05.01.1945
Sameinað þing: 81. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 2053 í B-deild Alþingistíðinda. (6388)

Varamenn taka þingsæti

Forseti (GSv):

Hæstv. forseti neðri deildar hefur afhent mér símskeyti, sem honum hefur borizt frá hv. 2. þm. Skagf., svo hljóðandi:

„Get ekki sótt þingfundi vegna óvenjulegra anna. Óska að Haraldur Jónasson Völlum taki þingsæti mitt næstu vikur.

Jón Sigurðsson.“ Kjörbréfanefnd mun þegar hafa tekið til athugunar kjörbréf Haralds Jónassonar, og gerir hv. frsm. nefndarinnar nú grein fyrir niðurstöðu hennar.