26.02.1945
Sameinað þing: 97. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 839 í D-deild Alþingistíðinda. (6089)
223. mál, gistihúsbygging í Reykjavík
Frsm. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. — Ég tók að mér að vera frsm. fyrir allshn. í þessu máli. Get ég verið fáorður. Það er ekki nema eðlilegt, að till. sem þessi komi fram, því að allir eru sammála um, að nauðsyn beri til þess að bæta úr þeim vandræðum, sem eru í Reykjavík, hvað gistihús snertir. Í grg. fyrir þessari till. er fram tekið, hverjir aðilar væru líklegastir til þess að mynda félagsskap um eða stuðla að því að koma upp slíku gistihúsi hér í Reykjavík, og þar talinn Reykjavíkurbær, Eimskipafélag Íslands, Búnaðarbankinn, Landsbankinn og Útvegsbankinn, Fiskifélag Íslands og Búnaðarfélag Íslands, Sambandið og Verzlunarráðið, Landssamband útvegsmanna, Sláturfélagið og Mjólkursamsalan.
Allshn. skrifaði þessum aðilum og spurðist fyrir hjá þeim, hvað þeir vildu gera í þessu máli, hvort þeir vildu veita þessu máli stuðning á einn eða annan veg. Flestir hafa svarað, og aðeins tvö svörin hafa verið jákvæð. Hinir allir lýstu yfir annaðhvort, að þeir hefðu ekki fjármagn til þess að veita þessu máli nokkurn stuðning, eða þá, að þeir teldu það svo óskylt sínum atvinnurekstri, að þeir sæju sér ekki fært að leggja því lið. Þessir tveir aðilar, sem jákvæð svör komu frá, eru Mjólkursamsalan og bæjarráð Reykjavíkur. Bæjarráð telur, að mikil nauðsyn sé á, að úr þessu verði bætt, og gefur í skyn, að Reykjavíkurbær sé reiðubúinn til að styðja þessa framkvæmd með fjárframlögum. Mjólkursamsalan hefur einnig svarað jákvætt, og ég geri ráð fyrir, að stjórn Mjólkursamsölunnar hafi gert það vegna þess, hve mikil nauðsyn ber til að bæta úr þessum vandræðum, en ekki af því, að þá, sem samsölunni stjórna, langi til þess að leggja þetta fé fram. Enda lít ég svo á, að bezt væri fyrir fyrirtækið að vera laust við slíkt fjárframlag, ef aðrir fengjust til að leggja fram fé í þetta. Og allshn. taldi eðlilegast, að bæjarráð Reykjavíkur eða Reykjavíkurbær væri aðalaðili í þessu máli. Það er kunnugt, að Reykjavík á ekkert gistihús. Það er líka kunnugt, að það hefur þótt lélegur sveitabær á landinu, sem ekki gæti veitt gesti húsaskjól yfir eina nótt eða svo. Og það samrýmist ekki íslenzkri gestrisni. Mér sýnist því, að það samrýmist ekki íslenzkri gestrisni, að höfuðborgin sé svo illa á vegi stödd um gistihús, að þeir menn, sem koma til höfuðstaðarins í ýmiss konar erindum, m. a. í verzlunarerindum og þá skilja oft eftir verulega fjármuni hér í bænum, skuli ekki geta í raun og veru fengið gistingu í bænum. Því að það er nú svo, að menn utan af landi, sem dveljast hér um lengri eða skemmri tíma, verða annaðhvort að vera á götunni eða þrengja sér inn á kunningja sína eða vinafólk. Slíkt ástand er náttúrlega með öllu óþolandi. Og það virðist nú svo, að bæjarráð Reykjavíkur skilji, að það er ekki sæmandi fyrir bæinn, að þetta ástand ríki hér. Allshn, hefur þess vegna lagt til, að till. á þskj. 661 um gistihúsbyggingu í Reykjavík verði samþ. með þeirri breyt., að tillgr. orðist svo:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta fara fram athugun á því í samráði við Reykjavíkurbæ, á hvern hátt hagkvæmast væri að koma upp almenningsgistihúsi í Reykjavík.“
Það hefði kannske þótt eðlilegt, að við í n. hefðum sagt: í samráði við Reykjavíkurbæ og Mjólkursamsöluna, — af því að hún hefur líka gefið jákvætt svar. En við lítum svo á, að enda þótt Mjólkursamsalan hefði gefið jákvæði í sínu svari, þá hefði hún gert það vegna þess, að þeir, sem henni stjórna, skildu þau vandræði, sem hér eru í þessu efni, en ekki af því, að þeir hefðu löngun til þess að leggja fram fé í þessa byggingu, ef hægt væri að koma henni upp á annan hátt. Og ég tel, að Reykjavíkurbæ sé miklu skyldara að leggja fram fjármuni í þessa byggingu heldur en Mjólkursamsölunni eða þeim, sem þetta fyrirtæki eiga, og það sé þess vegna rétt að reyna fyrst, hvað hægt er að komast með því, að Reykjavíkurbær sé aðalaðilinn í þessu fyrirtæki. Það er nú svo, að við, sem komum í bæinn utan af landinu, erum gestir í Reykjavík. Og það samrýmist tæplega íslenzkri gestrisni, að höfuðborgin geti ekki hýst gesti, sem þangað koma.
Það getur vel verið, að það sé rétt og sanngjarnt, að ríkisvaldið á einhvern hátt veiti aðstoð til þess að koma þessu fyrirtæki upp. En mér finnst nú, samt sem áður, að þótt þannig mætti líta á, að það væri eðlilegt, að ríkisvaldið hjálpaði til á einhvern hátt við það, þá sé það alveg eðlileg krafa, að Reykjavíkurbær komi upp svona húsi. Og mér finnst vera mikil von til þess, að það muni verða, þar sem bæjarráð Reykjavíkur virðist eftir svari sínu til allshn. hafa fullan skilning á því, að mikil þörf sé á svona gistihúsi. Og í því svari, sem n. barst, gefur bæjarráð fullkomlega í skyn, að það sé reiðubúið að leggja fram fé í þessu skyni. Ég tel, að það sé þá eðlilegast að sjá, hvað hægt er að komast með því, að Reykjavíkurbær byggi gistihús, og það sé þá alveg rökrétt ályktun að fela ríkisstj. að láta fara fram athugun á þessu efni, eins og till. er orðuð á þskj. 1112. Allshn. er óskipt um þetta orðalag, og vænti ég, að hæstv. Alþ. og hv. flm. till. geti fallizt á þessa breyt. n., þar sem það hefur nú sýnt sig, að þessir aðilar, sem hann bendir á í grg. fyrir þáltill., tjá sig, flestir þeirra, annaðhvort ekki þess megnuga að leggja fram fé í þetta fyrirtæki eða þeir álíta það svo óskylt sínum atvinnurekstri, að þeir af þeim ástæðum vilja ekki gera það. Hv. form. mjólkursölun. hlustar á það, sem ég hér segi. Má vel vera, að honum finnist einkennilegt, að allshn. skyldi ekki orða brtt. sína þannig að nefna þar Mjólkursamsöluna ásamt Reykjavíkurbæ, þar sem Mjólkursamsalan taldi sig fúsa til að vera með í því á einhvern hátt að styrkja þetta. En ég vænti, að form. þeirrar n., hv. þm. V.-Sk., taki það ekki á þann veg, að við viljum hundsa Mjólkursamsöluna í þessu efni. En ég fyrir mitt leyti skil svar mjólkursölun. svo, að sú n. vildi gjarnan vera laus við að leggja fjármuni í gistihúsbyggingu hér í Reykjavík, ef hægt væri að koma henni upp á annan hátt.