26.02.1945
Sameinað þing: 97. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 694 í D-deild Alþingistíðinda. (5862)
224. mál, virkjun Fljótaár
Frsm. 3. minni hl. (Helgi Jónasson):
Það er farið að draga niður í hv. 7. þm. Reykv. Þegar þetta mál var til fyrri umr., þá var talað um það með miklu offorsi, að bent var á það, að þarna mundi óheppilegt að taka virkjunina. En nú hefur komið á daginn, að hér hafa átt sér stað ægileg mistök, hverjum sem það er að kenna. Nú segir hæstv. atvmrh., að málið hefði þurft betri undirbúning, og ég vil vona, að þessi mistök geti orðið til þess, að slík mál fái betri undirbúning í framtíðinni. Það vantar skýrslu um það, í hverju þessi gífurlega hækkun er fólgin, — að það skuli hafa þurft 2 millj. kr. til viðbótar og svo nú aftur 5 millj. kr., og svo kemur kannske á næsta þingi smáviðbótarhækkun. Nú eru þessir menn komnir inn á það, að það þurfi rannsókn, en það máttu þeir ekki heyra í fyrra. En þessi rannsókn átti að fara fram strax, en við það var þá ekki komandi. Sannleikurinn er sá, að það má vara sig á því að trúa nokkru því, sem sagt er í þessu máli, svo að það er ástæða til að taka allar umsagnir varlega í þeim efnum, svo að það er alls ekki ástæða til að halda því fram, að við í 3. minni hl. séum einhverjir fjandmenn Siglufjarðar í þessu máli. Rannsókn átti að fara fram, áður en ábyrgðin var veitt, og það var hægt að framkvæma án þess að það væri tap fyrir ríkið eða Siglufjörð.