28.09.1944
Efri deild: 51. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 965 í D-deild Alþingistíðinda. (6366)

111. mál, erlendar innistæður

Gísli Jónsson:

Herra forseti. — Þegar ég skýrði afstöðu mína til þessa máls við atkvgr., þá greiddi ég atkv. á móti fyrirspurninni, af því að ég áleit, að það væri ekki samboðið heiðri þessarar hv. þd., að fyrirspurnin væri borin upp og rædd hér á hæstv. Alþ. — Ég hef nú hlustað á allar umr. um hana, og finnst mér eftir það, að skoðun mín í upphafi hafi verið rétt. Það hefur ekkert komið fram í þeim umr., sem bendi til þess, að það sé til sóma fyrir hæstv. Alþ. að eyða tíma sínum til þess að ræða þetta mál þannig af sækjanda og verjanda. Ég ætla ekki að blanda mér í sjálfar deilurnar, sem hér hafa farið fram, mér finnst það ekki þess vert.

En ég vil vísa á bug því, sem hv. þm. S-Þ. beindi til mín, að ég hafi komið fram hér í hv. þd. sem sendiherra kommúnistadeildar í Sjálfstfl., því að ég veit ekki til þess, að þar sé nein kommúnistadeild til. Ef kommúnistadeild er til í nokkrum flokki, þá er hún í Framsfl., en hún minnkar því meir sem hv. þm. S-Þ. fjarlægist þann flokk.

Sami hv. þm. lýsir yfir því, að hann hafi náð tilgangi sínum með fyrirspurn þessari. Og það sannar einnig það, sem ég hélt fram, að þessi hv. þm. væri með fyrirspurninni að þjóna hér einhverju öðru eðli en þingmannseðli, eins og almennt er álitið hjá þjóðinni, að það eigi að vera.

Svo vil ég svara fyrirspurn hv. þm. S-Þ., sem hann beindi til mín út af þessu máli, hvort ég vildi ekki útbúa þskj., sem þannig væri úr garði gert, að Tíminn tæki það upp og flytti það, eins og Vísir hefur flutt þetta þskj., sem hér er um að ræða. En ég mun ekki vera fær um að semja slíkt þskj., því að það þyrfti að vera svo samantvinnað af því orðbragði og málflutningi, sem þessi hv. þm. temur sér, að ég treysti mér ekki til þess með öllum mínum verksmiðjum, hvort sem þær starfa að útungun þskj. eða öðru. Býst ég ekki við, að ég næði þeim Tímastíl, að það kæmist í blaðið.