11.10.1944
Sameinað þing: 53. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 774 í D-deild Alþingistíðinda. (5984)

157. mál, öryggi umferðar yfir Ölfusárbrúna

Flm. (Sveinbjörn Högnason):

Herra forseti. — Ég hef leyft mér að flytja hér þáltill. á þskj. 386 um það, að rannsakað verði burðarmagn Ölfusárbrúarinnar, eftir að viðgerð hefur farið fram á brúnni, í því skyni, að hægt verði að greiða fyrir flutningum yfir brúna meir en nú er, eftir að viðgerðin hefur farið fram, þannig að ef burðarmagn brúarinnar reynist ekki meira en nemur því hámarksálagi á brúna, sem nú er ákveðið, þá verði athugað, hvort ekki verði möguleikar á því með tiltölulega hægu móti að styrkja brúna það mikið, að eðlileg umferð geti verið um hana, eins og var áður en brúin fór niður.

Það fagna því allir, hversu fljótt hefur verið gert við brúna, hversu fljótt hefur verið brugðið við af stjórnarvöldunum um að hefja framkvæmd á viðgerðinni, þannig að nú er hægt að fara um hana aftur. Hins vegar er það vitað, að um þessa brú, sem að sjálfsögðu langmest umferð er um af stærri brúm á landinu og gífurleg umferð um af þungabifreiðum, um þessa brú hefur verið ákveðinn hámarksþungi bifreiða, sem um brúna mega fara. Þessi þungi er 6 smálestir. En eftir því sem flutningar eru orðnir á þessari leið, þá eru margar bifreiðir þyngri og flestar eilítið þyngri af þeim, sem flytja afurðir úr héruðum austan brúarinnar. Eftir þeim upplýsingum, sem ég hef um þessi efni, munu flestar þessar algengustu bifreiðar, sem miðað er við, að flytji 2½ tonn, vera rúmlega 6 smálestir að þyngd fullfermdar, og þar af leiðandi er ekki einu sinni hægt að fullferma þær, ef nákvæmlega á að fylgja þeim fyrirmælum, sem hér er um að ræða. Hins vegar eru líka komnar allmargar bifreiðar, sem ætlaðar eru fyrir meiri þyngd flutnings, og það líka úr héruðum, sem liggja langt frá brúnni að austanverðu, sem algengast mun vera, að fullfermdar séu um 8 smálestir að þyngd, og nokkrar bifreiðar á þessu svæði, sem mundu vega fullfermdar allt að 10 smálestum.

Eins og gefur að skilja, er það allmikill kostnaðarauki á þessum flutningum, ef ekki er hægt að hafa flutningatækin nema hálffermd eða það verður að selflytja flutninginn yfir brúna eða á brúnni og fá til þess mannafla að taka af bifreiðunum til þess að flytja farminn í tvennu lagi yfir brúna.

Nú má segja, að vitanlega sé það stór bót, þó að ekki sé hægt að flytja nema sem svarar 6 smálesta þunga fullfermdra bifreiða í einu. Og maður verður að binda sig við þennan annmarka, ef það liggur raunverulega fyrir, að brúin þoli ekki, eins og hún nú er, meiri þunga heldur en 6 smálestir. Hins vegar hef ég ástæðu til að ætla, að þetta burðarmagn brúarinnar sé ákveðið nokkuð af handahófi, en rækileg athugun hafi ekki farið fram á því, hvað brúin muni þola, eins og hún nú er, eftir að henni hefur verið komið upp aftur. Ég hef heyrt því haldið fram af þeim, sem við þetta hafa fengizt, að burðarmagn brúarinnar muni nú vera betra heldur en nokkru sinni áður. Ég fullyrði ekkert um þetta. En ég hygg, að ekki hafi farið fram rækileg rannsókn á því, hvað eðlilegast sé að ákveða, að hámarksþunginn megi vera á brúnni. En þar sem hér er um að ræða atriði, sem snertir framleiðslu bænda og kostnaðarauka við hana, þá er nauðsynlegt, að vitað sé nákvæmlega, hvað á brúna má leggja. Og ef það kemur í ljós við slíka rannsókn eða ef það er þegar vitað, að ekki megi leggja meira á brúna en til hefur verið tekið sem hámarksálag, þá legg ég til í þáltill., að gerð verði athugun á því, hvort ekki sé hægt að styrkja brúna betur, svo að hún þoli eðlilegt álag miðað við umferðina um hana eins og hún var áður en brúin fór niður, og þá hvað gera þurfi til styrktar brúnni, til þess að svo megi verða. — Það er áreiðanlega mjög mikið fjárhagsatriði fyrir framleiðendur, sem þurfa að fara yfir brúna með vörur sínar, að þetta væri hægt, ef ekki þyrfti mjög miklu fé til þess að kosta.

Ég hef þess vegna farið fram á það með þessari þáltill., að af ríkisstj. verði tilnefndir þrír menn til þess að athuga það raunverulega burðarmagn brúarinnar, eins og hún nú er. Og ef það reynist svo, að hámarksálag á brúna sé nú ákveðið í réttu hlutfalli við burðarmagn hennar, þá sé líka látin fara fram athugun á því, hvað gera þyrfti til styrktar brúnni, til þess að hún þyldi þá umferð, sem áður var yfir hana, og mun þá burðarmagnið verða að miðast við 8–10 smálestir.

Ég vil leyfa mér að vona, að hæstv. Alþ. hafi fullan skilning á þessu máli, hversu mikið fjárhagsatriði þarna er um að ræða fyrir þá, sem brúna nota, þannig að hv. þm. vildu ljá stuðning þessari þáltill.

Ég sé, að hæstv. forseti hefur ákveðið tvær umr. um þessa þáltill. Tel ég það eðlilegt, því að vitanlega mundi einhver kostnaður fylgja því, að þessi rannsókn væri látin fram fara. Og ég vildi leyfa mér að óska eftir því, að þáltill. verði vísað til síðari umr., og þá mun sjálfsagt eðlilegast, að henni verði vísað til allshn., ef hún fer í n. Hins vegar tel ég, að málið liggi svo ljóst fyrir, að raunverulega mundi ekki vera þörf á að vísa þáltill. til n. En ég legg það á vald hæstv. forseta, hvort hann telur það eðlilegustu málsmeðferð að vísa till. til n. Ef málinu verður vísað til n., vil ég óska þess, að það fái skjóta afgreiðslu í n., því að nú er, eins og kunnugt er, einn langmesti annatími um flutninga um brúna, þar sem sláturstíð stendur yfir, þannig að flutningar eru aldrei á árinu meiri austan yfir brúna.