21.02.1944
Sameinað þing: 19. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 793 í D-deild Alþingistíðinda. (6020)
35. mál, hátíðarhöld 17. júní 1944
Ólafur Thors:
Ég get lýst yfir, að ég get fyrir mitt leyti fallizt á ósk ríkisstj. í þessu máli, þótt ég geti ekki staðhæft, að allir þm. Sjálfstfl. yrðu á einu máli um það. Þótt ég þykist alveg vita fyrir víst, að svo sé ekki, þá hygg ég þó, að mikill meiri hl. þm. Sjálfstfl. vilji verða við þessari ósk, eins og hún er borin fram.