17.10.1944
Sameinað þing: 56. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 878 í D-deild Alþingistíðinda. (6147)

167. mál, verðlagsvísitalan

Einar Olgeirsson:

Mér virðist umr. vera farnar að snúast um það, hvernig á því muni standa, að ýmsar þær vörur, sem lagðar eru til grundvallar í útreikningi vísitölunnar, skuli ekki fást, og hér hafa komið fram þær furðulegu skoðanir, að ef menn fái ekki keypt smjör, þá eigi að klípa af laununum. Það eigi að svipta menn launahækkun, sem gerði þeim fært að kaupa aðrar vörur, er bættu þeim upp skortinn á þeim vörum, sem ófáanlegar eru. Það er furðulegt, að þetta skuli koma fram hjá þeim mönnum, sem ráða því, hve mikið kjöt er á markaðinum hvert sinn og hve dýrt það er selt. Þeirra röksemd er það, að ekki sé þörf að fá vísitöluna upp fyrir þær vörur, sem ekki er hægt að fá keyptar. En ætli það væri ekki nær að athuga, hvernig stendur á því, að landbúnaðurinn íslenzki er á því stigi, að ekki er hægt að fá keypt smjör? Það eru settar heilar n. til að ákveða verðlagsvísitöluna. En ég held, að full þörf væri að skipa n. til að athuga, hvernig stendur á því, að lögð eru 300% á ameríska smjörið, þegar það kemur hingað, og hvaða aðilar ráða þessu verðlagi. Það er furðulegt, að menn skuli koma með þá röksemd, að fyrst fólk getur ekki fengið smjör, þá eigi að refsa því með því að lækka laun þess, og það einkennilega er, að þetta kemur frá þeim mönnum, sem vinna að því að sprengja upp kjötverðið í landinu og segja sem svo: Það nær engri átt að láta menn kaupa þessa lúxusfæðu, það sé bezt að lækka hjá þeim kaupið. Út af því, sem hv. þm. A-Húnv. sagði, vil ég geta þess, að ég held einmitt, að róttækra ráðstafana muni þurfa með til að lagfæra þetta. Hér er ekki aðeins að ræða um skort á smjöri, nýju kjöti og kartöflum á sumrin, heldur einnig á mjólk, rjóma og skyri. Ég býst við, að full þörf sé á, að þessi till. fari til n. og fái góða athugun og henni verði breytt í þeirri n. Ég vil fyrir mitt leyti mæla með því, að hún fari til n.