19.10.1944
Sameinað þing: 58. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 893 í D-deild Alþingistíðinda. (6157)
167. mál, verðlagsvísitalan
Sveinbjörn Högnason:
Herra forseti. — Ég skal ekki vera langorður. Ég álít ekki rétt, úr því verið er að svara þeim fjarstæðum, sem hv. 2. þm. Reykv. og hans flokksbræður hafa komið með, að láta ýmis ummæli algerlega óathuguð, þó ég telji víst, að það séu gagnvart landbúnaðinum ómagaorð. Hv. 2. þm. Reykv. sagði, að neytendur ættu heimtingu á að fá landbúnaðarvörur, þar sem þeir borguðu þær alveg eins og þeir borguðu þær landbúnaðarvörur, sem ekki séu til. En ég veit ekki til, að neytendur borgi aðrar vörur en þær, sem þeir fá, og ég veit ekki til, að þeir borgi einu sinni það, sem þeir fá, heldur láta þeir ríkið borga þær fyrir sig. Þessir styrkir eru ekki til neins hagræðis fyrir bændur, þvert á móti, þetta verður aðeins til þess fyrir þá, að þeir fá vörurnar ekki greiddar að fullu fyrr en löngu eftir á. En vegna þess að Alþ. hefur gert sér það ljóst, að það er þjóðarnauðsyn að reyna að vinna gegn dýrtíðinni, þá hefur verið farið inn á þessa braut. En það getur þessi hv. þm. ekki skilið. Fulltrúar bænda hafa ekki einblínt á sinn hag, eins og ljóslega hefur komið fram nýlega, þar sem þeir hafa boðið fram það, sem þeim bar samkv. l., og það á sama tíma og þessi hv. þm. telur það lífsskilyrði fyrir verkamenn að heimta meira og meira, þó að þjóðfélagið þoli það ekki, og það þýði ekkert annað en atvinnuleysi, tjón, skaða og skömm fyrir alla, sem að því standa. Það er þess vegna alveg víst, að neytendur hafa alls ekki borgað allar þær vörur, sem þeir hafa fengið, hvað þá meira, þar sem það opinbera borgar verulegar upphæðir til þess að halda verðinu niðri fyrir neytendur. En heimti neytendur að fá nægar landbúnaðarvörur, verða þessir sömu menn að viðurkenna, að bændur eiga heimtingu á að fá nógan vinnukraft. Hins vegar ætla ég, í sambandi við þær umr., sem hér hafa farið fram, að lýsa því sem minni skoðun sem fulltrúa bænda hér á þingi, að ef sú þröngsýni á að koma fram gegn fórnarvilja bænda, að fulltrúar verkamanna heimta meira og meira fyrir sig, hlýtur sú krafa að koma fram, að ekki sé lengur verið að lögbinda verðlag landbúnaðarvara, og að bændur fái sama rétt um það að mega hafa óbundnar hendur um verð á framleiðslu sinni og aðrar stéttir, þangað til allir eru komnir í sama fenið. Því að verkamenn heimta ekki einungis að fá að hafa óbundnar hendur um kaupið, heldur standa þeir í stöðugum verkföllum til að fá hærra verð fyrir sína vinnu. (BrB: Ég er sammála hv. þm.). Það er náttúrlega gott að eiga von á þeim stuðningi, það hefur venjulega ekki verið stuðnings að vænta frá þessum hv. þm. í þessum efnum. En það virðist vera, að hv. þm. óski eftir því, að hrunið komi sem fyrst, ef hann ætlar að styðja ríkisstj. til þess að dýrtíðin geti aukizt enn hraðar næstu mánuði en nokkru sinni fyrr. Enda vita það allir, sem þekkja hann, að hann vill það.
Þá sagði hv. 2. þm. Reykv., að landbúnaðarvörurnar hefðu verið keyptar eingöngu fyrir það, að hægt hefði verið að nota til þess nokkurn hluta af gjaldeyri, sem setuliðsvinnan hefði skapað, og þess vegna hefði verið hægt að veita þessa ölmusu til bænda. Hvers konar málfærsla er þetta? Hvar væri þessi gjaldeyrir og hvar væri líf þessara manna, ef þeir hefðu ekki fengið matvæli? Það, að hægt hefur verið að skapa erlendan gjaldeyri, er vitanlega fyrir það eitt, að bændur hafa getað, með miklu erfiði vitanlega og þrátt fyrir það að þá vantaði vinnuafl, framleitt matvæli handa þeim, sem stunduðu setuliðsvinnuna. Þetta er svo augljóst mál og rétt, að ég sé, að hv. 5. þm. Reykv. getur ekki á það hlustað og gengur burt.
Þá var hv. 2. þm. Reykv. að tala um það, hvílíkt geysilegt miskunnarverk þeir hefðu unnið bændastéttinni í sex manna n., en þeir áttu einn mann í henni, sem kunnugt er. Ég heyri sagt, að nú eigi að fara að skapa nýja sex manna n. (ríkisstj.) og þar eigi að vera 2 kommúnistar, og það má nærri geta, hverjir það verða í þessari sex manna n., sem bjarga föðurlandinu. Þó að þessi eini kommúnisti í sex manna n. léti til leiðast að samþ., að bændur skyldu fá 14500 kr. árslaun, þá hafa þeir á allan hátt reynt að torvelda það, að bændur gætu fengið það, sem þeim var lofað. Þegar átti að koma til framkvæmdanna, hafa fulltrúar kommúnista stuðlað að því, að bændum væri ómögulegt að fá það, sem þeim bar, 14500 kr. árslaun, þar sem vörurnar hafa selzt miklu lægra verði á erlendum markaði en áætlað var. Þá talaði hv. 2. þm. Reykv. um það, að það væru miklir erfiðleikar í sveitunum, og nú ætti að fara að umskapa sveitirnar, og hann gaf um það fyrirheit á síðasta fundi á Alþ. Hann var nú að reyna að breiða yfir þau ummæli sín með því að segja, að erfiðleikarnir hefðu verið skapaðir af okkur fulltrúum bænda á undanförnum árum. Ég verð nú að segja það, að ég er alveg sammála honum um þetta, að þeir erfiðleikar, sem nú er við að stríða í sveitunum, eru að miklu leyti okkur að kenna eða þakka, sem höfum á undanförnum árum starfað fyrir bændur. Ef þetta starf hefði ekki verið lagt fram, væru engir erfiðleikar í sveitunum, því að þar væri þá allt komið í auðn. Hv. 2. þm. Reykv. veit það vel, að hefði ekki verið haldið uppi öruggri málsvörn fyrir sveitirnar og barizt fyrir mörgum framkvæmdum, með þeim árangri, sem orðið hefur, að þrátt fyrir það, þó að fólkinu hafi fækkað í sveitunum, hefur framleiðslan aukizt, og véltækni er víða notuð, þá væru íslenzkar sveitir nú komnar í auðn. Það er því rétt, sem hv. 2. þm. Reykv. var að tala um, að þessir erfiðleikar mundu ekki vera til, ef þessari löggjafarstarfsemi hefði ekki verið haldið uppi hér á hæstv. Alþ.