24.01.1945
Sameinað þing: 87. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 910 í D-deild Alþingistíðinda. (6229)
247. mál, útgáfa Alþingistíðindanna
Flm. (Jónas Jónsson):
Herra forseti. — Eins og tekið er fram í grg. þessa máls, er þetta mál ekki nýtt hér, heldur hefur það verið til meðferðar áður fyrir nokkrum árum. Og þessi breyting, sem hér um ræðir, er ekki annað en eðlileg afleiðing af þeim framförum, sem hafa orðið á tækni á margan hátt. Það er okkur öllum ljóst, að Alþingistíðindin í núverandi mynd eru ekki sönn mynd af því, sem gert er á Alþ., þó að starfsmenn þingsins geri skyldu sína eftir því, sem hægt er að búast við eftir núverandi kringumstæðum. Það má segja, að það er úrelt aðferð, sem beitt er í þessu efni, jafnvel þó að hraðskrift sé á því. En með því eina móti að taka ræðurnar upp á hljóðnema nást þær eins og þær eru talaðar, þá er engin breyting. Ég hygg, hvort sem þetta mál verður samþ. eða ekki, þá verði því ekki neitað, að þróunin gengur í þessa átt. Ef menn vilja gefa út Alþingistíðindi og hafa heimildir, verður að vanda til þeirra á þennan hátt, en ekki annan.
Ég leyfi mér að vona, að málinu verði vísað til n. að þessum umr. loknum.