15.12.1944
Sameinað þing: 76. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 2058 í B-deild Alþingistíðinda. (6415)

Þingfrestun

forseti (GSv):

Ég vil láta þess getið, að tilætlunin var, að frv. til fjárl. gæti komizt til 3. umr. á morgun, og var sú ætlun byggð á því, að fregnir bárust um það frá hv. fjvn., að hennar till. gætu komið fram í dag, stutt við það, að frv., eins og það var afgr. frá 2. umr., væri tilbúið í gærkvöld eða snemma í morgun. Frv. hefur verið útbýtt, en ekki mun von á till. til útbýtingar frá fjvn. fyrr en á morgun. (PO: Þær verða afhentar til prentunar í dag. ) Af þessu leiðir, að hætta verður við þá ætlan að byrja, þótt með afbrigðum hefði verið, 3. umr. fjárl. á morgun, sem er laugardagur, hvar fyrir hún verður ekki áætluð eða framkvæmd fyrr en á mánudag. Verður þá fundur í sameinuðu þingi og fjárlög tekin til meðferðar, enda verður til annars kvölds settur síðasti frestur fyrir alþm., sem hafa þá séð frv. og brtt. hv. fjvn., til að skila sínum brtt., svo að prenta megi þær til útbýtingar, þó að það yrði ekki fyrr en á mánudag, jafnhliða því, sem fjárl. verða tekin fyrir til 3. umr. og þá til enda kljáð á mánudag eða þriðjudag, en þá fer fram atkvgr. um fjárl. Er þá kominn 19. desember. Nú hefur við athugun forseta og hæstv. ríkisstj. komið í ljós, að þótt allir væru af vilja gerðir, eins og menn eru, að binda endi á þetta þing fyrir jól, þá er það, sökum þess hvernig ástatt er um meðferð mála, ekki kleift, því að eins og kunnugt er og hæstv. stj. hefur getið um, þá hefur hún ásett sér að koma í gegn á þessu þingi mikilsverðum málum, launalögum og einnig skattalögum, sem er óhjákvæmilegt samkvæmt því, sem fjárl. eru nú og verða að vera. Ýmis önnur mál eru til, sem seg ja mætti, að gætu nú niður fallið í þeirri von, ef menn vilja kalla svo, að þau verði endurreist á næsta þingi, en enginn veit í rauninni, hvernig háttað verður um þinghald það, sem heitir næsta þing, og er ekki hægt enn að ákveða það af hálfu hæstv. stj. Af þessu leiðir það, að fresta verður þingi nú, og verður það ekki gert með neinni þál., heldur eftir orði forseta verður tilkynnt, að 19.–20. þ. m. eða þar um bil hefst fundahlé, þar sem ekki þýðir, þótt menn vildu, að halda áfram þingstörfum næstu daga, sem eru næstu dagar fyrir jól. Þing kemur þá aftur saman næstu daga eftir nýár, þó væntanlega ekki fyrr en 4. janúar. Þann 6. janúar, laugardag, er þrettándinn. Væri vel, ef menn gætu verið komnir til þings, ef fundir yrðu boðaðir í d. þann 4. janúar eða svo.

Þetta hvort tveggja, um meðferð fjárlfrv. nú, að fjárl. verði lokið tvo fyrstu daga næstu viku, og hitt, um þinghlé fyrir jól, er ætlazt til, að hv. þm. hafi heyrt og viti um og láti aðra vita, eftir því sem þörf gerist.