01.02.1944
Sameinað þing: 11. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 865 í D-deild Alþingistíðinda. (6114)

10. mál, birting skjala varðandi samband Íslands og Danmerkur

Ólafur Thors:

Í sambandi við framsöguræðuna um till. þykir mér rétt að segja örfá orð.

Ég get ekki neitað því, að ræðan vakti nokkra undrun hjá mér, því að mér finnst ekki mikilvægi málefnisins gefa tilefni til hátíðlegra umræðna. Það er staðreynd, að allir þingflokkar hafa fengið öll þessi skjöl í sína vörzlu. Eins og hæstv. forsrh. gat um, þá afhenti ríkisstj. þessi skjöl í fjórum eintökum handa þingflokkunum, eitt handa hverjum flokki. Hygg ég því, að það sé sannmæli, að allir þeir, sem haft hafa áhuga á málinu, hafi getað kynnt sér hvert orð þess. Hv. þm. geta því kynnt sér hvert einasta atriði skjalanna, ef þeir vilja hafa fyrir því. Og varðandi þjóðina þá vil ég bara segja það, að þær umr., sem fram hafa farið í ræðu og riti um málið, hafa upplýst hana um allt, sem máli skiptir, og allt, sem til mála getur komið að birta í þessum efnum. Ég tel því, að í skjölum sé ekkert, sem geti gefið neinar sannanir í þessu mikla máli. En ég viðurkenni, að ef öll þessi skjöl yrðu birt, þá gæti verið, að í þeim væru atriði, sem væru viðkvæm út á við.

Nú hefur hv. flm. varpað fram þeirri hugmynd að birta einhver af þessum skjölum, og undir það hafa tekið hæstv. forsrh. og hv. þm. Str. En er til þess kemur að athuga, hvað eigi að birta og hvað ekki, veit ég ekki nema það geti orðið ágreiningsefni eins og margt annað, og ég held, að ég fari ekki með neitt launungarmál, þó að ég segi, að einnig þetta bar á góma í utanrmn., án þess að menn gætu orðið á sama máli, hvað sjálfsagt væri að birta og hvað ekki.

Hv. þm. Str. tók eitt dæmi um það, hvað heppilegt væri að birta, og gat um viðtal, sem fram fór við þáv. forsrh., hann sjálfan, af hálfu brezks sendiherra 1941. Hann hafði þá, eins og rétt var af honum, látið skrifstofustjóra í utanrrn. skrá þetta samtal og löggilda það sem birtingarhæft. Ég er hins vegar ekki viss um, að sú ísl. skoðun, sem kom fram gagnvart birtingu á þessu augnabliki, komi öll fram í þessari samræðu. Sendiherrann birti viðtal, fyrst við tvo ráðherrana, en seinna við þann þriðja, sem var áður veikur, og ég get trúað því, að þetta skipti einhverju máli hjá Englendingum og að það kæmi þá í ljós, hvað fram fór, bæði milli þeirra ráðherra og einnig hins þriðja. Hins vegar er það samtal ekki skráð á sama hátt og borið undir sendiherrann, sem núv. forsrh. lét skrá og birta, þó að það liggi fyrir í aðalatriðum í þeim blöðum, sem hér er um að ræða.

Ég tek þetta dæmi, því að fyrrv. forsrh. taldi það sem merki um, hvað heppilegt gæti verið að birta. Ég tek það sem vott um, að það sé ekki alveg víst. Ég held því fram, að þótt öll skjölin væru birt, fengi þjóðin engar raunverulegar upplýsingar, sem gætu varpað ljósi yfir málið, en fengi þar á móti á sig skrælingjabrag, og ég staðfesti það með orðum hv. þm. Str., að engri þjóð gæti dottið í hug að birta skjöl undir þessum kringumstæðum.