21.02.1944
Sameinað þing: 19. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 804 í D-deild Alþingistíðinda. (6034)
35. mál, hátíðarhöld 17. júní 1944
Sigurður Þórðarson:
Herra forseti. — Mér skildist, að þessi þáltill. hefði komið fram til þess að undirstrika vilja þriggja flokka í sjálfstæðismálinu, þegar heyrzt hafði, að þeir hefðu gengið frá því, snúið til baka með að ákveða gildistökudag stjskr. í sjálfri stjskr. En að hv. flm. þessarar þáltill., sem hér liggur fyrir, virðast ætla að snúast á móti sinni eigin þáltill., þykir mér ákaflega einkennilegt, og mér finnst, að það hljóti að benda á, að eitthvað sé ekki gott í efni. Maður hefur heyrt í stríðsfregnum undanfarið nýyrði, sem ég hef ekki getað skilið. Það er „varnarsigur“. Ég get búizt við, að varnarsigur í þessu máli sé fyrirhugaður af Alþfl. og þeim dansklunduðu í þessu landi. Allir vita, að þeir eru í mjög fámennum minni hluta og að stefna þeirra hefur að kalla ekkert fylgi með þjóðinni, sú stefna að rísa á móti því, að lýðveldið verði stofnað hér á landi ekki síðar en 17. júní n. k. Og það bendir á, að þeim sé ætlaður varnarsigur í þessu efni, að ekki má stíga neitt spor í þá átt að ákveða gildistökudag stjskr. 17. júní n. k. Og jafnvel nú, þegar 13 hv. þm. hafa borið fram till. til þál. um að undirbúa hátíðahöld 17. júní og það er nokkurn veginn tryggt, að það mál hafi fylgi þriggja þingflokka, þá skeður það undarlega, að ég sé ekki betur en hv. flm. þessa máls standi hér upp, hver á fætur öðrum, og vilji snúast á móti sinni eigin till. og álíti, að það hafi verið misráðið að bera hana fram. Hvernig í dauðanum á að koma því heim og saman, að hv. 13 þm., fulltrúar þriggja stjórnmálaflokka á Alþ., séu ekki í samráði við hæstv. ríkisstj. um þetta má1 og framburð þess á Alþ., sem er mál allrar þjóðarinnar? Ég get ekki trúað því, að þessir 13 hv. þm. hafi ekki verið búnir að ná samkomulagi við hæstv. ríkisstj. um þetta mál, áður en þeir fluttu þessa þáltill. Og hvers vegna koma þeir þá með þáltill., sem þeir snúa svo til baka með, þegar á þing kemur? Því að í staðinn fyrir að mæla með málinu, sem þeir flytja, sé ég ekki betur en þeir mæli á móti því. Þetta er áreiðanlega allt of góður varnarsigur, sem ætlaður er þeim mönnum hér í þinginu, sem andstæðir eru því að ákveða í stjskr., að hún taki gildi 17. júní. Þess vegna tek ég fram, að ég mun fylgja þessari þáltill. eins og hún er, í því trausti, að hv. flm. sjálfir bregðist ekki í málinu.
Það er verið að tala um, að í lýðveldisn. hafi menn nú bundizt órjúfandi samkomulagi. Á hvað bendir þetta? Á það, að samkomulagið, sem áður hefur verið um þetta, hefur í raun og veru verið rofið. En trúa menn því þá betur, þó að sterkari orð séu við höfð um „órjúfandi samkomulag“, að það muni standa betur, þegar það samkomulag, sem hv. þm. hafa tjáð vera orðið í þessu máli, hefur verið rofið, svo að ef eitt spor er stigið áfram, þá eru stigin mörg spor aftur á bak? — Ég ætla ekki að vera með nein stóryrði eða brigzlyrði, en ég harma, að í þessu máli, sem á að vera hafið yfir alla flokkastreitu hér á hæstv. Alþ. og hlýtur að vera eitt hið heitasta áhugamál allra Íslendinga, sé verið að tala um brigzlyrði og að eyða löngum tíma í samkomulag um sjálfsagðan hlut. Ef einhverjir skerast úr leik um þetta mál, hvort sem það er Alþfl. eða þeir, sem hafa mikla trú á, að okkur sé óheppilegt að stofna lýðveldi á þessum umtalaða tíma, þá verður að hafa það. En við, sem ætlum að fylgja því máli, að þá sé lýðveldið stofnað, ættum að berjast til sigurs fyrir það. Það á ekki að vera að eyða tíma í að semja við andstæðinga málsins. Við megum ekki taka tillit til andstæðinga í þessu máli. Þeir eru svo lítill hluti þjóðarinnar. Ég er viss um, að þjóðaratkvgr. mun sýna það, að það verða ekki margir á þeirra máli, sem ekki vilja stofna lýðveldi 17. júní n. k. Ég er ekki hræddur við þá atkvgr. En við getum tapað á því að semja við andstæðinga í þessu máli og veita þeim þannig þennan varnarsigur.