10.11.1944
Sameinað þing: 63. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 2052 í B-deild Alþingistíðinda. (6385)
Varamenn taka þingsæti
Forseti (GSv):
Svo hljóðandi bréf hefur borizt forseta Alþingis:
„Formaður Sameiningarflokks alþýðu — Sósíalistaflokksins, Einar Olgeirsson, 2. þm. Reykv., hefur í dag ritað forseta neðri deildar á þessa leið:
„Með því að Sigurður Thoroddsen, 11. landsk. þm., er farinn af landi burt í erindum ríkisstjórnarinnar og mun verða í þeirri för næstu vikur, þá leyfi ég mér, með skírskotun til 3. mgr. 144. gr. laga nr. 80 1942, um kosningar til Alþingis, að óska eftir því, að varamaður, Ásmundur Sigurðsson, taki sæti hans á Alþingi meðan hann verður fjarvistum, og einnig á sama tímabili sæti í þeim nefndum deildarinnar, er Sigurður Thoroddsen hefur verið kosinn í.“
Þetta, er yður, herra forseti, hér með tilkynnt, með ósk um, að þér takið á dagskrá næsta fundar rannsókn kjörbréfs varamanns.
Barði Guðmundsson.
Til forseta sameinaðs Alþingis.“
Kjörbréfanefnd hefur haft kjörbréf Ásmundar Sigurðsson til athugunar, og tekur nú hv. frsm. n. til máls.