26.02.1945
Sameinað þing: 97. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 699 í D-deild Alþingistíðinda. (5881)
260. mál, kaup Þórustaða í Ölvusi
Frsm. (Helgi Jónasson):
Herra forseti. — N. hefur haft þetta mál til athugunar, en þannig er farið um þessa jörð, að núv. eigandi hennar, Búnaðarbanki Íslands, hefur látið gera þar nokkrar framkvæmdir, svo að verð það, sem hann vill fá fyrir jörðina nú, er 157.599,02 kr. N. virðist þetta of hátt verð, og leggur hún því til, að till. verði breytt í samræmi við það og hún verði samþ. með þeirri breytingu, að ríkisstj. sé heimilað að kaupa jörðina fyrir hönd ríkisins fyrir það verð, sem hún telur hæfilegt.