24.01.1945
Sameinað þing: 87. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 908 í D-deild Alþingistíðinda. (6220)

239. mál, atvinnuréttur íslenzkra manna, sem stundað hafa nám í Ameríku

Flm. (Jónas Jónsson):

Eins og tekið er fram í grg. þessarar þáltill., er hún komin fram af því, að það verða sýnilega nokkrir erfiðleikar á því fyrir suma af þeim mörgu námsmönnum, sem nám hafa stundað í Ameríku, að verða samflota við stéttarbræður sína hér heima. Má gera ráð fyrir, að takmörkunum í vissum greinum sé öðruvísi hagað vestan hafs en menn hafa vanizt hér. Og þetta er í raun og veru ekki alveg nýtt mál. Það hefur verið mjög erfitt t. d. fyrir handiðnamenn íslenzka, sem koma að vestan, að fá aðstöðu til þess að starfa að iðn sinni hér, af því að þar hafa verið aðrar reglur og önnur próf en menn hafa vanizt hér. Samt er hér aðeins um það að ræða að beina þeirri ósk til ríkisstj., að hún reyni með löggjöf eða öðruvísi að tryggja, að fólk, sem lærir vestan hafs, fái full starfsréttindi hér heima. Það er ástæða til þess að athuga það að reyna að láta mönnum íslenzkum, sem læra vestan hafs, standa opna möguleika til starfs hér heima. En það getur verið hætta á ferðum fyrir okkur, ef við missum skarpa og efnilega menntamenn, vegna þess að sótt væri eftir þeim vestan hafs eftir stríðið eða fyrr; og gæti svo farið, ef ekki væri lipurlega tekið á málum þeirra í þessum efnum. Og ég geri ráð fyrir, að það muni takast með meðmælum Alþ. hjá hæstv. ríkisstj. að taka svo á þeirra málum sem þörf er á.