21.02.1944
Sameinað þing: 19. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 800 í D-deild Alþingistíðinda. (6028)

35. mál, hátíðarhöld 17. júní 1944

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. — Forsrh. hefur ekki viljað taka þessa till. til baka. — Mig langar til að athuga í þessu sambandi þá aðferð, sem hæstv. ríkisstj. hefur beitt á þessu sviði í sambandi við stjórnarskrármálið. Það var ríkisstj., sem bað þessa flokka um að flytja stjskrfrv. á Alþ. Fór hún fram á, að hún fengi að leggja þetta frv. fyrir þingið, og eftir nokkrar umr. fékk hún það. Nú vil ég segja það, að ríkisstj. hefur ekki farið fram á það við þessa flokka að fá að skipa þessa n. Í þeirri samstarfsn., sem hefur undirbúið þessa till., voru tveir ráðh. eða helmingur ríkisstj. Það var líka auðvelt fyrir ríkisstj. að koma því á framfæri við þessa flokka, ef hún hefði sjálf viljað skipa n. Hún gat komið með breyt. við þetta, þegar verið var að ræða það. Ég man ekki betur en stj. hafi vitað af því, þegar till. var endanlega tilbúin. En það, sem gerist, er, að tveir flokkar virðast koma sér saman um það við stj. að láta vísa till. til hennar. Þessi aðferð er mjög einkennileg og ber vott um, að stj. sé að taka þátt í baktjaldamakki, sem fram fer milli fárra manna innan þings, og að ríkisstj. hefur í þessu máli ekki haft samvinnu við þá flokka alla, sem að þessu máli hafa staðið, heldur við nokkra menn í þrem flokkum, sem vilja nota hana sem „autoritet“ til þess að koma fram á þingi margs konar refjum, sem þessum valdhöfum innan þingsins þykir þægilegt að beita um eitt af viðkvæmustu málum, sem nú eru rædd.

Hv. þm. G-K. ætlaði að reyna að afsaka þessi svik. Eins og geta má nærri, voru það engin rök og engar afsakanir, sem hann færði fram. Hann minntist á, að það væri ekki virðuleg meðferð, sem þetta mál sætti, að það skyldu verða umr. um það í þinginu. Þessi hv. þm. fer að ráðast á þm. fyrir það, að óvirðulegt sé að standa fast á þál., sem þrír stærstu þingflokkarnir hafa komið sér saman um að samþykkja. Hv. þm. finnst það mjög mikil óvirðing við þingið, að það skuli koma fyrir, að þm. vilji samþ. þál., sem þeir bera fram. En hitt finnst honum víst betra, að till., sem hann sjálfur er flm. að og er um það, að Alþ. skuli kjósa n. til þess að framkvæma og halda hátíðlega stofnun lýðveldis á Íslandi, — atburður, sem aðeins er framkvæmdur í eitt skipti á 1000 árum í sögu okkar, — honum finnst það víst virðulegt, að slík þál. sé drepin af Alþ. sjálfu.

Það er ekki hægt að skilja, hvað þessi hv. þm. á við, þegar hann talar um virðulega málsmeðferð. Ef honum finnst það góð meðferð, að ríkisstj. nefni menn til að gera þetta, hvort var það þá tilfinningin fyrir virðuleikanum hjá þessum hv. þm., þegar hann gerðist einn aðalflm. að þessari till. fyrir nokkrum dögum? Hvernig víkur því við, að þessi hv. þm. er svona breyttur á fáum dögum? Hvernig stendur á því, að honum fannst sjálfsagt fyrir fáum dögum, að Alþ. framkvæmdi þetta, en nú finnst honum það óvirðulegt af Alþ. að gera slíkt? — Þetta dugir ekki. Það er bezt að koma hreint fram, hv. þm. G-K., og segja: „Það voru þrír eða fjórir menn hér á þingi, sem voru á móti. Ég vil beygja mig fyrir því, sem þessir þrír segja, en ekki hinir 47.“

Þessi hv. þm. kemur inn á það, að það sé verið að leita að ágreiningsefnum með því að standa á till., sem við flytjum. Hvers vegna gerðist þessi hv. þm. meðflm. þessarar till. með mér fyrir nokkrum dögum? Gerði hann það til þess að gefa ríkisstj. möguleika til þess að láta Alþ. drepa hana? Hver var meiningin? Heldur hv. þm. G-K., form. Sjálfstfl., að hv. þm. Borgf. og hv. 7. þm. Reykv. standi upp einungis til þess að leita að ágreiningsefni við foringja sinn, hv. þm. G-K.? Heldur hann, að hv. þm. Borgf. geri leik að því að hefja umr. um þessa till.? Er hv. þm. Borgf. svo fjarri honum innan flokksins, að hann þurfi að leita að ágreiningsefni til þess að deila á hann? Það er þá nýtt. Ég held, að það séum ekki við þrír þm., sem talað höfum með þessari till., sem séum að skapa óvirðulega málsmeðferð. Ég held, að það sé hv. þm. G.-K., form. Sjálfstfl., sem sé að skapa ágreiningsefni með því að víkja frá því, sem samkomulag hefur verið um, með því að gefast upp á að verja mál, sem hann hefur lofað að berjast fyrir. Ég held, að það sé hann, sem er að skapa ágreiningsefni um mál, sem enginn ágreiningur þarf að vera um. Ég held því, að þessum hv. þm. farist ekki að standa upp til þess að ávirða okkur aðra þm. fyrir að veita þessu máli virðulega meðferð. Þetta mál getur fengið einungis eina virðulega meðferð, þá, að þessi till.samþ. af Sþ. Og þó að form. Framsfl. og Sjálfstfl. hverfi frá þessu máli, er ég engan veginn búinn að sjá, að þeir eigi í því afturhvarfi svo mikið fylgi meðal flokksmanna sinna, að víst sé, að málið sæti eins óvirðulegri meðferð og hæstv. ríkisstj. hefur ákveðið að veita því.

Ég mun halda fast við það, að þessi till. fari til n., og ef samkomulag næst við ríkisstj. um, að hún eigi mann í n., hef ég ekkert á móti því. En ég stend fast á því, að till. verði samþ. og n. kosin til þess að undirbúa þjóðhátíð okkar, enda hefur sá háttur verið á hafður. Það var Alþ., sem 1926 kaus sex manna n. til þess að gera till. um hátíðahöldin 1930, og væri ekki nema eðlilegt og sjálfsagt, að sams konar athafnir verði hafðar um þetta mál.

Það er auðvitað margt, sem ræða mætti af því, sem hér hefur komið fram í tilefni þess, að tveir af flm. þessarar till. skyldu bregðast henni á þessu stigi málsins. Ég ætla ekki að gera það að umræðuefni. Það verður tilefni til þess síðar, en það er nægilega sýnt, hvað form. þessara tveggja flokka vilja, hvort sem hv. þm. leggjast svo lágt að fallast á till. þeirra eða ekki.