06.09.1944
Sameinað þing: 39. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 728 í D-deild Alþingistíðinda. (5937)
79. mál, endurskoðun stjórnskipunarlaga
Eysteinn Jónsson:
Herra forseti. — Það var aðeins eitt atriði, sem ég vildi taka fram. Það er sjálfsagt, að þetta mál fari til n. og verði þar ýtarlega athugað, en ég sé ekki ástæðu til að viðhafa umr. um, til hvaða n. málið eigi að fara. Þó finnst mér eðlilegt að koma því þannig fyrir, að skilnaðarn., sem kosin var í sumar, fjalli ekki um fleiri mál en þau, sem hún nú hefur með höndum, því að hún var kosin til þess, og yrði þá þessu máli vísað til allshn. eða sérstök n. kosin til að athuga, hvernig framkvæma skuli gagngerða endurskoðun. Mér finnst eðlilegt, að ekki verði fleiru vísað til skilnaðarn. Hún er nú með sitt starf.