02.03.1945
Sameinað þing: 99. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 782 í D-deild Alþingistíðinda. (6008)

236. mál, húsaleiguvísitala

Frsm. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. — Allshn. hafði þetta mál til meðferðar á mörgum fundum. Eins og hv. þm. er ljóst, er hér um að ræða viðkvæmt mál, sem vakið hefur mjög miklar deilur. Ég vil lýsa því yfir, að n. gerði ítrekaðar tilraunir til að upplýsa málið frá báðum hliðum, að svo miklu leyti sem föng voru á. N. gaf út álit 2. febr., eins og sést á þskj. 1023. En n. barst eftir að álitið var gefið út mjög langt og ýtarlegt bréf frá formanni Fasteignaeigendafélags Reykjavíkur. En hann hafði, meðan málið var hjá n., legið á sjúkrahúsi og ekki getað mætt hjá n. Aftur á móti mættu tveir menn úr stjórn Fasteignaeigendafélagsins, og hafði n. allar upplýsingar frá þeim, eins og ég mun síðar koma að. N. hafði einnig á fundum hjá sér kauplagsn. alla og ræddi ýtarlega við hana um málið.

Það virðist í raun og veru vera tvennt, sem deilt er um milli þessara tveggja aðila. Annað er það, hvað viðgerðakostnaðurinn er og hvernig hann skuli reiknaður. Kauplagsn. hafði komizt að þeirri niðurstöðu 1941, þegar hún fyrst reiknaði þessa vísitölu út, að hann væri 16%. Þessa niðurstöðu hafði hún fengið á þann hátt að fá frá skattstofunni viðhaldskostnað 80 leiguhúsa í Reykjavík. Var það upplýst, að þetta voru eingöngu hús, sem kalla mætti leiguhús, það er hús, sem eigandinn bjó ekki í sjálfur. Nefndin taldi sig ekki geta tekið önnur hús til athugunar en þau hús sérstaklega, því að ekki er að marka viðhaldskostnað á húsi, sem eigandinn byggi í sjálfur, þar sem hann gæti meðal annars notað sínar tekjur til viðhalds og fengið þær dregnar frá öðrum skattskyldum tekjum. Þetta er raunverulega grundvöllurinn fyrir viðhaldskostnaðinum. Formaður Fasteignaeigendafél. skýrði frá því, að hann teldi, að þessi upphæð hefði átt að vera rúmlega 23%, og færði þau rök fyrir þeirri skoðun, að ekki mætti miða við viðhaldskostnað áranna 1938–39, heldur yrði að fara 10 ár aftur í tímann. Þótt 16% nægðu stundum, þá væri kostnaðurinn svo mikill 10. hvert ár, að það færi langt upp úr því. N. og kauplagsn. vildu ekki fallast á þetta sem full rök, m. a. vegna þess, að í þeim 80 húsum, sem tekin voru til að miða við, hlutu að vera einhver hús, sem höfðu fengið 10 ára viðhaldið, sem form. Fasteignaeigendafél. talaði um. Það er líka augljóst, að þegar menn gera skattskýrslur sínar, telja þeir varla fram minna viðhald en það er, þegar þeir fá að draga það frá skattskyldum tekjum. Í raun og veru má byggja á því, sem gefið er upp á skattskýrslu á hverju ári í þessu efni. Það má telja það víst, að það sé fullkominn viðhaldskostnaður viðkomandi húss.

Kauplagsn. upplýsir enn fremur, að hún hafi skrifað til húseigenda hér í bænum fleiri tugi eða hundruð bréfa, en aðeins fengið nokkur bréf til baka ásamt mjög ófullkomnum viðhaldsreikningum, 5 að tölu, og þar af voru tveir nothæfir til þess að reikna vísitölu eftir. Kauplagsn. viðurkenndi jafnframt, að þessi grundvöllur hefði alltaf verið véfengdur, en ekki hefði verið hægt að fá styrkari grundvöll, þótt hún hafi margóskað eftir því að fá húseigendur til að leggja fram reikninga, sem sýndu hinn raunverulega viðhaldskostnað. En hún hefði ekki getað fengið neitt, sem hún gat byggt á.

Kauplagsn. lagði fyrir ráðuneytið á þeim tíma, að viðhaldskostnaðurinn yrði reiknaður 16%, en á það gat ráðuneytið ekki fallizt og lækkaði hann um 1%. Þegar svo fulltrúar Fasteignaeigendafélagsins komu til n., voru þeir spurðir að því, hvort þeir álitu þessa skiptingu rétta. Og þeir tveir, sem mættu hjá n. og báðir eiga sæti í stjórn félagsins og annar er húsameistari, viðurkenndu báðir, að þessi skipting væri rétt eftir því, sem þeir bezt gætu séð. Aftur á móti hefur form. fél. mótmælt þessu og haldið fram rökum, sem ég minntist á áðan, en allshn. gat ekki fallizt á eftir að hafa heyrt rök kauplagsn, og eftir að tveir menn úr stjórn Fasteignaeigendafélagsins höfðu viðurkennt, að sá grundvöllur væri réttur. Hún gat því ekki fallizt á, að grundvöllurinn væri rangur eða að ástæða væri til að leggja í kostnað við að rannsaka, hvort hann væri réttur eða rangur. Og þótt hægt væri að fá hækkað að einhverju leyti hlutfallið milli viðhalds og annars kostnaðar, hefur það ekki svo ákaflega mikla þýðingu, þar sem húsaleiguvísitalan breytist aðeins af þeim hluta, sem reiknaður er viðhald.

Hitt atriðið, sem mjög mikið er deilt um, er byggingarvísitalan í bænum. Kauplagsn. heldur fram, að hún sé 338 á móti 100 1939. Og hlutfallið milli vinnu og efnis 58% móti 45–50% fyrir stríð. Um þetta ber ekki saman kauplagsn. annars vegar og forráðamönnum Fasteignaeigendafélagsins hins vegar, Þeir halda því fram, að verðvísitalan sé komin upp í 600, því að 5 sinnum sé dýrara að byggja nú heldur en fyrir stríð. Og þeir segja, að hlutfallið milli vinnu og efnis sé 70% á móti 30%. Og það standi þannig á því, að reikna beri með því, að 2 tímar séu unnir í eftirvinnu. Það er í sambandi við samninga hér í Reykjavík á þessum tímum. Nú viðurkenndi einnig fulltrúinn frá Fasteignaeigendafélaginu, að þetta væri því aðeins rétt, að húseigendur héldu við húsum sínum á sama hátt og fyrir stríð, en það er vitanlegt, að það er ekki, því að fyrir stríð var eftirspurnin eftir leigjendum miklu meiri en eftirspurnin eftir húsnæði, og þess vegna urðu húseigendur á þeim tímum ekki aðeins að skipta oft um leigjendur, heldur urðu þeir ef til vill að mála og veggfóðra alla íbúðina að nýju í hvert sinn, sem skipt var um leigjendur. Nú hefur hins vegar alveg sannazt, að vegna þess að eftirspurn eftir húsnæði er meira en framboð, hafa húseigendur neitað að halda við íbúðum fyrir leigjendur og einnig og sér í lagi vegna þess, að þeir hafa engan veginn hlutfallslega hærri tekjur af leigunni nú, og þar af leiðir að hið raunverulega viðhald innan húss hefur færzt yfir á leigjendurna. Húseigendur hafa hvorki getað né viljað leggja fram raunverulegt viðhald á leiguíbúðum. Þetta er líka viðurkennt af þeim hluta stjórnarinnar, sem kom á fund með n., en hins vegar hélt húsameistarinn því fram, að þetta ætti aðeins við það viðhald, sem væri innan húss, en ekki það viðhald, sem yrði að fara fram á húsinu að utanverðu. Ef litið er á, hvernig tekjur húseigenda skiptust árið 1939, þá er álitið, að af hverjum 1000 kr. hafi farið 850 kr. í annað en viðhald, en 150 kr. aðeins í viðhald. Sé nú borið saman árið 1945, þá eru 1000 kr. með vísitölunni, sem er 136, 1360 kr., og það skiptist þannig, að viðhald 150 kr., plús viðhaldsvísitalan 338, verður 573 kr., og annað verður 863 kr., eða 13 kr. hærra en það var 1939. Nú hefur með húsaleigulögunum verið ætlazt til þess, að tekjur af húseign sem eign yrðu hlutfallslega ekki meiri en tekjur þeirra manna, sem áttu fé í sparisjóði, en bæta skyldi upp tekjur þeirra manna, sem hefðu það fyrir aðaltekjur að eiga hús og leigja þau út. Það er náttúrlega engu að síður ástæða til þess fyrir Alþ. að bæta upp a. m. k. þeim gamalmennum, sem ekkert hafa til að lifa af annað en vaxtatekjur sínar, það verðfall, sem orðið hefur á peningum.

Nú vildi Fasteignaeigendafélagið reikna viðhaldsvísitöluna 600 í stað 338, og þá yrði viðhaldskostnaðurinn 900 kr. af 1360 kr. og þá aðeins eftir 460 kr. til annarra útgjalda. Samkvæmt þessu skyldi húsaleiguvísitalan hækka úr 136 í 176,3, og það er raunverulega sú tala, sem Fasteignaeigendafélagið segist þurfa að fá til þess að vera skaðlaust af þessu máli. Ég hef síðan sem form. n. fengið tvö bréf, síðan nál. var gefið út. Annað er frá kauplagsn., þar sem hrakin eru þau gögn, sem form. Fasteignaeigendafélagsins hefur sent n. Fyrst og fremst var þetta upplýst á fundi n., en síðan hefur það verið staðfest í bréfi til n., en þetta bréf kom ekki fyrr en nál. hafði verið gefið út, og við sáum ekki ástæðu til að gefa út nýtt nál. með öllum þeim bréfum og gögnum, sem hér liggja, sem sum hver eru kannske annars eðlis en málið sjálft. En auk þess hef ég einnig síðan fengið bréf frá form. Fasteignaeigendafél., og í því bréfi er ekkert annað en staðfesting á því, sem ég hef skýrt og hann hefur tekið fram á fundi hjá n. Eftir að n. hafði kynnt sér öll þessi gögn, gat hún ekki lagt til, að till. yrði samþ. eins og hún lá fyrir, og sérstaklega með því að kauplagsnefnd lýsti því yfir og lýsir því enn yfir hér í sínu síðasta bréfi til n., að hún sé fús til þess að taka til greina allar þær upplýsingar, sem kunna að koma frá Fasteignaeigendafél. og byggðar séu á raunveruleikanum, að taka þær til athugunar við útreikning á vísitölunni, þegar hún fari fram næst. Hún hefur þess utan lýst því yfir við allshn. og eins hagstofustjórinn, sem mætti hjá n., að kauplagsnefnd sjái ekki ástæðu til að fara að reikna út nýjustu húsaleiguvísitöluna aftur, það muni engu breyta um þessi mál. Hinu hélt einn nm. fast fram, og það er í rauninni kjarni málsins, að það væri mjög nauðsynlegt að breyta sjálfum húsaleigul., en það er vitanlega allt annað mál.

Það er einnig viðurkennt í blaði frá 19. febr., sem fasteignaeigendur hafa gefið út, þetta, sem ég hef haldið fram, að þeir hafi sjálfir ekki kostað viðhald á húsum vegna þess að þeir hafi ekki getað það, en ef þeir hafa ekki sjálfir kostað það, þá væri alveg rangt að greiða þeim hærri húsaleigu, sem stafaði af auknum viðhaldskostnaði, því að raunverulega er þá verið að svíkja leigjendurna, sem ekki fá hina almennu vísitöluhækkun, eins og þeir mundu fá, ef leiga þeirra raunverulega hækkaði eða hin raunverulega leiga, sem þeir greiða, kæmi inn í vísitöluna.

Með þessum rökum er n. einróma sammála um það, að þessi till. verði afgr. með rökstuddri dagskrá, sem fram kemur á þskj. 1023.