegar málið kom hér fram á Alþ., hvort ætti að fara þessa leið til þess að veita Siglufjarðarkaupstað raforku eða aðra. Ég vil minna á það, að mþn. í raforkumálum, sem þá starfaði og fékk þetta mál til meðferðar, lagði gegn því, að veitt yrði ríkisábyrgð fyrir láni til virkjunar Fljótaár. Mþn. komst að þeirri niðurstöðu og benti hæstv. Alþ. á það, að það mundi verða heppilegra að sjá Siglufjarðarkaupstað fyrir rafmagni á annan hátt en þennan, með stækkun Laxárvirkjunarinnar í Þingeyjarsýslu og með orkuflutningi þaðan til Siglufjarðar. Það var á það bent af okkur í mþn., að það gæti verið byrjun á landslínu frá Laxá vestur um byggðir Norðurlands, sem yrði svo tengd við virkjunina hér á Suðurlandi, og það væri í alla staði heppilegra að fara þessa leið heldur en að ráðast í að virkja þessa á þarna í Fljótum.

Það hefur stöðugt verið að koma í ljós og sannast því betur, sem lengra hefur miðað áfram þessum framkvæmdum þarna, að það hefði verið heppilegra að fara að ráðum mþn. og þeirra manna hér á þ., sem vildu fara þá leið. Það er nú talið, að kostnaðurinn við þessa Fljótaárvirkjun muni verða a. m. k. um 13 millj. kr., og ef ég man rétt, er gert ráð fyrir því, að raforkan, sem þar er um að ræða, sé eitthvað um 4750 hestöfl. Nú skal ég ekkert segja um það, hvort þessar 13 millj. kr. nægja eða hvort menn eiga eftir að sjá fram á hækkun einu sinni enn, en ég vil til samanburðar aðeins geta þess, að samkv. þeim bráðabirgðaáætlunum, sem gerðar hafa verið af Rafmagnseftirliti ríkisins fyrir mþn. í raforkumálum og birtar eru með því frv. til raforkul., sem við höfum flutt, 5 þm., og er á þskj. 935, hefði verið hægt að virkja 6 þús. hestöfl í Laxá í Þingeyjarsýslu, sem að vísu, þegar frá er dregið afltap, hefði ekki orðið nema 5400 hestöfl, fyrir 5,1 millj. kr., og það hefði verið hægt eftir þeim bráðabirgðaáætlunum að koma þeirri raforku eftir háspennulínu til Siglufjarðar fyrir kr. 13.365.000,00. Ég skal ekki segja, hvernig þessar bráðabirgðaáætlanir hefðu staðizt, en ég vil benda á það, að á þessari leið er hægt að láta stór kauptún við Eyjafjörð, eins og t. d. Dalvík, hafa rafmagn. En nú mun það kosta ærið fé að leggja þangað sérstaka línu. Það er þegar búið að afgreiða hér heimild til ábyrgðar fyrir láni til þeirra framkvæmda. Ég sé ekki ástæðu til að ræða þetta mál frekar; ég vil aðeins í sambandi við málið minnast á till., sem mþn. gerði á sínum tíma, og það hefði vissulega farið betur, að eftir þeim hefði verið farið.