29.09.1944
Neðri deild: 58. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 939 í D-deild Alþingistíðinda. (6306)

109. mál, samgöngubætur frá Reykjavík austur í Ölfus

Fyrirspyrjandi (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. — Ég vil þakka hæstv. atvmrh. fyrir þær upplýsingar, sem hann hefur gefið í þessu máli, og eins og menn hafa nú heyrt, hefur n. unnið nokkuð að athugunum, sem að þessu lúta. En eftir því, sem ég bezt heyrði, er tæplega von á, að þessum rannsóknum eða störfum ljúki að svo stöddu, af því að vegamálaskrifstofuna vantar verkfræðilega aðstoð. Ég vil því eindregið óska þess, að hæstv. atvmrh. hlutist til um, að þar verði bætt við vinnukrafti, svo að mögulegt verði að ljúka þessu sem fyrst og hægt verði að fá úr því skorið, hvað er heppilegast til framfara í þessu máli. Ég vil enn fremur óska eftir því, að hæstv. atvmrh. hlutist til um, að sá embættismaður, sem heyrir undir ráðuneytið og er formaður n., sofi ekki á verðinum í þessu máli, heldur leggi fram þá krafta, sem hann hefur yfir að ráða, til þess að ljúka þessu sem allra fyrst. Ráðh. veit, að þeir, sem hagsmuna eiga að gæta í þessu máli, munu fylgjast með því, hvað gerist, og þeir munu ekki sætta sig við það, að ekki verði hrundið af stað framkvæmdum þessara mála svo fljótt sem kostur er. Ég fjölyrði ekki um þetta, en vil mega treysta því, að áfram verði haldið, svo að rannsóknum megi ljúka sem fyrst.