01.02.1944
Sameinað þing: 11. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 862 í D-deild Alþingistíðinda. (6112)
10. mál, birting skjala varðandi samband Íslands og Danmerkur
Hermann Jónasson:
Herra forseti. — Það hefur hvað eftir annað af hv. flm. þessarar þáltill. verið vísað til þess, að við í utanrmn., sem áttum þar sæti og eigum þar sæti enn, höfum virzt vera því sammála, að þessi skjöl, sem um ræðir í þáltill, verði birt. Það er rétt, að þessi mál hafa verið talsvert mikið rædd í utanrmn., hvort ætti að birta þessi skjöl, og er það ekkert launungarmál. Það hefur einnig verið rætt mjög um það í blöðum, hvort birta ætti þessi skjöl. En hitt er ekki rétt hermt, að menn hafi verið á einu máli í utanrmn. um það, að rétt væri að birta þessi skjöl. Og tilefnið til þess, að umr. hófust um þetta mál í n., var fyrst og fremst það, að í tveimur dagblöðunum hér í bænum hefur verið birt sumt af þessum skjölum, án þess að leyfi ríkisstj. um það lægi fyrir eða utanrmn. Ef ég man rétt, þá var birtur útdráttur úr álitsskjali Jóns Krabbe, sem var svar við bréfum, sem honum voru send 1942. Og jafnframt hefur verið birt eitthvað af yfirlýsingum Bandaríkjanna viðvíkjandi afstöðu þeirra um sjálfstæðismál okkar, að ég hygg úr skeytasendingum frá 1942. Birting þessara skjala gaf tilefni til þess að ræða þessi mál í utanrmn. Og eins og hv. þm. vita, þá voru einmitt um sama leyti ákaflega harðvítugar deilur um sjálfstæðismálið í heild, og einmitt það, að þær deilur, sem þá stóðu, voru mjög harðar, sjálfsagt miklu harðari en þær eru nú um þetta mál, var tilefnið til þess, að þessi skjöl voru birt. Og þegar rætt var um þetta í utanrmn., þá var það, eins og gengur, þegar tveir aðilar, sem deila, hafa birt skjöl, sem vafi getur leikið á, að þeir hafi heimild til að birta, — að hvor deiluaðilinn fyrir sig telur, að það sé gefið mál og eðlilegt vegna vígstöðunnar, að öll skjölin séu birt, ef till. kemur fram um það frá öðrum aðilanum.
Ég lét þessar deilur fara fyrir ofan garð og neðan, tók undir það á vissu stigi, að þessi skjöl væru birt, — það er bezt að segja það eins og það er, — en sagði, þegar til atkvgr. kom í n., að ekki kæmi til mála, að öll þessi skjöl væru birt, enda veit ég ekki til, að nein þjóð hafi birt öll skjöl um meðferð utanríkismála sinna. Og sá hiti, sem um þetta mál kom fram í utanrmn. og ég er ekki að lá neinum, hann kemur alls ekki fram í flutningi þessarar þáltill. á þessu stigi, og það gleður mig mjög; því að eins og hv. 1. flm. tók fram, þá er hann því samþykkur, að skjölin verði aðgreind þannig, að ekki verði birt þau skjöl, sem gæti verið viðkvæmt mál einhvers aðila, hvort birt yrðu, þó að ekkert sé málefnalega við þau að athuga og ef ekki hefur verulega þýðingu að birta þau. — Ég hef verið andvígur því, að þessi skjöl væru birt. En áður en þessi þáltill. fer til n., vil ég taka fram, að ég tel, að viss skjöl, sem upplýsa mál, en særir engan, þó að þau séu birt, geti vel komið til mála að birta.
En ég hefði ekki farið að minnast á þessar umr. í utanrmn., ef ekki hefði gefizt sérstakt tilefni til þess frá hv. flm. þessa máls. En þær geta ekki heldur talizt nein launung þessar umr. í utanrmn., eins og ég tók fram í upphafi, vegna þess að þær voru nákvæmlega á sama stigi og umr. um þessi mál voru þá í blöðum um svipað leyti. En það skal tekið fram, að ég get mjög vel, þótt ég hafi haft með þessi mál að gera, talað um þau alveg hlutdrægnislaust frá því sjónarmiði, að það skiptir mig engu máli, hvaða skjöl eru birt, því að leyfi er til fyrir því að birta skjal, ef á þarf að halda. Ég hygg, að enginn, og enginn ráðh., mundi vilja ganga þannig frá málinu að birta viðtöl, sem erlendir sendiherrar eiga við menn, án þess að hafa leyfi hlutaðeigandi manna til þess. En eins og frsm. gat um í sambandi við þetta mál, finnst mér eðlilegt, að það geti komið til athugunar fyrir nefnd að birta skjöl, sem engin deila getur verið um, að megi birta, og í annan stað gætu þau sömu skjöl verið upplýsandi fyrir málið. Ég álít það alveg rétt, að skeytaskipti við Danmörku 1941, þau geti verið upplýsandi fyrir málið, t. d. það símskeyti, sem ríkisstj. sendi með þeim till., sem Alþ. hafði gengið frá, og svar, sem við fengum við þeim skeytasendingum, að ríkisstj. svaraði því í engu. Það er rétt frá sjónarmiði sumra manna í þessu landi, að þetta er mjög upplýsandi fyrir málið og verulega rætt. Það hefur heyrzt, að menn hafi rætt um þetta á einum fundi, og sýnir það, að þeir telja það skipta máli.
Það er ekkert á móti því að birta álit Englendinga á sjálfstæðismálinu 1941. Það liggur fyrir í samtali við ráðh., sérstaklega í samtali við þáv. forsrh. Það er tekið upp af skrifstofustj. í utanrrn. og leyfilegt, að það verði birt. Það er ekkert á móti því að birta það og á margan hátt upplýsandi. Ég tek það ekki upp hér, en það er mjög upplýsandi fyrir málið. — Það verður ekki heldur séð, að neitt sé því til fyrirstöðu að birta skeyti Bandaríkjanna 1942, svar þeirrar nefndar, sem svaraði ríkisstj., sem var svar nefndar allra flokka, sem þá stóðu að skeytasendingum, og þá viðurkenningu Bandaríkjanna, að þeim þætti það vel farið, að Ísland stofnaði lýðveldi 1943.
En svo fer að verða mjög vafasamt, hvað hægt er að ganga lengra, þegar kemur út í bréfaskipti við sendiherra okkar, þar sem þeim eru gefnar fyrirskipanir um það, hvernig þeir eigi að haga orðum sínum við erlenda stjórn; t. d. þegar erlendur sendiherra ræðir við íslenzkan sendiherra, hverju íslenzki sendiherrann hafi þá svarað. Þá erum við komnir út fyrir þau takmörk, sem leyfileg eru ríki, sem vonast eftir sjálfstæði sínu. Það er ekki hægt fyrir neinn ráðh., sem á tal við erlendan sendiherra, þar sem orð falla frjálst, að birta þau viðtöl fyrir öllum heimi án þess að fá leyfi þess ríkis, sem hlut á að máli, til að birta samtölin. Þannig getum við ekki byrjað sjálfstæði okkar. Við getum ekki, án þess að það skaði okkur, gefið okkur fyrirskipun um það, hvað eigi að segja við þessa ríkisstjórn eða konung. Þá erum við komnir út fyrir þessi takmörk.
Það gladdi mig mikið, að hv. frsm. þessa máls taldi upp atriði, sem hægt er að birta og eru upplýsandi fyrir málið, en gekk fram hjá þeim atriðum, sem við ættum öll að geta orðið sammála um að láta liggja í þagnargildi, a. m. k. þangað til við höfum fengið leyfi til að birta þessi skjöl. Ég held því, að það megi koma sér saman um það að láta n. skera úr því, hvaða skjöl séu svo upplýsandi fyrir sjálfstæðismálið, að þau séu heppileg til birtingar, ef þau eru þess eðlis, að við getum birt þau eftir almennum siðalögmálum í utanríkismálum, og tek ég undir það með hv. flm. þessa máls, að vert sé að birta þau atriði, sem ég hef talið upp, og að þau séu upplýsandi fyrir þetta mál. Ég vil því óska eftir því, að sú n., sem tekur málið til athugunar, vilji fyrst og fremst athuga, hvort ekki muni vera hægt að ná sameiningu um það, hvaða skjöl sé eðlilegt að birta í sjálfstæðismálinu, því að þó að ekki séu birt öll skjöl í sjálfstæðismálinu, er það engan veginn gert til þess að leyna neinu mikilvirki, sem þar hefði verið unnið. T. d. tel ég ekki, að ég hafi unnið neitt mikilvirki í sjálfstæðismálinu með þeim samtölum, sem ég hef átt við hlutaðeigandi sendiherra um það mál, en mundi þó standa móti því, að samtölin við sendiherrana væru birt, ef ég hefði ekki skriflegan samning af þeirra hálfu fyrir því, að mér væri það heimilt.
Sama er að segja um þá fulltrúa okkar erlendis, sem hafa rekið vel þau erindi, sem við höfum lagt fyrir þá. Þeir mundu telja sig illa leikna, af samtöl þeirra væru birt, hvernig þeir taka til orða. Til þess verður að fá leyfi hlutaðeiganda — og alveg jafnt fyrir það, þó að þessir fulltrúar erlendis hafi unnið verk sitt vel og eftir öllum fyrirmælum fengnum héðan að heiman. Ég held því, að það sé hægt að ná samkomulagi um þetta atriði, og vona ég, að bæði umr. og ákvarðanir fari vel úr hendi. Við verðum að gera okkur ljóst, að nauðsynlegt er fyrir þetta mál, að samkomulag náist um lausn þess.
Ég styð till. frsm., að málinu verði vísað til nefndar.