20.06.1944
Neðri deild: 43. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 2056 í B-deild Alþingistíðinda. (6405)

Þingfrestun

forseti (JörB):

Þetta mun verða síðasti fundur þessarar hv. deildar að þessu sinni, því að ákveðið hefur verið að slíta þingi síðar í dag. Ég vil óska eftir leyfi hv. dm. að mega undirrita gerðabók, og skoðast það samþ., ef enginn mælir því í gegn.

Vil ég svo þakka hv. deild fyrir samstarfið, eins og alltaf áður, og óska hv. dm. góðrar líðunar og utanbæjarþingmönnum góðrar heimkomu.