12.02.1945
Sameinað þing: 93. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 921 í D-deild Alþingistíðinda. (6260)

281. mál, bygging vegna hæstaréttar

Gísli Jónsson:

Það hefur tvívegis komið fram, annað skiptið frá dómsmrh., að fyrrv. dómsmrh. (EA) hafi ekki frekar en aðrir gert neitt til þess að fá húsnæði yfir Hæstarétt. Hann (EA) gerði þó alveg ákveðna till. í þá átt í skattatill. 1943, þar sem gert var ráð fyrir 5–25% aukaskattinum og skyldi ákveðið, að 10% af honum rynnu til þess að reisa hús yfir ráðuneytin og aðrar æðstu stofnanir ríkisins. Mér þykir rétt að láta þetta koma fram vegna ummæla, er varða háttstæðan embættismann, sem hér er ekki til andsvara.