29.09.1944
Neðri deild: 58. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 942 í D-deild Alþingistíðinda. (6315)
133. mál, veðurfregnir
Atvmrh. (Vilhjálmur Þór):
Herra forseti. — Hv. þm. Borgf. hefur lýst því réttilega, hvernig ástandið hefur verið um öflun og dreifingu veðurfregna, og það er vissulega lítt við unandi. Bæði fyrrv. ríkisstj. og núv. hafa gert miklar tilraunir til rýmkunar og það eigi síður fyrir 17. febr. en eftir. Ríkisstj. bar fram fyrir fulltrúa herstjórnarinnar öll þau rök, sem fyrir hendi voru, þ. á m. þau rök, sem hv. þm. Borgf. hefur flutt, en allt kom fyrir ekki. Þó að hinir erlendu fulltrúar hafi tekið með vinsemd á málinu, hefur það jafnan strandað á kröfunni um öryggi hernaðaraðgerða, seinast á s. l. vori, og mun synjunin þá hafa komið frá æðri heryfirvöldum en hér eru. Það var þá enn algert afsvar um nokkra breytingu. En með því, að hernaðarafstaðan hefur síðan breytzt, hefur ríkisstj. tekið málið fyrir að nýju, og er það komið til athugunar hjá þeim háu herrum. Finnst mér, eins og nú horfir í styrjöldinni, nokkur von um, að breytingar fari að fást á þessu sviði.
En til marks um, hvað Bretar telja leynd veðurfregna alvarlegt mál, má geta þess, að síðustu missiri hafa þeir engar veðurfregnir látið sjómönnum sínum í té.
Málinu verður fylgt fram, og við verðum að vona, að ekki líði langt til breytinga.