26.02.1945
Sameinað þing: 97. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 848 í D-deild Alþingistíðinda. (6095)
223. mál, gistihúsbygging í Reykjavík
Frsm. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. — Ég skal vera stuttorður. Ég vil láta undrun mína í ljós yfir því, hve mikið far hv. þm. V-Sk. gerir sér um að telja þinginu trú um, að ég hafi farið með rangt mál og rangar ritskýringar, og hvað hann leggur mikla áherzlu á, að n. birti þau svör, sem hún hefur fengið við fyrirspurnum sínum. Ég skal þá leyfa mér að lesa upp það eina jákvæða svar, sem n. hefur fengið, frá bæjarráði Reykjavíkur, svo að hv. þm., sem vill ekki trúa mér einu einasta orði, heyri, hvað þar stendur, en ég geri ekki ráð fyrir, að þurfi að lesa það upp fyrir aðra. Þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Á fundi sínum í gær gerði bæjarráð svofellda ályktun:
„Lagt fram bréf frá allsherjarnefnd Alþingis, dags. 2. þ. m., með beiðni um umsögn um tillögu til þingsályktunar um gistihúsbyggingu í Reykjavík.
Bæjarráð telur nauðsyn á, að hér í bænum verði reist gistihús, og tjáir sig reiðubúið til samvinnu og fyrirgreiðslu um það mál.“
Þetta svar er ótvírætt. Bæjarráð telur nauðsyn á að byggja gistihús og tjáir sig reiðubúið að greiða fyrir málinu. Í öllum hinum svörunum felst neitun. Þau liggja frammi á skrifstofu, og hv. þm. V-Sk. hefur hingað til ekki verið svo sporlatur, að hann ætti að vera fús til að líta á skjölin á skrifstofunni, jafnvel þótt nú sé komið fram á nótt. En sleppum þessu, því að þetta er fremur gaman en alvara hjá honum, tíminn er naumur, þar sem klukkan er orðin eitt.
Hv. þm. vill færa að því rök, að ég hafi ekki túlkað svar samsölunnar rétt. Ég held, að í annarri ræðu minni hafi ég fært rök að því, að það var rökrétt að ætla, að samsalan vildi styðja málið með fjárframlagi, um leið og hún lýsti sig samþ. till. En hvernig hann neitar nú, að stjórn samsölunnar hafi tjáð sig samþ. till., það skil ég ekki.
Ég tel ekki ástæðu til að hafa um þetta fleiri orð. Ég þykist með því að hafa lesið svar bæjarráðs Reykjavíkur og með því að upplýsa, að hin svörin liggja frammi á skrifstofu til lestrar fyrir hv. þm. V-Sk. hafa gefið þær upplýsingar, sem honum eru nauðsynlegar í þessu efni, og ég ætla þá, að enginn muni gera kröfu til, að n. birti þessi svör með nál.