29.09.1944
Neðri deild: 58. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 937 í D-deild Alþingistíðinda. (6300)

108. mál, Hellisheiði og Svínahraun

Fyrirspyrjandi (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. — Það var á haustþinginu í fyrra, að 15 þm. báru fram svofellda þáltill.:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta rannsaka, hvað kosta muni að gera steinsteyptan veg yfir Hellisheiði og Svínahraun.

Jafnframt fari fram athugun á kostnaði við nauðsynlegar breytingar á legu vegarins og gerð á þessari leið með tilliti til flutninga að vetrarlagi.“

Þar sem ég hef ekki heyrt neitt um það, hvað gert hefur verið í þessu máli, er þessi fyrirspurn borin upp fyrir hæstv. atvmrh. Það er óþarft að fjölyrða um þál. Hún er skýr og samkv. henni er ríkisstj. falið að láta athugun fara fram. Ég veit, að hæstv. atvmrh. skýrir nú frá því, hvað gert hefur verið í þessu máli, og þeim árangri og niðurstöðum, sem fengnar eru. Væntum við austanmenn, sem lítum á samgöngumálin sem okkar aðalmál, þar sem þau eru enn óleyst og ótrygg og samgöngur stöðvast oft langan tíma hvern vetur, að úr þessum málum verði bætt. Við væntum þess líka, að samhliða nýrri vegargerð verði gert kleift að byggja nýjar brýr yfir Ölfusá og Þjórsá og útvega stærri flutningatæki, svo að flutningar geti orðið ódýrari. Það væri mikill munur, ef nota mætti á þessari löngu leið 5–10 tonna flutningabíla. Þá mundi kostnaðurinn lækka til muna frá því, sem nú er, þar sem ekki má nú hafa meira en 2–3 tonn á bílnum. Mér þykir ekki ástæða til að fjölyrða um þetta mál, en vil heyra það, sem hæstv. atvmrh. hefur fram að færa.