08.12.1944
Sameinað þing: 73. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 571 í B-deild Alþingistíðinda. (637)
143. mál, fjárlög 1945
Ingólfur Jónsson:
Herra forseti. — Ég hef leyft mér að flytja hér brtt. á þskj. 612, um að liðurinn Hagabraut eða Uppholtavegur hækki úr 25 þús. kr. í 50 þús. kr. og til vara í 40 þús. kr. — Ástæðan til þess, að ég fer fram ,á, að liðurinn hækki, er sú, að eins og Uppholtin eru komin nú, eftir að mæðiveikin kom þangað og bændur eru orðnir fjárlausir margir eða að heita má, er þeim nauðugur einn kostur að hætta að búa og yfirgefa jarðir sínar, nema komið sé á vegasambandi til þeirra, svo að þeir geti selt mjólk. Þeir, sem kunnugir eru þarna í sveit og þekkja þá ræktunarmöguleika, sem þar eru fyrir hendi, munu seint samþykkja það að leggja þessar jarðir í eyði. En ef bændur hafa ekki vegasamband og geta ekki selt mjólk og hafa ekki heldur sauðfé, þá sjá allir, að kostur þeirra er þannig, að þeir geta ekki lifað þar, sem þeir eru niður komnir.
Hagabraut eða Uppholtavegur var tekinn í þjóðvegatölu árið 1942. Fyrsta fjárveiting til hans er á fjárl. í ár, 25 þús. kr., og var unnið fyrir alla þá upphæð á síðasta sumri. En eins og menn vita, er ekki hægt að komast langt með veg með einum 25 þús. kr. Er þess vegna mikið enn ógert af þessum vegi, og vantar enn mikið til þess, að það séu tiltök fyrir þessa menn að flytja mjólk frá sér. Þó að gert sé ráð fyrir, að þeir flytji mjólkina 5–6 km til þess að komast að mjólkurbílnum, þá verður samt að leggja áður 4–5 km. veg, því að flestir þeirra eiga, eins og nú er, 10 km. leið þangað, sem mjólkurbíllinn kemst. — Ég hygg, að flestir séu sammála um það, að það sé ógerningur fyrir bændur, eins og þeir eru nú almennt liðaðir, að flytja mjólkina á klökkum 10 km leið, og að það sé tæplega ætlandi til, að þeir fari lengri vegarlengd þannig með mjólkina en 5–6 km. En ég hygg, að þeir mundu leggja í að selja mjólk, ef komið væri á móts við þá til hálfs og vegalengdin stytt þannig.
Á fjárlfrv. nú eru áætlaðar 25 þús. kr. til vegagerðar þarna eins og í fyrra. En vegna þess, hve litið er hægt að komast fyrir þessa upphæð og hve það er nauðsynlegt, að verkinu sé hraðað, þá hef ég lagt til, að þetta tillag verði hækkað eins og ég hef tekið fram. Vonast ég eftir, að hæstv. Alþ. fallist á að hækka þennan lið.
Þá er hér önnur brtt. undir XXXVII á sama þskj., sem ég flyt ásamt hv. samþm. mínum, um 25 þús. kr. framlag til fyrirhleðslu á Þverárbökkum austan og vestan við Uxahrygg. Það er nú svo, að Þverá flæðir oft yfir bakkana þarna og eyðileggur alveg veginn. Það eru 15–20 bændur, sem búa þarna niður frá á Bökkunum og í Landeyjunum, og þessir bændur hafa um 150 kýr. Þeir geta ekki selt mjólk, eins og nú standa sakir, nema yfir sumartímann. Það eru t.d. nú (8. des.) 4–5 vikur, síðan vegurinn varð ófær þarna, vegna þess að áin fór yfir bakkana. — Ég bað vegamálastjóra í haust að athuga, hvað hægt væri að gera þarna til þess að forðast, að áin flæddi yfir bakkana, eins og hún hefur gert. Hann sendi mann til þess að athuga staðhætti alla, og gerð var áætlun um, að það mætti hlaða þarna í skörð og gera þannig við því, að áin flæddi yfir bakkana, nema þá í vatnavöxtum, fyrir 25 þús. kr. — Við flytjum því báðir þm. Rang. brtt. þá, sem ég hef getið, um 25 þús. kr. framlag til þessarar fyrirhleðslu.
Í þriðja lagi flyt ég brtt. á sama þskj. undir XXXVIII. Hún er lítil og mælir að nokkru leyti með sér sjálf. Hún er um það að veita 1 þús. kr. til þess að girða og græða upp svo kallaðan Höskuldarhól hjá Vorsabæ í Landeyjum. Það er bæjarstæði Höskuldar Hvítanesgoða. Ég talaði við fornminjavörð síðast í dag um þennan hó1 og spurði, hvort ekki væri óhætt að segja á Alþ., að þetta
væri bæjarstæði Höskuldar Hvítanesgoða. Taldi hann svo vera og sagði, að það væri vissa sín, að svo væri. Hann sagðist oft hafa farið fram á það við sandgræðslustjóra að friða þennan blett, því að hann vildi ekki láta hann eyðileggjast, en sandgræðslustjóri hefði ekki viljað gera þetta. Ég býst ekki við, að það sé vegna þess, að hann vilji ekki forða honum frá eyðileggingu, heldur vegna þess, að hann álíti, að Alþ. muni vera fúst til þess að sjá um sérstaka fjárveitingu í þessu skyni. En sandgræðslustjóri þykist aldrei hafa of mikið til sinna þarfa. — Ég veit, að 1000 kr. þykir ekki stór biti á fjárl. nú, og ég vonast því til, að menn vilji greiða þessari litlu brtt. atkv., og ég sé ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um hana.
Ég tók eftir því, að hæstv. fjmrh. talaði um það í gærkvöld, að hann óskaði eftir því, að liðurinn um kirkjubyggingar væri helzt tekinn af fjárlfrv., a.m.k. til 3. umr. Það er kunnugt, að sex kirkjur eru á frv., eins og hv. fjvn. hefur gengið frá því, með styrk að upphæð 85 þús. kr. Í fyrra var veittur styrkur til fimm kirkna, um 15 þús. kr. til hverrar. — Þá var ég hér með till. um styrk til Ásólfsskálakirkju, 15 þús. kr. Sú kirkja hafði jafnan rétt til þess að fá þann styrk og þær kirkjur, sem fengu hann í fyrra (Fjmrh.: Hafa það ekki allar kirkjur á landinu?) Það má segja, en tæplega þær, sem ekki er verið að reisa, a.m.k. síður þær, sem búið er að byggja fyrir dýrtíð og eru skuldlausar. En þetta er vitanlega atriði, sem Alþ. þarf að gera upp við sig, hvort það ætlar að greiða styrki til kirkjubygginga. Það hefur gert það á tveim undanförnum þingum. Og ég vil segja, að það væri sanngjarnt, þótt það geri það í þriðja sinn að veita styrki til þeirra kirkna, sem bornar voru upp í fyrra, þegar styrkir voru veittir til annarra kirkna. Hitt er annað mál, hvað Alþ. og ríkisstj. treysta sér til að gera, eins og tímarnir eru nú. Ég skal gjarnan viðurkenna, að fjárl. eru hlaðin og auðvitað ofhlaðin. En fjárhagur ríkisins er tæpur, ef þessar 85 þús. kr. yrðu til þess að gera afgreiðslu á fjárl. ómögulega.
Ég hef ekki farið fram á brtt. til mikilla útgjalda að þessu sinni. En það stafar ekki af því, að ekki vanti í kjördæmi mitt ýmislegt það, sem koma þarf í framkvæmd, og ekki af því, að ekki sé leitað á okkur þm. kjördæmisins um það að reyna að fá auknar fjárveitingar til margra hluta. Okkur vantar brýr og vegi og síma og styrki til húsabygginga o.s.frv. En ég hef ekki borið fram brtt. til þess að reyna að fá fjárveitingu frekar en orðið er, vegna þess að mér er ljóst, hvernig fjárhagurinn er, og að þm. verða að hafa ábyrgðartilfinningu og stilla kröfum sínum í hóf.
Það hefur verið talað um það í umr. hér, að framlögin til vega væru mjög misjöfn í hinum ýmsu héruðum. Og ég fyrir mitt leyti verð að segja, að það þarf ekki að vera neitt ranglæti á ferð, þótt svo sé, því að vitanlega eru þarfirnar mjög misjafnar í hinum ýmsu kjördæmum landsins í þessu tilliti. Það væri ekki nema eðlilegt, að héruð, sem eru alveg hafnlaus og fá því ekkert til hafnargerða og ekkert til bryggjugerða, væru með hæst fjárframlög frá ríkinu til vegagerða. En svo er bara eitt. Það eru dæmi til þess, að þau kjördæmi, sem fá stórfúlgur til hafnaxgerða og bryggjugerða, eru með hæstu kjördæmum um fjárframlög úr ríkissjóði til vegagerða. — Ég ætla ekki að fara í neinn meting, hvað þetta snertir. En það er vitanlega æskilegt, að fjárframlög til hinna ýmsu héraða séu sniðin eftir þörfum hvers kjördæmis. Og það þarf ekki að vera neitt ranglæti í því, þótt fjárveitingar, séu misjafnar til hinna ýmsu kjördæma í þessum efnum.
Hv. fjvn. hefur afgreitt fjárlfrv. frá sér, eins og kunnugt er. Og mörgum hefur fundizt, að afgreiðsla n. á frv. hafi að þessu sinni verið með dálítið einkennilegum hætti, sérstaklega með tilliti til hinna mörgu fyrirvara, sem ýmsir hv. nm. hafa fyrir undirskrift sinni undir nál. Það er skiljanlegt, að afgreiðsla fjárlfrv. hafi verið með erfiðasta móti að þessu sinni, þegar vitanlegt var, að tekjuhalli var fyrir á frv., og ekki er enn ljóst, hvaða möguleikar eru fyrir hendi til þess að afla tekna. Það er óþarfi fyrir mig að blanda mér í þær umr., sem orðið hafa hér um tekjuhalla fjárlfrv., en mér finnst satt að segja, að sé það rétt, að áfengisverzlunin gefi á þessu ári um 27 millj. kr. tekjur í ríkissjóð, þá sé það engin fjarstæða að ætla tekjurnar af þeirri sölu á næsta ári um 20 millj. kr. Hitt er leiðinlegt að þurfa að játa og viðurkenna, að þjóðin skuli eyða svo miklum fjármunum í þennan óþarfa og skaðlega hlut. — Ég held líka um verðtollinn og vörumagnstollinn og tekjuskattinn, — en þessir liðir voru hækkaðir, — að tekjuáætlunin um þá muni standast. En þegar tekjuáætlunin er ákveðin þetta há, þá er tæplega við því að búast, að þessir liðir fari langt fram úr áætlun. Það býst ég við, að hæstv. ríkisstj. geri sér ljóst og að útgjöldin miðist frá hennar sjónarmiði við það. En það verða viðbrigði frá því, sem verið hefur á undanförnum árum, ef tekjurnar fara á næsta ári ekkert fram úr áætlun, — því að undanfarin þrjú ár hafa tekjurnar farið langt fram úr áætlun og orðið til þess að mæta útgjaldaliðum, sem einnig hafa farið langt fram yfir það, sem áætlað var. Ef gjöldin á næsta ári fara fram úr því, sem nú er áætlað á fjárl., hefur ríkisstj. lítið upp á að hlaupa. En það var kunnugt strax í haust, þegar fjárlfrv. var lagt fram, hvernig fjárhagur ríkisins var. Það var kunnugt þá strax, að hann var ekki góður. Launagreiðslur voru miðaðar við vísitöluna 250 stig, enginn liður áætlaður til niðurgreiðslu á landbúnaðarvörum innanlands, ekkert ætlað til að tryggja útflutningsverð landbúnaðarafurða o.s.frv. Þess vegna er vitað fyrir löngu; að á frv. vantaði stórar fjárfúlgur, og engan þarf því að undra, þó að svo sé í dag. Einnig voru verklegar framkvæmdir skornar niður í frv. í þeirri mynd, sem það var í haust, um nærri 3 millj. kr., en sá liður hefur verið hækkaður aftur á frv., og verður þess vegna því meira, sem þarf til að gera fjárl. tekjuhallalaus. Það er ljóst, að nú vantar a.m.k. 30 millj. kr. á fjárlögum, og hvar á .að taka þessar 30 millj.? Það er vitanlega spurning,. sem hver þm. leggur fyrir sig, spurning, sem hv. ríkisstj. hlýtur að hafa lagt fyrir sig og er sennilega búin að svara sjálfri sér um, því að hv. fjmrh. talaði um, að það yrði gert opinbert í næstu viku,. hvaða leið yrði farin.
Frá mínu sjónarmiði eru þrjár leiðir, sem hæstv. ríkisstj. gæti farið til að afla tekna. Hv. fjmrh. talaði um í gær, að í ráði væri að fá lánsheimild. Mér þykir sú leið vera versta leiðin af þeim þrem, sem hægt er að fara. Fyrst það þykir slæmt fyrir einstaklinga og fyrirtæki að safna skuldum núna, þá hlýtur það einnig að vera slæmt fyrir ríkið, og það er mikil spurning, hvernig skuldir, sem stofnað er til núna, verða borgaðar. Ég sé reyndar, að það væri hægt að borga slíkar skuldir með einu móti, og það er ráð, sem ég hygg, að deilt mundi um, ef það yrði tekið. Það væri með því að lækka gengið meira eða minna og taka þann hagnað, sem bankarnir fá af gengislækkuninni, til ráðstöfunar fyrir ríkissjóð. Ég ætla samt ekki að ræða um það hér í kvöld, hvort gengislækkun væri æskileg eða ekki, en það hefur alltaf verið talað um gengislækkun sem neyðarráðstöfun á þeim grundvelli, að það væri helzt ekki að ræða um minna en 10 til 20% lækkun. Ég ætla ekki að kenna hæstv. ríkisstj. nein ráð, en aðeins minna á það hér á hv. Alþ., að 2% gengislækkun gæfi bönkunum í hagnað 11 til 12 millj. kr., og 4% gæfi sömu bönkum 22 til 24 millj. kr. 4% gengislækkun mundi hækka sterlingspundið um ca. 1 krónu og dollarann um 27 aura. Ef gengið lækkaði um 4%, hækkaði dýrtíðin, enda er sú leið til fjáröflunar þrautalending. — Ég sagði áðan, að ég væri ekki að kenna stj. ráð og ég væri ekki að gera þetta að till. minni eða segja, að rétt væri að fara þessa leið, en hér er vitanlega leið til að afla 24 millj. kr. með 4% gengislækkun.
Ég veit, að þegar rætt er um gengislækkun, er alltaf talað um, að þeir, sem eigi peninga, séu rændir fjármunum sínum, og það er rétt. Þeir, sem áttu peninga fyrir stríð og ætluðu að lifa af vöxtunum af þeim á efri árum, eru illa settir núna. Það er þegar búið að ræna þá. En því minni sem gengislækkunin er, því minna er arðránið hjá þeim, sem peninga eiga, og það er vitanlega allt annað, þótt krónan lækki um 4% en jafnvel 20 til 30%, eins og oft er rætt um. Þó að ég nefni þessa leið sem eina af þremur, er legið hafa fyrir hæstv. ríkisstj., þá er það ekki till. mín eða sagt af mér, að hún sé æskileg eða góð:
Þriðja leiðin, sem ég tel og hæstv. ríkisstj. veit, að hún getur farið, er það að taka strax með beinum sköttum það, sem vantar á fjárl. Þó að það væri tilfinnanlegt að taka 30 millj. kr. í beinum sköttum, þá er vitanlegt, að það væri mögulegt að innheimta það í eitt skipti fyrir öll, en þá kemur til álita um það, hvort það hefni sín ekki aftur næsta ár og hvort skattþegnunum væri ekki íþyngt um of, og leiðin sé þess vegna ófær að kalla, þó að takast mætti í eitt skipti að fara hana. Þessi þriðja leið, sem ég hef nefnt, er til að afgreiða fjárl. tekjuhallalaus. Sú leið er bezt, og hún er sjálfsögð, þótt menn kunni að kveina undan skattabyrði. Lántakan finnst mér vera langverst. Gengislækkun slæm og ekki farandi nema í neyð. En tekjuhallafjárl. verður að afgr. með nægilegri tekjuöflun í ríkissjóðinn.
Það er nú svo, að ástæðan fyrir því, að svo mikið vantar á fjárl., er að nokkru leyti sú, að landbúnaðurinn hefur misst markað fyrir vörur sínar. Beztu markaðslöndin fyrir landbúnaðarvörur okkar eru lokuð, eins og nú standa sakir, og það fyrirbrigði að borga niður landbúnaðarvörur innan lands, svo að milljónum skiptir, og borga með útflutningsvörunum, það stendur ekki til lengdar. Það er þess vegna ekkert auðvelt að komast gegnum þá erfiðleika, sem steðja að, og það er vonandi, að þeir menn, sem við þá erfiðleika glíma, finni skynsamleg ráð til að sigrast á þeim. Allir góðir menn munu styðja hæstv. ríkisstj. til skynsamlegra aðgerða í þessu máli. (GJ: Er þetta talað fyrir hönd fimmmenninganna?) En það verður að virða mönnum til vorkunnar, þó að þeir hafi ekki trú á að taka lán, eins og nú stendur á.
Það er eitt atriði enn, sem ég get ekki látið hjá líða að minnast á, og það er launalfrv., sem nú er fyrir hv. Ed. Hv. fjmrh. minntist á það í gær, að yrði það samþ., mundu útgjöld ríkissjóðs vaxa um 3 til 4 millj. kr. Ég held, að hæstv. ríkisstj. ætti að reyna að komast hjá að drýgja sína stærstu synd og hætta við að samþ. þetta frv. Við bændafulltrúarnir unnum að því í haust, að bændur gæfu eftir 9,4 % af því, sem þeim bar. Við gerðum það í trausti þess, að kröfur um hækkaðar launagreiðslur væru lagðar á hilluna, að ég ekki segi, að við byggjumst við, að kauplækkanir ættu sér stað um leið. Það mundi einhver segja, að erfitt væri fyrir hæstv. ríkisstj. að samþ. ekki launal., því að í málefnasamningnum var gert ráð fyrir, að þau yrðu samþ. Ef allir þeir flokkar, sem að hæstv. ríkisstj. standa, kæmu sér saman um af þjóðfélagslegri nauðsyn að hætta við að samþ. þetta frv., væri tæplega hægt að tala um svik hjá þessum flokkum. Ef þeir kæmu sér saman um það af þeirri nauðsyn, að fjárhag ríkissjóðs væri þannig komið, að hvorki væri heppilegt né rétt að auka þennan eina útgjaldalið ríkissjóðs um 4 til 5 millj. kr. Ég er sannfærður um, að viðhorf margra manna til hæstv. ríkisstj. breytist til batnaðar, ef hún tæki þá stefnu að leggja þetta óheillafrv. til hliðar, sem að vísu allir stjórnmálaflokkarnir bera ábyrgð á, því að það hefur flm. úr öllum flokkum í hv. Ed. En það er ekki vansalaust, eins og nú er komið, að samþ. útgjaldalið í þessu skyni, sem nemur 4 til 5 millj. kr. á ári, um leið og ríkisstj. býst við og hv. fjmrh. gefur í skyn hér í hv. d., að jafnvel verði að grípa til þess örþrifaráðs að fá lánsheimild til að afgreiða hallalaus fjárlög.
Ég skal svo láta lokið máli mínu. Ég býst ekki við, að það, sem ég hef sagt um þessar þrjár leiðir, verði skoðað sem heillaráð af hæstv. ríkisstj., enda veit ég, að hún hefur gert sér ljóst, að þessar leiðir voru til, áður en ég talaði um það hér, en svo vel vil ég hæstv. ríkisstj., að ég óska þess, að hún taki þá leið, sem er skást.