29.09.1944
Neðri deild: 58. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 940 í D-deild Alþingistíðinda. (6311)

123. mál, viðgerð á Ölfusárbrúnni

Atvmrh. (Vilhjálmur Þór):

Enda þótt fyrirspyrjandi hafi tekið af mér ómakið að svara fyrirspurninni, vil ég taka fram, að fjárrekstrar yfir Ölfusá eru þegar byrjaðir, og brúin verður opnuð á morgun til umferðar með þungaflutning. Telja þeir, sem gerst vita, að brúin eigi nú að vera a. m. k. eins sterk og hún hafi sterkust verið áður.

Viðvíkjandi þál. um nýja brú á staðnum vil ég skýra frá því, að unnið er að útvegun efnis, sem erfitt er að fá, einkum járnið, og þarf það að fást frá Bretlandi, ef unnt á að vera að hefjast handa við bygginguna á þessu hausti. Gegnum stjórnarleiðina er verið að reyna að fá það, og undirbúningurinn er í fullum gangi.