05.12.1944
Sameinað þing: 70. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 483 í B-deild Alþingistíðinda. (598)

143. mál, fjárlög 1945

Bjarni Benediktsson:

Herra forseti, háttvirtu hlustendur.

— Menn hafa nú heyrt mál Eysteins Jónssonar, hins færasta málsvara sundrungarinnar, postula þeirrar stefnu, að íslenzku þjóðinni ríði nú á engu meir en innbyrðis. fjandskap og illindum. Frjálsleg stjórnskipun hvílir á því, að eðlilegt sé, að skoðanir manna séu oft og einatt skiptar. Flokkar eru myndaðir til þess að gera þeim, sem svipaðar skoðanir hafa, hægara fyrir að vinna að framgangi þeirra. Þá er það og skiljanlegt, eins og hv. þm. Str. sagði í gær, að nokkur metnaður eigi sér stað á milli manna, hvort sem er í sama flokki eða öðrum. Þarf slíkt eigi ætíð að vera til óþurftar.

En öllu þessu: skiptum skoðunum, flokkadrætti og persónulegum metnaði — verður að stilla í hóf. Þessi öfl mega aldrei verða svo áhrifarík, að þau sundri sjálfri ríkisheildinni eða að þau komi í veg fyrir, að lögmætri stj. verði haldið uppi í landinu.

Samkv. stjórnarskránni er það Alþ., sem á að tilnefna ráðherra. Með þessu er Alþ. ekki aðeins fenginn réttur, heldur er því lögð sú skylda á herðar að sjá landinu fyrir stöðugri stj. Má með sanni segja, að þetta sé hin helgasta skylda þingsins, sú, sem það sízt megi víkja sér undan. Hinu verður auðna að ráða, hversu hverju sinni tekst til um stjórnarframkvæmdir. Á enn við um það, sem forfeður vorir sögðu, að til frægðar skal konung hafa, en eigi langlífis.

Þess þarf nú eigi, að rifjað sé upp, hvílík ógæfa steðjaði að Alþ. og þjóðinni allri, er um nær tveggja ára skeið mistókst að mynda þingbundna stj. í landinu. Í þess stað gegndi ráðherrastörfum óþingræðisleg utanþingsstjórn.

Hefur óvirðing Alþ. aldrei orðið meiri en þegar þm. á s.l. hausti voru úr ráðherrastóli valin hin herfilegustu hrakyrði fyrir það, að þeir vildu ekki fylgja þýðingarlausu kaupþvingunarfrv: Mega hlustendur minnast þessa, því að þeim umr. var útvarpað. Er þar var komið, höfðu rætzt allar hinar verstu hrakspár um utanþingsstjórnina, og var þó vegur þm. sýnu minni, þar sem þeir virtust ekki einu sinni hafa úrræði til að losna við hina úrræðaminnstu, en tildursmestu stj., sem hér hafði setið frá dögum hinna dönsku hirðgæðinga fyrr á öldum.

Meðan þessu fór fram, mögnuðust verkföll og annar ófriður í landinu, en utan lands gerðust þeir atburðir, sem líklegir eru til að ráða örlögum mannheims og þar með Íslands um áratugi, ei ekki aldir.

Mér hefur ætíð verið það með öllu óskiljanlegt, að nokkur þm. skyldi una því að láta úrræðaleysi og öngþveiti ráða um stjórn landsins, meðan svo var statt, en taumlausa sundrung ríkja á Alþingi. Slíkt ástand var vissulega þyngra en tárum tæki, og áttu þm. í raun réttri ekki annan kost, ef eigi raknaði úr, en leggja niður umboð sín, allir í hóp, og láta aldrei meir sjá sig á mannfundum.

Þessu ástandi var aflétt með myndun núv. ríkisstj. Stjórnarmyndunin hefur nú þegar þvegið af þinginu slíka skömm og vakið þvílíkan fögnuð með þjóðinni, að von er, að menn spyrji: Af hverju tókst þinginu ekki að mynda stj. miklu fyrr? Á hverjum stóð?

Vakin hefur verið athygli á því, að tilraunirnar til stjórnarmyndunar tóku 100 vikur. Á þeim langa tíma voru stjórnarmyndanir reyndar með margvíslegum hætti. En það var sameiginlegt öllum tilraununum, sem í 971/2 viku voru gerðar, að þá átti Framsfl. að vera þátttakandi í stj. Það mistókst æ ofan í æ. Enda segir Eysteinn Jónsson nú, að samningarnir hafi aðeins verið á byrjunarstigi eftir 971/2 viku, því fari fjarri, að Framsókn hafi þá verið búin að láta uppi allt, sem inni fyrir var. En þá höfðu hinir flokkarnir fengið nóg. Þá loksins var reynt að mynda stj. án Framsóknar. Sú tilraun hafði tekizt eftir 21/2 viku. Gefur þetta strax nokkra bending um, á hverjum mest hafi staðið um þátttöku í stjórnarmyndun. Vita og nú orðið allir það, sem ekki aðeins var berum orðum sagt í viðræðum milli samningamanna flokkanna, heldur hefur og glögglega komið fram í málgögnum flokksins og á fundum, að forystumenn Framsfl. töldu ekki tímabært að mynda þinglega stj. Þeir töldu ekki tímabært fyrir þjóðina, að látið væri af illindum og horfið væri frá úrræðaleysi til styrkrar stj. og einlægs samstarfs.

Hvernig má það vera, að næststærsti flokkur þjóðarinnar taki slíka afstöðu? Er þar að verki einungis blint flokksofstæki, þrætugirni og metnaður, sem meinar öðrum samstarfs af ótta við, að það verði þeim til of mikils frama, ef tekizt gæti að eyða glundroða og öngþveiti úr þjóðlífinu?

Því miður verður að segja það eins og er, að þröngsýn flokkssjónarmið hafa eflaust ráðið of miklu um afstöðu Framsfl. Hann réð mestu um gerðir hinnar óhappasælu utanþingsstjórnar og taldi, eflaust með réttu, forréttindum sínum og forystumanna sinna vel borgið, á meðan hún væri við völd. Samfara þessu litu forystumenn flokksins svo á, að þeir hefðu beinan hag af því að halda við enn um stund og til kosninga glundroða og úrræðaleysi um almenningshag, í því skyni að geta sýnt fram á ófarnað þann, sem leiddi af hinni nýju kjördæmaskipun.

Slík flokkshyggja horfir til beinnar upplausnar í þjóðlífinu og er vissulega óverjandi. Hlýtur hún, meðan þessara atburða er minnzt, að verða til óvirðingar þeim, sem um hana hafa gerzt sekir.

En til sannmælis þeim forystumönnum Framsfl., sem þessu hafa ráðið, skal fúslega játað, að þeim eru margir hlutir vel gefnir. Við það að kynnast þeim hér á þingi og ekki sízt við að sitja með þeim á endalausum samningafundum, þá hef ég öðlazt sannfæringu fyrir, að þeir eru að ýmsu leyti mikilhæfir menn, kappsamir, fylgnir sér, vita glöggt, hvað þeir vilja, og því fer fjarri, að þeir séu þjóð sinni illviljaðir. Þeir eru engan veginn slíkir „undirmálsfiskar“, sem einn af reyndustu útgerðarmönnum landsins nýlega nefndi þá.

En hvað er þá að? Af hverju hafa framsóknarmenn ekki fengizt til þess með öðrum að leggja hönd á plóginn, að láta í té krafta sína, sem vissulega eru ekki einskis nýtir, til viðreisnar þjóðfélagsins?

Það, sem að er, er það, að þeir hafa fallið í sömu gröf og margir valdamenn á undan þeim. Þeir rugla, alveg saman hagsmunum sínum og flokks síns annars vegar og hagsmunum þjóðarinnar hins vegar.

Sá maður, sem gerþekkir þessa menn, hóf þá til valda og haldið hefur við fylgi þeirra með þjóðinni, hefur nýlega lýst því, hvernig það hefur snúizt til þjóðarógæfu, að þeir telja sér vera „áskapað“ að vera ráðherrar. Er þeim að vissu leyti vorkunn, þótt hin langa valdaseta hafi um þetta ruglað dómgreind þeirra, ekki sízt þar eð sumir þeirra, sem ætla hefði mátt, að betur vissu, sýnast haldnir sömu villu, og er þó hv. þm. S.-Þ. sannarlega ekki í þeim hóp.

En þessi sannfæring Framsóknarforkólfanna hefur haft þau áhrif, að þeir af heilum hug trúa því, að þeir séu að þjóna föðurlandi sínu með því að koma í veg fyrir, að landinu sé stjórnað svo sem lög standa til, ef þeir sjálfir hafa ekki öll ráð ríkisstj. í hendi sér og skipa þar hinn æðsta sess. Þess vegna telur og hv. þm. Str., að öll óhamingja Íslands stafi frá þeim degi ársins 1942, er hann varð að láta af völdum eftir nærri átta ára ráðherradóm.

Þessu til viðbótar er það, að Framsfl. hefur ætíð, nema um nokkurra vikna skeið í haust, verið haldinn þeirri trú, sem einnig réð öllu um gerðir utanþingsstj., að umfram allt yrði að lækka kaupið í landinu. Er meira að segja á sumum að heyra sem þeim þyki þetta hafa allt of lengi dregizt.

Rétt er það að vísu, að atvinnuvegir landsmanna þola ekki hærra almennt kaupgjald en nú er reitt, enda er með stjórnarsamningnum tryggt, að almenn kauphækkun mun ekki eiga sér stað. Er það í fyrsta skipti, sem slík raunhæf trygging fyrir stöðvun kauphækkana fæst. Á hitt hefur verið nógsamlega bent áður í þessum umr., að undanfarin tvö ár hafa atvinnuvegirnir getað greitt það kaup, sem af þeim hefur verið krafizt, og enn þurfa þeir ekki á kauplækkun að halda.

Versta villa utanþingsstj. var einmitt sú að vera ,sí og æ að klifa um þvingunarlög til að knýja fram þá kauplækkun, sem enn þurfti eigi á að halda. Og öllum mátti vera það ljóst, að vonlaust væri að fá verkalýðinn til samstarfs, ef forsenda þess átti að vera kauplækkun, áður en afkoma atvinnuveganna gerði hana óhjákvæmilega.

Með þessu er ekki sagt, að síðar — og ef til vill áður en varir — verði ekki þörf á kauplækkun. En ótti um það mátti ekki lengur standa í vegi fyrir því, að komið væri á skaplegri stj. í landinu, sem sneri sér að raunhæfri lausn þeirra vandamála, sem fyrir liggja, og hæfist handa um þá uppbyggingu atvinnuveganna, sem Íslendingar nú í fyrsta skipti hafa fjármagn til, fjármagn og möguleika, sem viðbúið var, af alþjóðlegum ástæðum, að gengju oss úr greipum, ef áfram væri haldið að eyða tímanum í einskis verðar þrætur.

Vandamál verðbólgunnar er hins vegar fyrst og fremst innlent viðfangsefni, deila um það, hversu mikið hver stétt skuli fá í sinn hlut, og sýnist það einsætt, að einlægt samstarf allra stétta muni líklegast til að koma í veg fyrir þjóðhættulegan ágreining þeirra í milli af þessum sökum eða öðrum. Þetta á ekki sízt við um verkamenn og vinnuveitendur. Ef báðir þessir aðilar vinna saman að því undir forystu ríkisvaldsins að útvega afurðunum sem allra bezta markaði og koma framleiðslutækjum og öllum aðbúnaði atvinnuveganna í sem bezt horf og sannfærast þá um, að þrátt fyrir þessa viðleitni sé kaupgjald of hátt, þá fyrst er eðlilegt, að kaup lækki, en þá verður líka að vænta þess, að um það verði samkomulag.

Andstæðingar stj. segja, að í þessu kenni of mikillar bjartsýni. Þar skilur á milli. Við sjálfstæðismenn treystum á skynsemi fólksins. En forystumenn Framsfl. hafa vanizt því á valdaferli sínum að vitna fremur til annarra mannlegra eiginleika en skynseminnar. Það sem annað á sína skýringu.

Á meðan Framsfl. fór með stj., var lengst af lítil velsæld í landinu. Forystumenn Framsóknar bjuggu og svo um, að sem flestir landsmenn ættu sem mest undir þá að sækja. Þeir tömdu sér það að telja bitana ofan í hvern mann. Þeir „hjálpuðu“ mönnum um innflutning og opinbera styrki. Þeir vildu helzt, að allur landslýðurinn mændi vonaraugum til valdhafanna, og eftir getu reyndu þeir að láta hið rangláta íhald og aðra bersynduga verða úti í kaldri norðannepjunni, sem næddi af óvild stjórnarherranna. Forystumenn Framsfl. vöndust á að trúa því, að í slíku væri hin sanna stj. fólgin. Ef fólkið er ekki í skapi til að una þvílíkum stjórnarháttum, þá telja þessir menn, að það sé alls ekki „tímabært“ að hafa löglega stj. í landinu.

Þeir hafa þess vegna nú talið sjálfum sér trú um, að það væri ekki tímabært að mynda stj., fyrr en hrun hafi átt sér stað, hrun, sem gerði hug almennings svo meyran, að unnt yrði að lækka kaup, og gerði hann móttækilegan fyrir blessun þá, sem að öllum líkindum er samfara ofstjórn Framsfl.

Aðrir geta aftur á móti ekki fallizt á þetta vanmat Framsóknarforkólfanna á skynsemi fólksins. Það er að vísu skiljanlegt, að forystumenn Framsfl. geri sér ekki ljóst, að allur almenningur hugsar ekki með sama söknuði til valdatímabils þeirra sem þeir gera sjálfir. En það mundi þó bæði sjálfum þeim og þjóðinni hollast, að þeir gerðu sér þess grein, að alþjóð hugsar með skelfingu til eymdaráranna, þegar Framsókn ein réð öllu. Atvinnuleysið og örbirgðin þá var að vísu ekki eingöngu röngum stjórnarháttum að kenna. En þeir áttu sinn þátt í því. Og Íslendingar eru staðráðnir í því að gera allt, sem í þeirra valdi stendur, til að koma í veg fyrir, að sú saga endurtaki sig.

Við sjálfstæðismenn viljum ekki kaupa völd okkar því verði, að hrun og atvinnuleysi sverfi svo að fólkinu, að það þess vegna uni stj. okkar. Það er þvert á móti óhagganleg sannfæring okkar, að einbeita þurfi öllum kröftum til þess að koma í veg fyrir, að hrun og atvinnuleysi gangi á ný yfir íslenzku þjóðina. Við teljum, að allur ágreiningur verði að víkja til að forða föðurlandi okkar frá þeirri ógæfu og eymd, sem slíku væri samfara. Þess vegna var stj. mynduð.

Megi gifta Íslands verða slík, að sú stj., sem í þessum anda starfar, verði bæði til frægðar og langlífis.