29.09.1944
Neðri deild: 58. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 940 í D-deild Alþingistíðinda. (6310)
123. mál, viðgerð á Ölfusárbrúnni
Fyrirspyrjandi (Ingólfur Jónsson):
Það vill nú svo vel til, að ég hef þegar fengið svar við þessari fyrirspurn. Vegamálastjóri segir mér, að Ölfusárbrú verði opnuð til umferðar á morgun. Það er ánægjulegt, að sá árangur hefur náðst. Ég vil nota tækifærið til að þakka vegamálastjóra, verkfræðingum, verkstjóra og öðrum, sem þar áttu mestan hlut að. Þegar brúin fór niður, voru margir kvíðandi um, að ekki tækist að ná henni upp. Og kvíðvænlegt var að hugsa til, hvernig haustflutningar mundu þá ganga. Nú er ástæða til að vona, að brúin endist, þangað til búið er að smíða nýja brú. Þótt brúin sé komin upp, er hún ekki til frambúðar, svo mikil notkun sem hlýtur að verða á henni. En flytja má þessa gömlu brú á annað fljót, þar sem umferð er minni, og gæti hún komið þar að fullu gagni.