02.03.1945
Efri deild: 140. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 972 í D-deild Alþingistíðinda. (6382)
290. mál, lagasafn
Fyrirspyrjandi (Bjarni Benediktsson):
Ég vil ekki gera lítið úr þeim örðugleikum, sem eru á að fá þessa bók prentaða, en það er ofmælt, að prentsmiðjurnar séu aðallega uppteknar við að prenta blöðin. Ég veit, að stærsta blaðið er ekki prentað í aðalprentsmiðjunni, sem gefur það út, heldur er það útibú, sem sér um það, en það er að vissu leyti mjög merkileg menningarleg upplýsing, sem er ágætt, að komi fram, ef það er ómögulegt fyrir ríkið að fá prentaðar nytsamar bækur á þeim bókaflóðstímum, sem nú eru, og það er gott, að stjórnarvöld landsins láti það eitthvað til sín taka, eins og mér skilst, að hæstv. dómsmrh. sé hér að gera, og ég þakka honum fyrir áhuga hans í þeim efnum.