29.09.1944
Neðri deild: 58. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 942 í D-deild Alþingistíðinda. (6316)

133. mál, veðurfregnir

Fyrirspyrjandi (Pétur Ottesen):

Ég get þakkað hæstv. ráðh. fyrir svörin. Ég efast ekki um, að hann hefur gert það, sem hægt var að gera í málinu, en það er sorgarsaga, hvernig synjað hefur verið um allar úrbætur og hvað af hefur hlotizt. En nú þegar ástandið á höfum Íslands og hér í nánd er gerbreytt, er undarlegt, ef það hefur ekki áhrif á hernaðaryfirvöldin í máli þessu, ekki sízt ef veðurfregnunum verður ekki meira slegið út en nú hefur verið gert um skeið. Rýmkun á fréttaöfluninni hefði mikla þýðing fyrir bátaflotann, þótt ekki væri hægt að láta talstöðvar hafa fregnirnar.

Ég veit, að ríkisstj. muni áfram halda fast á þessu máli.