11.12.1944
Sameinað þing: 74. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 585 í B-deild Alþingistíðinda. (644)
143. mál, fjárlög 1945
Forsrh. (Ólafur Thors):
Það er kunnugt, að strandferðunum er mjög ábótavant, og mun ríkisstj. því athuga það mál eins og mörg önnur vandamál, sem að steðja, og mun gera það án leiðbeiningar frá flm. þessarar brtt. Segi ég því nei.