01.03.1944
Efri deild: 19. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 927 í D-deild Alþingistíðinda. (6281)
49. mál, ríkisskuldir Íslands
Gísli Jónsson:
Vegna þess að þetta mál er hér á dagskrá aftur í þessari hv. d., vildi ég leyfa mér að gera þá fyrirspurn, fyrst og fremst til flm. og því næst til hv. 3. landsk. þm. og þeirra annarra, sem bera málið fyrir brjósti, hvort þeir hafi gert sér það ljóst, hvernig hæstiréttur mundi líta á þetta frv., ef að l. yrði. Á þinginu 1941 var skattal. breytt þannig, að skattfrelsi var afnumið hjá iðnaðarfyrirtækjum á Íslandi. Einn aðilinn vildi ekki hlíta lagabreytingunni og fór í mál út af skattinum, sem lagður var á eftir l. frá 1941. Gekk dómur hæstaréttar á móti þinginu, svo l. frá 1941 voru ekki talin ná til þeirra fyrirtækja, sem áður hefðu fengið þessi fríðindi með eldri l. Hæstiréttur leit svo á, að hér hefði Alþ. gengið of langt, þar eð þessi l. brytu í bága við ákvæði stjskr. Ég held, að þessi dómur sé lærdómsríkur fyrir þá, sem ætla að fara þessa leið í skattamálum. Hins vegar er aðra leið að fara, sem er auðveldari, og hún er sú að taka allar tekjur af mönnum eitthvert ákveðið tímabil og lofa þeim að lifa á því, sem þeir hafa grætt áður, þ. e. á þeim eignum, sem þeir hafa sparað saman. Það er a. m. k. ekki stjskr.brot að reyna þá aðferð, og sú leið er miklu hreinni að fara til þess að ná þessu fé inn, sem þessir hv. þm. þola ómögulega að til sé sem þjóðarauður á meðal landsmanna. Ég er ekki alveg viss um, að það yrði öruggt, að ríkið fengi þennan skatt, þó að farin yrði sú leið, sem hv. þm. S-Þ. vill fara, miðað við þær staðreyndir, sem fengizt hafa með dómi frá hæstarétti í máli því, er ég minntist á hér áðan.
Ég þarf ekki að ræða um það atriði, af hverju þetta er borið fram, hv. 6. þm. Reykv. hefur skýrt það, en mér finnst það dálítið einkennileg leið af Alþ. að ætla að íþyngja þeim, sem hafa ekki svikið skatt, til þess að ná til hinna, sem svíkjast undan skatti. Ég vil svo benda á það, að þegar mál eins og þetta er flutt með öðrum eins rökvillum og fram komu hjá hv. 3. landsk., — að þetta yrði til þess að ríkið gæti stutt atvinnuvegina í framtíðinni, — þá er náttúrlega ekki hægt að taka þessi mál alvarlega. Röksemdir hv. 3. landsk. eru sambærilegar við það, að maður, sem ætti mótorbát, færi að selja hann rétt fyrir vertíðina, af því að hann skuldaði eitthvað í honum. Eða maður, sem ætti 100 kindur í fjárhúsi, færi að slátra þeim rétt áður en þær bæru, til þess að borga einhverja skuld. Ég held, að það mundi bezt styrkja atvinnuvegina í framtíðinni og ríkissjóð, að til séu í landinu einhverjir menn, sem eiga fé og vilja halda því í atvinnufyrirtækjunum, bæði þegar vel gengur fyrir þeim og er illa lætur í ári. Það er mín skoðun, að ríkið eigi að hjálpa mönnum til þess að halda uppi atvinnulífi í landinu; þess vegna er ég á móti því, að það sé gengið á það lagið að skera niður bústofninn, svo að hann geti ekki haldið áfram að gefa þjóðarbúinu arð, eða þrengja svo að öðrum framleiðendum með ranglátum og alls óþörfum sköttum, að þeir dragi saman atvinnurekstur sinn eða jafnvel hætti honum alveg.