08.02.1944
Sameinað þing: 13. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 26 í D-deild Alþingistíðinda. (6447)

20. mál, eftirlit með skipum

Gísli Jónsson:

Út af yfirlýsingu hv. þm. Ísaf. viðvíkjandi Bárði Tómassyni vil ég upplýsa það, að það var einmitt þessi Bárður, sem á sínum tíma skoðaði það skip, sem böndin voru borin úr í pokum, og hafði hann mælt með því, að þetta skip fengi að sigla yfir hafið þennan ákveðna tíma. En það var skipaskoðunin í Reykjavík, sem stöðvaði skipið, nokkru eftir að þessi maður, sem nú er ætlazt til, að verði aðalmaður skipaskoðunarinnar, hafði lýst yfir, að skipið mætti sigla áfram.

Hv. þm. Ísaf. gerði ekki tilraun til að hrekja það sanna í þessu máli, að íslenzka skipaskoðunin standi framar skipaskoðun annarra landa, enda var honum það um megn, vegna þess að hægt er að færa fram sannanir á, að það gerir hún og gerir það vel. — Hv. þm. gat ekki heldur sannað, að ég hefði borið hér fram rangar upplýsingar um burðarþol togara eða annarra skipa. Það vita allir, að burðarþol skipa byggist ekki á því, hvað mikið er látið í þau af fiski. Ef lífshætta er að Iáta skip sigla með 200 smálestir af fiski og 100 smálestir af öðrum vörum, þá er áreiðanlega ávallt lífshætta að hafa 300 smálestir í skipinu. Nei, tilgangur hv. þm. Ísaf. með ræðu sinni var að slá á viðkvæma strengi, en ekki sá að leysa það, sem leysa þarf.

Ég vil einnig benda á, hve mál þetta er sótt af miklu ofurkappi og vanþekkingu, þegar farið er að halda því fram, að það sé lífshætta að taka burtu trollvíra af skipi, ef það kemst í aðstöðu til að bjarga öðru skipi. Svona langt er gengið í því að þyrla upp ryki um mál, sem þó er nauðsynlegt að leysa á rólegan og skynsamlegan hátt.

Ég vil að lokum geta þess, að fjölmargir sjómenn hafa komið saman á fund, síðan umr. um þetta mál fóru fram í Sþ. síðast, og ræddu þeir m. a. um skýrslu þá, sem hv. þm. Ísaf. las upp í sambandi við málið. Voru þeir allir á einu máli um það, að skýrslan hafi, í því ljósi, sem hún er fram sett, við engin rök að styðjast og sé algerlega röng.