01.03.1944
Efri deild: 19. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 925 í D-deild Alþingistíðinda. (6280)
49. mál, ríkisskuldir Íslands
Bjarni Benediktsson:
Það voru mér nokkur vonbrigði, að hv. þm. S-Þ. skyldi ekki geta fallizt á að vísa þessu máli til n., og eru það mér því meiri vonbrigði, þar sem ég veit ekki annað en hann hafi réttilega snúizt á móti þessu frv., vegna þess að það sé frekar borið fram af léttúð en alvöru, og frv. hefur ekki fengið þá þinglegu meðferð, sem það hefði átt að fá. Þess vegna sýnist mér, þar sem hann vill leggja fastan grundvöll undir þessa skattálagningu, rétt að leggja nú öruggan hornstein að því, að málið fái reglulega meðferð. (JJ: Hvenær gæti nál. komið?). Það gæti t. d. komið á næsta hausti, kannske líka í næstu viku. Ég hélt líka, að skoðanabræður hv. þm. væru hér í meiri hl.
Ef hv. þm. meinar það, að hér sé eingöngu um skoðanakönnun að ræða, þá má benda honum á, að það fer tvennum sögunum af þeirri skoðanakönnun, sem sagt er, að hafi átt sér stað í sambandi við núverandi ríkisstj. Einn fyrrv. ráðh. upplýsti nýlega, að þessi hv. þm. hefði stofnað til skoðanakönnunar til styrktar núverandi stj. á s. l. þingi í tímariti einu, en þessi hv. þm., sem stóð að þessu, bar fyrrv. ráðh. ekki vel söguna í því sambandi. Sú skoðanakönnun bendir í þá átt, að það beri að gjalda nokkuð varhuga við því, þegar þessi hv. þm. vill stofna til slíkra ráðstafana, enda er það svo í því máli, sem hér liggur fyrir, að hv. þm. vill fá álit sveitarfélaga út um landið um það, hvort ekki sé rétt að taka þetta fé til þess að greiða með ríkisskuldirnar. Ef þau mæltu með þessu, mundi það verða málinu mikill stuðningur. Nú horfir málið þannig við, að ef of mikið fé hefur verið skilið eftir í vösum borgaranna af gróða undanfarandi ára, þá er það ekki sízt vegna þess, að stærstu kaupstöðunum, eins og Reykjavík, hefur með sérstakri löggjöf verið bannað að neyta síns skattálagningarvalds til fulls, og þess vegna er ríkisvaldið þeirrar skoðunar, að þarna hafi ekki nóg verið tekið, og sýnist þó liggja í augum uppi, að þessi sömu sveitarfélög eigi rétt á þessu fé. Nú vill þessi hv. þm. fá öll hin sveitarfélögin til þess að mæla með því, ekki að þessi sveitarfélög fái féð, heldur að ríkið fái það. Sem sagt að féð sé tekið af þeim, sem ganga þó næst þeim réttu eigendum, og fengið í hendur öðrum aðila, sem þegar er búinn að lýsa því yfir, að hann sé búinn að fá nóg í sinn vasa. Það er alveg rétt hjá þessum hv. þm., að það mundi greiða fyrir framgangi þessa máls, ef sveitarfélögin almennt skoruðu á þingið að setja slíka löggjöf, en það álít ég ekki hlutlaust, vegna þess að það mundi verða til þess að takmarka skattálagningarmöguleika fyrir tiltölulega fá sveitarfélög, til hags fyrir landið allt og þar með hin smærri sveitarfélög, sem vitanlega eru fleiri en þau stóru, sem ætti að fara að beita ranglæti í þessum efnum. Ég veit, að þegar hv, þm. athugar þetta, þá muni hann sjá ekki síður annmarka á þessari skoðanakönnun og niðurstöðu hennar heldur en ráðh., sem hann studdi í fyrra, sá á þeirri skoðanakönnun, sem þessi hv. þm. kom af stað þessum ráðh. til styrktar. Það hlýtur þess vegna að styðja þá kröfu, að málið fái þinglega meðferð og athugun í nefnd.
Hv. þm. sagði, að það væri sérstök ástæða til þess að greiða ríkisskuldirnar með þessu fé, engu minni ástæða heldur en að greiða skuldir bæjar- og sveitarfélaga. Nú er það svo, að ríkisskuldirnar, miðað við núverandi tekjur ríkisins, eru orðnar næsta litlar og hafa fjárhagslega litla þýðingu fyrir ríkið eins og sakir standa. Aftur á móti hafa sum sveitarfélög, eins og t. d. Reykjavík og Siglufjörður, staðið í miklum framkvæmdum á þessu stríðstímabili, framkvæmdum, sem allir hafa verið sammála um, að yrði að hrinda áfram, úr því sem komið var. Ég á við hitaveitu Reykjavíkur. En þetta hefur orðið til þess, að safnazt hafa verulegar skuldir á þetta fyrirtæki, þó að fjárhagur bæjarins sé góður. Þess vegna sýnist eðlilegt, að þetta fé yrði notað til þess að borga niður þennan kostnað, ef það yrði tekið með þeim hætti, sem hér er ráðgert, því að þessar skuldir hafa hækkað vegna stríðsins. Ef á annað borð á að taka þetta fé, sýnist liggja í hlutarins eðli, að það sé eðlilegt að nota það til þess að borga þær skuldir, sem hafa orðið hærri vegna verðmunar, en ekki að fara að borga skuldir, sem nú eru tiltölulega þýðingarlausar varðandi afkomu landsins í heild. Mér sýnast því öll rök hníga að því, að þessi skoðanakönnun, sem, hér er ráðgerð, muni verða hlutdræg og villandi og beinlínis sé til þess efnt að veifa framan í sveitarfélögin úti á landi óréttmætum gróða þeim og ríkissjóði til handa á kostnað bæjar- og sveitarfélaga. Ég veit, að hv. þm. muni sannfærast um það, þegar hann athugar málið, að það sé rétt, að það gangi til nefndar.
Varðandi ummæli hv. 3. landsk., þar sem hann ráðgerir að bæta við nokkrum árum til skattálagningar í þessu skyni, þá væri gaman að spyrja: Hvernig hefði hann farið að, ef þessi hugmynd hefði verið samþ., þegar málið var fyrst fram borið? Mig minnir, að þá teldi Alþýðublaðið, að þetta væri skattur, sem einu sinni ætti að leggja á, þetta væri skattur í eitt skipti fyrir öll. Þá var miðað við það, sem hafði safnazt á árunum 1941 og 1942. Mér skilst, að frá sjónarmiði þessa hv. þm. hefði það verið mesta ógæfa, ef málið hefði verið samþ. strax og hann bar fram þessa ágætu hugmynd. Nú telur hann sjálfsagt að bæta þrem árum við þetta. En ef honum sýnist það nú ráðlegt að bæta við þrem árum, gagnstætt því, sem hann fyrst ætlaði sér, mundi þá ekki rökrétt framhald af þeirri hugsun hans vera það að bíða enn dálítinn tíma og sjá, hvað mikið yrði eftir af þessum stríðsgróða, þegar verðbólgan væri horfin? Þá fyrst er tími til kominn að gera upp þetta dæmi, hverjir hefðu hagnazt á stríðinu, hverjir hefðu komið ríkir út úr því. Mér sýnist, að hér væri þá tekin upp sú hugmynd, sem sjálfstæðismenn hafa getað fellt sig við, að slíkur skattur yrði tekinn í eitt skipti fyrir öll til þess að lækna verðbólguna, sem þáttur í víðtækum ráðstöfunum, sem gerðar væru. Því ekki að taka ? af öllu því, sem menn hafa eignazt umfram það skattskylda lágmark? Mér finnst engin ástæða til að taka tillit til eigin sjónarmiða í þessum efnum, það er auðvitað sjálfsagt að miða við það, sem er fram yfir 10 þús. kr., ef á annað borð á að leggja á þennan skatt. Þetta finnst mér að þyrfti að taka til athugunar, ef málið færi til n.