26.02.1945
Sameinað þing: 97. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 704 í D-deild Alþingistíðinda. (5894)
260. mál, kaup Þórustaða í Ölvusi
Sveinbjörn Högnason:
Herra forseti. — Hv. þm. Barð. sagðist ekki hafa sagt neitt til hnjóðs landsetum á opinberum jörðum. Ég heyrði nú samt ekki betur en hann segði, að hinar opinberu jarðir væru sérstaklega níddar, og held ég, að það hafi einnig fleiri heyrt. Og ég veit ekki, hvað hægt er að segja landseta til hnjóðs, ef ekki það, að hann níði jörð sína. Ef hv. þm. Barð. skilur þetta ekki, held ég, að það hljóti að stafa af því, að hann geti ekki sett sig í spor þessara manna, hvað er þeim til hnjóðs og hvað ekki. Eftir íslenzkri löggjöf um landseta er það mesta afbrot, sem bóndi getur framið á jörð, sem honum er trúað fyrir, að hann níði hana. Hefur það verið svo eftir íslenzkum l. alla tíð. Því vil ég óska, að þeir menn, sem bera það á landseta hins opinbera, að þeir níði jarðirnar, afli sér upplýsinga um það í hinum einstöku héruðum og sveitum, hvort þetta hefur nokkuð við að styðjast. Ég fyrir mitt leyti veit um ýmsa landseta hins opinbera, sem, þótt þeir hafi ekki góða ábúð, sitja jarðirnar fjöldamörgum betur, sem eiga þær sjálfir.
Hv. þm. Barð. sagði enn fremur, að það munaði bónda í rauninni engu, þó að hann þyrfti að kaupa dýra byggingu, ef hann gæti fengið jörð fyrir t. d. fimm þús. krónur. Ef þetta hlutfall væri nú yfirleitt þannig milli jarðarverðs og húsaverðs, þá væri máske eitthvert vit í þessu. En ég vil biðja hv. þm. Barð. að kaupa fyrir mig góða jörð fyrir fimm þús. krónur. Ég leyfi mér að efast um, að það kostaboð lægi víða fyrir. Ég held, satt að segja, að jarðarverðið haldist í svipuðu hlutfalli við húsverðið, ef húsið er hæfilegt við jörðina. Vitanlega er það ekki svo í öllum tilfellum, því að margar jarðir eru yfirbyggðar. En það hefur yfirleitt verið þannig, og ég held, að jörð, sem talin er í betri býla röð á landinu, sé erfitt að fá undir nokkrum tugum þúsunda, og liggur þá í hlutarins eðli, að ekki notar bóndinn þá tugi þús. til að byggja yfir sig, sem hann hefur lagt fram fyrst, til þess að fá rétt til að sitja á jörðinni. Og er þá öllum augljóst, að vitanlega er illa fjáðum manni betra að geta fengið ábúðarrétt á jörð fyrir sig og sína og fullan umráðarétt yfir henni, eins og hann ætti hana sjálfur, fyrir ekki neitt og geta þá varið þeim litla peningastofni, sem hann á, til þess að byggja að einhverju yfir sig. Ég veit, að hv. þm. Barð. er svo glöggur á framkvæmdir fjármála, að þetta er honum augljóst.